Morgunblaðið - 12.11.2015, Side 66
66
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. NÓVEMBER 2015
Smáratorgi 1, 201 Kóp., s. 588 6090, vl@verkfaeralagerinn.is
Verkfæralagerinn
Mán.-fim. kl. 9-18, fös. kl. 9-18:30, lau. kl. 10-18, sun. kl. 12-17
Þökkum frábærar
viðtökur á Van Gogh
olíulitunum og
Amsterdam
akryllitunum, sem
seldust nánast upp.
Ný sendingmeð fullt af
nýjungum komin í sölu.
Kolibri trönur
í miklu úrvali, gæða-
vara á góðu verði
Ný sending af
Kolibri penslum
Handgerðir þýskir penslar
í hæsta gæðaflokki á afar hagstæðu verði
Ennþá meira úrval af
listavörum
Vorum aðtaka innfullan gám afSara&Almastrigum
WorkPlus
Strigar frá kr. 195
Bergljót Friðriksdóttir
beggo@mbl.is
Þær breytingar urðu í blómlegu
menningarlífinu norðan heiða í byrj-
un árs að Menningarhúsið Hof, Leik-
félag Akureyrar og Sinfóníu-
hljómsveit Norðurlands voru sett
undir sama hatt og eru nú rekin sem
ein heild, undir merkjum Menningar-
félags Akureyrar, MAk. Markmiðið
er hagræðing í rekstri og samnýting
mannauðs, húsakosts, reynslu og
þekkingar, að sögn Sólveigar Elínar
Þórhallsdóttur, sviðsstjóra viðburða-
sviðs MAk, sem Hof heyrir undir.
„Þetta er mjög jákvæð þróun og
stór breyting á rekstri Menningar-
hússins Hofs, sem hingað til hefur að-
allega staðið fyrir útleigu á aðstöðu
vegna ýmiss konar viðburða, funda-
og ráðstefnuhalds,“ segir Sólveig.
„Með sameiningunni tekur Hof nú
þátt í framleiðslu listviðburða í sam-
starfi við hin sviðin tvö, tónlistarsvið
og leiklistarsvið; nýting hússins er
þannig mun betri en áður og þar
verður boðið upp á enn fjölbreyttari
þjónustu.“
Hún útskýrir að með hinu nýja fyr-
irkomulagi geti Hof boðið þeim sem
halda fundi, ráðstefnur og veislur
upp á menningardagskrá, sérsniðna
að óskum og þörfum hvers og eins.
„Sem dæmi má nefna tónlistaratriði,
lítil og stór, með hljóðfæraleikurum
frá Sinfóníuhljómsveit Norðurlands
og ef til vill söngvurum sem starfa
hjá MAk í það og það skiptið, og búta
úr leikritum, uppistand eða jafnvel
veislustjórn í höndum leikara frá
Leikfélagi Akureyrar.“
Fjölþætt hlutverk
Menningarhúsið Hof var vígt á
Akureyrarvöku í ágúst 2010 og þar
fer fram fjölbreytt starfsemi, bæði á
vegum hússins og þeirra aðila sem
þar hafa aðsetur. Aðsókn að Hofi hef-
ur farið stigvaxandi með árunum og
voru gestir í fyrra rúmlega 270 þús-
und talsins, þar af 42 þúsund í júlí-
mánuði einum. „Styrkleiki Hofs felst
í fjölþættu hlutverki hússins,“ segir
Sólveig. „Með tilkomu Hofs hefur að-
staða til tónleika- og viðburðahalds
hér á Akureyri tekið stakkaskiptum
og ber dagskrá síðustu ára þess
glöggt merki.
Húsið hefur allt frá opnun haft
mikil og góð áhrif á menningarlífið á
Norðurlandi og stórar ráðstefnur og
fundir laða fjölda fólks til Akureyrar,
sem hefur eflt ferðaþjónustu á svæð-
inu. Hof hefur þannig tvímælalaust
gildi á landsvísu. Akureyri er nú enn
ákjósanlegri áningarstaður en áður,
hvort heldur er að vetri eða sumri,
þar sem í boði eru vandaðir viðburðir
árið um kring og kjöraðstæður í Hofi
til þess að efna til ráðstefnu eða slá
upp veislu.“
Salirnir og sviðið
Hún er spurð nánar út í aðbún-
aðinn í Hofi, aðstöðuna til funda-,
ráðstefnu- og veisluhalds. „Hof
stendur mjög framarlega þegar kem-
ur að tækjabúnaði og aðstöðu á sviði
til að setja upp stóra og tæknilega
flókna viðburði. Húsið býr yfir stóru
og fullkomnu leiksviði, sem unnt er
að nýta á óteljandi vegu.
Hof státar einnig af stórglæsilegri
aðstöðu til funda- og ráðstefnuhalds.
Unnt er að hýsa stórar ráðstefnur og
minni fundarými henta vel fyrir
nefndarstörf og smærri fundi. Stóri
salurinn, Hamraborg, tekur 509
manns í sæti og Hamrar, sá minni,
rúmar allt að 200 manns. Auk þess er
möguleiki að nýta Naust, sem er sal-
ur staðsettur fyrir framan Hamra-
borg, undir ráðstefnur og fundi. Í
Hofi er einnig glæsileg aðstaða fyrir
hvers kyns veislur og hægt er að
stilla upp sölunum á marga vegu.“
Salirnir Hamraborg og Hamrar
eru byggðir og hannaðir með flutning
klassískrar tónlistar í huga, að sögn
Sólveigar. „Húsið er því einstakt þeg-
ar kemur að slíkum tónlistar-
flutningi. Jafnframt er hægt að
breyta hljómburði salanna, þannig að
þeir henti vel fyrir rafmagnaða tón-
list.“
Gott úr eldhúsinu
Sólveig bætir við að með breyting-
unum og flæðinu á milli hinna þriggja
sviða; viðburða-, tónlistar- og leiklist-
arsviðs, sé einnig hægt að halda
fundi, ráðstefnur og ýmsa viðburði í
Samkomuhúsinu, leikhúsi Akureyr-
inga. „Ef ráðstefnur eru mjög stórar,
og þörf er á fleiri sölum en Hof býr
yfir, bjóðum við afnot af Samkomu-
húsinu, þessu fallega og sjarmerandi
rúmlega aldargamla húsi. Hægt er að
streyma fundi í Hamraborg yfir í
Samkomuhúsið; það þjónar líka vel
sem tónleikasalur og tekur ríflega
200 manns í sæti.“
Í Hofi má finna annað og meira en
skrifstofur þeirra sem reka húsið;
þar er Akureyrarstofa með aðsetur,
en hún hefur menningar- og mark-
aðsmál bæjarins á sinni könnu, Upp-
lýsingamiðstöð ferðamanna, sem er
opin allt árið um kring, og Tónlist-
arskólinn á Akureyri, með um 500
nemendur. Í menningarhúsinu er
einnig rekin Hönnunarverslunin
Kista, þar sem seldur er varningur af
ýmsu tagi, fyrst og fremst eftir ís-
lenska hönnuði, að ógleymdum veit-
ingastaðnum 1862 Nordic Bistro,
sem sér um allar veitingar í Hofi.
„Samvinna og samstarf þessara
aðila er ómetanlegt fyrir húsið og
þann anda sem þar ríkir,“ segir Sól-
veig. „1862 Nordic Bistro annast veit-
ingar í tengslum við alla viðburði sem
fara fram í Hofi; þjónustar funda- og
ráðstefnuhaldara með kaffiveit-
ingum, mat og drykk, og sér um
veislur og móttökur af ýmsu tagi.
1862 Nordic Bistro rekur veitinga-
stað og kaffihús í Hofi á tveimur hæð-
um, sem er öllum opið. Staðurinn er
þekktur fyrir úrval af ekta dönskum
smørrebrød-réttum, fjölbreytta fisk-
rétti og bröns á sunnudögum. Svo er
alltaf góð hugmynd að kíkja þar við í
hádeginu og gæða sér á rétti dags-
ins.“
Önnur
upplifun
Menningarhúsið Hof skapar glæsilega
umgjörð utan um viðburði af ýmsum toga,
ásamt metnaðarfullri menningardagskrá
Hamraborg Stóri salurinn í Hofi er tilkomumikill og tekur 509 manns í sæti.
Hamrar Salurinn rúmar allt að 200 manns, hannaður fyrir sígilda tónlist.
Ljósmynd/Þórgnýr Dýrfjörð
Samstarfið Sólveig Elín Þórhallsdóttir, viðburðastjóri í Hofi: Menningarhúsið Hof, Leikfélag Akureyrar og Sinfón-
íuhljómsveit Norðurlands eru nú rekin sem ein heild, undir merkjum Menningarfélags Akureyrar, MAk; markmiðið
er hagræðing í rekstri og samnýting mannauðs, húsakosts, reynslu og þekkingar.
Hof Menningarhúsið á Akureyri var tekið í notkun í ágúst 2010.