Morgunblaðið - 12.11.2015, Page 60
SÍMAR, SJÓNVÖRP og raftæki60
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. NÓVEMBER 2015
Viltu gerast Íslandsforeldri Fjölskyldu-
hjálpar Íslands með eingreiðslu eða
mánaðarlegum greiðslum og aðstoða
okkur við að úthluta hollari matvælum
eins og fiski, ávöxtum, grænmeti, lýsi
og fl. til barnafjölskyldna sem til okkar
leita.
Íslandsforeldrar
óskast
Allar upplýsingar á heimasíðu okkar:
fjolskylduhjalp.isEyjasandi 2, 850 Hella - Víkurhvarfi 6, 203 Kópavogi, sími 488 9000 - samverk.is
GLERHANDRIÐ
Mælum, framleiðum, útvegum festingar og setjum upp.
ÞEKKING - GÆÐI - ÞJÓNUSTA
SÉRSMÍÐUM ÚR GLERI
Girndargripir græjufíkilsins
Mikið afskaplega er það almennilegt af hugvitsmönnum um allan heim að búa í sífellu til ný rafmagnstæki sem
létta okkur lífið og gera daginn skemmtilegri. Ef eitthvað er þá er framboðið svo mikið að erfitt er fyrir hinn
venjulega neytanda að henda reiður á úrvalinu og gera upp við sig hvað hann vill kaupa og hverju má sleppa.
Blaðamaður Morgunblaðsins fór á stúfana og fann nokkrar eigulegar græjur, stórar jafnt sem smáar, sem
kjörið er að setja á óskalistann þessi jólin. Svo er bara að vona að jólasveinninn fylgist vel með og velji rétta
glaðninginn í pakkann.
Það er eitthvað svo ómót-
stæðilegt við þá tilhugsun
að eiga hátalara í stofunni
sem kosta á við árslaun há-
tekjumanns. Nýju Beolab
90-hátalararnir frá Bang &
Olufsen falla í þann flokk
en komnir til landsins ættu
þessir hátalarar að kosta
vel yfir tíu milljónir króna.
Fyrir allan peninginn
fær fólk fjórtán hátalara
og fjóra magnara. Há-
talararnir beinast í all-
ar áttir og inn-
byggður hugbúnaður
lagar hljóðið að
hvaða rými sem er
svo að tónlistin á að
hljóma óáðfinnanlega
hvort heldur í lítilli
kompu eða í risastórum
sal á ættaróðalinu.
Eins og með önnur
raftæki frá Bang & Oluf-
sen er útlit hátalaranna í
algjörum sérflokki og
sennilega jafngaman
að horfa á hátalarana
inni í stofu eins og
að hlusta á tónlist-
ina sem streym-
ir úr þeim.
Beolab 90-hátalarar
frá Bang & Olufsen
Þeir sem eiga gæludýr kannast
margir við hversu erfitt það getur
verið þegar loðbarnið týnist. Eftir
sitja eigendurnir, að farast úr
áhyggjum, dreifandi miðum í
næstu hús og skeytum á dýravina-
hópana á Facebook, ef einhver
skyldi hafa séð kisa eða voffa á
flækingi.
Uppfinningamenn hafa á und-
anförnum árum reynt að leysa
vandann með því að setja gps-
tæki á hálsólina. Hingað til hefur
tæknin samt ekki þótt mjög vel
heppnuð, gps-tækin verið stór og
þung og haft takmarkaða hleðslu-
getu. Gps-ólin Nuzzle virðist leysa
öll gömlu vandamálin og er þetta
litla tæki troðfullt af skynjurum og
sendum og alls kyns snjall-fídusum.
Nuzzle notast meðal annars við
farsímakerfið til að senda upplýs-
ingar til eigandans, sem getur
fylgst með ferðum dýrsins í snjall-
símanum sínum. Skynjarar láta
vita ef dýrið hefur fengið á sig
högg og vakta líka hitastigið.
Safnað er fyrir Nuzzle á Indie-
gogo og hægt að tryggja sér eintak
þar á 159 dali.
Nuzzle hátækni gps-hálsól
fyrir uppáhalds gæludýrin
Vel tengt úr
frá Tag Heuer
Svissnesku úraframleiðendurnir hafa
lent í smávægilegri tilvistarkreppu
vegna vinsælda snjallúranna. Fullkomin
snjallúr eru skemmtileg tæki en það er
samt líka eitthvað ómótstæðilegt við
flókið gangverk í handsmíðuðu arm-
bandsúri.
Nýjasta úrið frá Tag Heuer
kemst nálægt því að blanda saman
því besta úr báðum heimum. Við
fyrstu sýn lítur úrið út eins og hvert
annað sportlegt úr frá Tag Heuer, en í
reynd er úrið ekki með vísa og skífu
heldur snertiskjá.
Skjárinn birtir meðal annars upplýs-
ingar um vindátt og veðurfar og getur
mælt upplýsingar um notandann eins og
hversu mörg skref hann hefur gengið
þann daginn. Úrið notar android-
stýrikerfi og getur vitaskuld líka keyrt
ýmis snjallforrit. ai@mbl.is