Morgunblaðið - 12.11.2015, Page 72

Morgunblaðið - 12.11.2015, Page 72
72 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. NÓVEMBER 2015 Í nóvember 2004 fór ég til Mósam- bík til að gera doktorsrannsókn. Ferðinni var heitið til lítils þorps í miðju landi í Sambesíu-fylki, þar sem ég þekkti engan og þekkti lítið til. Á skrifstofu Þróunarsamvinnu- stofnunar Íslands var mér sagt að í höfuðstað fylkisins, Que- limane, byggi íslenskur maður sem héti Jóhann Þorsteinsson og að hann myndi örugglega taka mér vel ef ég hefði sam- band við hann. Það gerði ég og það var eins og ég væri að hringja í gamlan fjölskylduvin. Hann sótti mig á flugvöllinn og bauð mér strax gistingu hjá sér og Marcelinu konu sinni. Á því tæpa ári sem ég dvaldi á þessum slóðum má segja að þau hafi ættleitt mig. Ég bjó í um þriggja stunda fjarlægð í moldarkofa, hjá fá- tækri fjölskyldu og það var ómetanlegt að eiga athvarf hjá Jóa og Marcelinu þegar ég þurfti að skreppa til Quelimane til að útrétta og breyta um um- hverfi. Þá gekk ég að herbergi vísu í húsi þeirra hjóna og mat á veit- ingastaðnum hennar Marcelinu og ef á þurfti að halda keyrði Jói mig í veg fyrir rútuna til þorpsins þó að hún færi fyrir klukkan fimm á morgnana. Þetta var alls ekki sjálfgefið en þetta þótti þeim sjálfsagt og baklandið sem ég átti í þeim var mér mikils virði. Við Jói sátum löngum stundum á kvöldin og ræddum um lífið og tilveruna og hann gaf mér dýr- mæta innsýn í mósambískt samfélag. Sumt átti ég erfitt með að skilja og meðtaka og alltaf gat ég treyst því að hann hlustaði á mig og gæfi mér góð ráð. Jói hafði frá ýmsu að segja, hann var léttur og gam- ansamur og kallaði Quelimane „Kill a man“ vegna þess hversu drepleiðinlegur staður þetta gæti verið. Stundum var það ég sem hlustaði því starfið sem gæðastjóri í stórri rækjueldis- verksmiðju var ekki alltaf auð- velt. Jói var eldklár og stór- huga og vildi gera allt upp á 120 prósent sem er illmögulegt í fátæku Afríkuríki. Þá fannst honum gott að geta tuðað við annan Íslending. Síðar unnum við saman í þrjú ár hjá ÞSSÍ í Mapútó og þar var oft glatt á hjalla. Litli Jóhann Þorsteinsson ✝ Jóhann Þor-steinsson fædd- ist 11. mars 1948. Hann lést 13. októ- ber 2015. Minning- arathöfn fór fram 2. nóvember 2015. Íslendingahópur- inn hafði mikil samskipti og sterk vinatengsl mynd- uðust. Minningarn- ar streyma fram. Ferðin til Inhaca- eyju, pítsuát á Mundos, heim- sóknir til ömmu Marcelinu. Jói vildi allt fyr- ir alla gera og þeg- ar ég veiktist og fékk háan hita kom hann að vitja um mig seint um kvöld og dröslaði mér á sjúkrahús til að láta líta á mig. Þegar hann skrapp til Suður- Afríku báðu mósambískir sam- starfsmenn hans hann iðulega um að kaupa eitthvað sem þá vanhagaði um, allt frá kjöti til bíldekkja. Hann var vel liðinn af samstarfsfólki sínu enda tal- aði hann góða portúgölsku og hafði aðlagast mósambískri menningu. Þó var greinilegt að hann saknaði oft Íslands, sérstaklega barnanna sinna og að hann langaði til að kynnast barna- börnunum betur. Stórbrotnar manneskjur skilja eftir sig stórt skarð og það gerir Jói. Lampinn sem hann bjó til handa mér í afmæl- isgjöf úr mósambískri styttu verður áfram í miklu uppáhaldi, minnisvarði um einstakan vin. Fjölskyldu og vinum sendi ég innilegar samúðarkveðjur. Marta Einarsdóttir. Til vinar míns Jóa. Þá ég las snilldar söguskáld- verk Ólafs Jóhanns Ólafssonar, Höll minninganna, minntist ég örlaga æskuvinar míns Jóhanns Þorsteinssonar, þá var hann horfinn fjölskyldu sinni og vin- um til starfa á vegum Þróun- arsamvinnustofnunar í Mósam- bík og átti þaðan aldrei afturkvæmt. Hann hóf þar nýtt líf og virtist vilja loka á öll tengsl líkt og Kristján Bene- diktsson í bók Ólafs sem skrif- ar minningar sínar á blöð sem aldrei birtast. Ég vonaði alltaf að ég fengi bréf frá Mósambík sem svar við þeim sem ég sendi en ýmist var tölvusamband lé- legt eða tíminn naumur. Samt vissi ég að við vorum ennþá vinir. Við höfðum verið vinir allt frá því hittumst sjö ára gamlir í Eskihlíðarskóla og sátum hlið við hlið í kennslustofunni. Við bjuggum báðir í Barmahlíðinni, hann sterklegur og knár en ég feitabolla með skakkar tennur. Við slógumst fljótlega eftir fyrstu kynnin eins og við þyrft- um að þreifa hvor á öðrum en síðan aldrei meir. Leiðir okkar lágu saman alla bernskuna og alltaf sátum við hlið við hlið í skólastofunni. Heimili okkar voru ætíð opin hvor öðrum, vissulega misjöfn að gerð, en samt bæði til fyr- irmyndar sem slík. Pabbi Jóa gerði miklar kröf- ur til barnanna sinna, reglu- maður í hvívetna, en alltaf strangur á svip og í gjörðum. Mamma Jóa talaði kjarnyrt vestfirskt tungumál með áherslum. Ég held að Jói hafi ekki átt þá vináttu í foreldrum sínum sem ég í mínum. Það var meira gert af því að leika sér á mínu heimili og leitað á slóðir ævintýra. Jói var einstaklega frjór félagi, las Nýjustu tækni og vísindi og gerði tilraunir. Fyrstu kínverjarnir sem við bjuggum til kostuðu töluvert af brunasárum á barnshendur og sviðnar augabrúnir. Við stofn- uðum ásamt félaga okkar Davíð Oddssyni Jóa-félagið, nefnt eft- ir samnefndri vinsælli barna- bók þess tíma. Við stálum róf- um og jarðarberjum til þess eins að vita hversu langt við gætu hlaupið undan eigendun- um. Hann hafði þar yfirburði. Öskjuhlíðin var vettvangur æv- intýra. Þá veiddum við saman hvenær sem tækifæri gáfust. Leiðir skildi um tíma en síðar settumst við aftur saman í 6. bekk S í MR og urðum stúd- entar 1969. Við hófum síðan saman nám í líffræði, þá komnir með kær- ustur, ókum um á Pontiac 1955 og hlustuðum á Bob Dylan. Jói var minn vinur. Ég fór síðan í læknisfræði en hann hélt áfram í líffræði. Þeim Kollu fæddist andvana barn 1974, þess tíma áfallahjálp fólst í því að þegja. Báðir eign- uðumst við syni 1975 og báðir eignuðumst við tvær dætur. Nú tók við baráttan fyrir brauði og fjölskyldulífið. Þá við hittumst þess á milli, virtist aldrei vera tími til að slá þá strengi sem við þó höfðum strengt. Ferðinni var ætíð haldið ann- að. Ég hafði á tilfinningunni að innbyggður órói og óuppgerð tilvik réðu för. Ég hef oft reynt að skil- greina lífshlaup Jóa. Nú þegar fólki gefst tækifæri til að tak- ast á við áföll í lífinu, bæði úr bernsku og síðar með hjálp annarra gefur það tækifæri til eigin sátta. Jói ásamt seinni eiginkonu sinni dvaldi hjá okkur hjónum helgarlangt þá hann heimsótti Ísland í síðasta sinn fyrir sex árum. Þá vorum við báðir lífs- reyndir. Nú þegar jarðneskar leifar Jóa fá bólfestu hér, bið ég þess að Kollu, börnum hans, barna- börnum og systkinum auðnist gæfa til að höndla þá sorg sem hér hvílir yfir og hlúa hvert að öðru. Hvíl þú í friði vinur, Konráð Lúðvíksson. ✝ Þorsteinn Ás-geir Henrys- son fæddist í Reykjavík 15. maí 1953. Hann lést á háskólasjúkrahús- inu í Árósum í Danmörku 28. september 2015 eftir erfið veik- indi. Foreldrar Þor- steins voru Guð- rún Þorsteinsdóttir, húsfrú, f. 1913, d. 2008, og Henry A. Hálfdansson, loftskeytamaður og lengst af framkvæmda- stjóri Slysavarnafélags Ís- lands, f. 1904, d. 1972. Þor- steinn var yngstur sjö systkina, en þau eru: Ragnar Bergsteinn, f. 1928, d. 1987, hálfbróðir samfeðra, og alsystkinin Helga, f. 1931, Henry Þór, f. 1934, Haraldur, f. 1938, Hálfdan, f. 1943, og Hjördís, f. 1946. skólanám í Langholtsskólanum en 1974 lauk hann stúdents- prófi frá Menntaskólanum við Tjörnina. Hann innritaðist í lagadeild Háskóla Íslands en hvarf síðan frá því námi. Hann dvaldi eitt ár í Bandaríkjunum og stundaði sálfræðinám við Vanderbilt-háskólann í Nash- ville. Á skólaárum sínum vann Þorsteinn m.a. við sjómennsku á varðskipi og togara. Á árinu 1976 hóf hann störf hjá rann- sóknarlögreglunni í Reykjavík og starfaði þar og hjá Rannsóknarlögreglu ríkisins til ársins 1982. Sótti hann ým- is námskeið og fór námsferðir í tengslum við það starf. Á árinu 1982 fluttu þau hjón til Danmerkur og hafa lengst af síðan átt heimili sitt í Árósum. Starfaði Þorsteinn sem málm- smiður hjá Per Udsen Aircraft Industri í Grenå. Á árinu 1999 lenti hann í alvarlegu bílslysi þar sem hann hlaut mikil bak- meiðsli og var óvinnufær síð- an. Bálför Þorsteins fór fram í Danmörku en minning- arathöfn í Dómkirkjunni í Reykjavík. Þorsteinn kvæntist 1974 eft- irlifandi konu sinni, Láru Er- lingsdóttur, f. 17. febrúar 1954, en foreldrar hennar eru Ingibjörg Magnúsdóttir, f. 1932, d. 2009, og Erling S. Tómas- son, fv. skóla- stjóri, f. 1933. Sonur Þorsteins og Láru er Henry Ásgeir, viðskiptafræð- ingur, f. 9. júlí 1978, búsettur í Klitmøller, Danmörku. Kona hans er Veronica Thorsteins- son. Börn þeirra eru: Amy Elizabet, f. 2003, Laura Sophia, f. 2005, Lui Alexand- er, f. 2007, Theo Vilhelm, f. 2010. Þorsteinn ólst upp fyrstu fimm ár ævinnar í vesturbæ Reykjavíkur en síðan í Klepps- holtinu. Hann stundaði grunn- Þorsteinn Henrysson mágur minn hefur kvatt jarðvistina eftir rúmlega 62 ára dvöl. Þorsteinn og Lára, stóra systir mín, giftust árið 1974 þegar ég var fimm ára og er ekki fjarri lagi að halda því fram að ég hafi þekkt Þorstein frá því ég man eftir mér. Minn- ingarnar um Þorstein eru góð- ar og ávallt fylgdi því tilhlökk- un ef til stóð að hittast, enda vandfundinn maður með eins þægilega nærveru. Hann var mjög áhugasamur um allt það sem sneri að fólk- inu sínu, fólkið hans var bæði stórfjölskyldan og tengdafólkið. Hann talaði alla tíð vel um fólk- ið sitt og fór það ekkert á milli mála að hann var mjög stoltur af sínum frændgarði. Jákvæðni, eða sá eiginleiki að vera ánægður með sitt, án þess þó að monta sig, var hon- um í blóð borin. Hann átti til dæmis heima í best byggða húsinu í Hjortshøj enda byggt af múrarameistara og svo mætti lengi telja … Ég flutti til Danmerkur með litlu fjölskylduna mína árið 1995 þar sem ég stundaði nám. Þá fundum við Halla glöggt hvað við áttum gott bakland í Þorsteini og Láru. Þau vildu allt fyrir okkur gera og heimsóttum við þau mikið og nutum samvistanna við Hjortshøjfjölskylduna. Það hefur ávallt síðan verið gott að koma í heimsókn á Hundkær- vej 13 og alltaf nægt rými þó okkar fjölskylda hafi stækkað. Minningin um ljúfan mann lifir með okkur. Már og fjölskylda. Ástkær mágur minn, Þor- steinn Ásgeir Henrysson, sem var fæddur í þennan heim 15. maí 1953, lést fyrir aldur fram þann 28. september 2015 í Dan- mörku. Okkar kynni hófust þegar elsta systir mín, Lára, og hann hófu sitt tilhugalíf. Þorsteinn var efnilegur íþróttamaður og stundaði ýms- ar íþróttir og þótti mikið efni í körfubolta. Þorsteinn og Lára bjuggu í kjallaranum í foreldrahúsum að Kúrlandi 17 um nokkurra ára bil og þegar ég var 11-12 ára og kvaddi dyra var maður ávallt aufúsugestur. Við áttum góða tíma saman í hestunum. Í fyrstu vorum við með hest- ana í neðri Fák en síðar byggðu Þorsteinn og Lára sér hesthús í Víðidal og var það gert af myndarskap. Fyrstu hestarnir, sem við eignuðumst, voru frá Ketils- stöðum í Hvammssveit frá bænum þar sem amma og afi bjuggu og Lára og Þorsteinn voru þar tíðir gestir á þeim tíma. Amma og afi vildu að þau tækju við búinu eftir sinn dag. Úr því varð ekki, Þorsteinn hóf vinnu við rannsóknarlögreglu- störf en ég held að hann hefði notið sín betur í sveitinni. Síðar flytja þau Þorsteinn og Lára til Danmerkur með ungan son sinn, Henry, og bjuggu þau í Árósum allt til dauðadags Þorsteins. Ég flutti síðar sjálfur til Ár- ósa með mína fjölskyldu og endurnýjuðum við þá kynnin. Var það segin saga að í hvert sinn sem maður kom í heim- sókn inn í Hjortshøj var tekið á móti okkur öllum með hlýju og ástríki. Þorsteinn var mjög tilfinn- inganæmur og ljóðrænn. Hann var vel að sér í pólitík sem hann fylgdist grannt með, bæði á Íslandi og í Danmörku. Þorsteinn hafði sterka nær- veru, var barngóður, einlægur, hvers manns hugljúfi og höfð- ingi heim að sækja. Hann var mikill húmoristi og ávallt var stutt í gleðina. Dóttir mín, Ástríður, naut gestrisni Þorsteins og Láru þegar hún var búsett í Árósum þar sem hún dvaldi við nám í arkitektúr. Ég minnist Þorsteins með hlýju, eftirsjá og söknuði en veit að hann er í góðum hönd- um og á góðum stað á æðra til- verustigi. Ekkert fær dáið af eðli þínu, ekkert skyggt á ástúð þína. Sofðu í fangi ljóðs míns, sofðu í fangi lands þíns, glókollur, bláeygur, guðs barn. (Jóhannes úr Kötlum) Hvar hafa dagar lífs þíns lit sínum glatað, og ljóðin, er þutu um þitt blóð frá draumi til draums, hvar urðu þau veðrinu að bráð, ó barn, er þig hugðir borið með undursamleikans eigin þrotlausan brunn þér í brjósti, vinur? (Jóhann Jónsson) Magnús Ingi Erlingsson. Ég mun hefja þessi minn- ingaorð mín um Þorstein Hen- rysson á staðreyndum lífsins, en lífið hefur þrjár meginstoðir, eða upphaf, framhald og endi. Við Þorsteinn kynntumst fyrst í Langholtsskóla um sjö ára aldur, en þá vorum við ásamt á þriðja tug barna, nemendur Ei- ríks Stefánssonar heitins, en á einni af útfararskreytingum Þorsteins var kveðja og þakk- læti frá E.S. bekknum, hvað um það, þá vorum við og fleiri, sem ég nafngreini ekki, óttaleg- ir villingar, en það báru allir strákar virðingu fyrir heimili Þorsteins, pabbi hans kom oft í blöðum og útvarpi, en hann var forseti Slysavarnafélagsins, auk þess var sandblásið víkingaskip í gleri útihurðar á heimili Þor- steins. Það var nóg til að sjö og átta ára guttar báru óttablandna virðingu fyrir þessari hurð. Í fyrsta sinn, sem mér var boðið inn fyrir þessar víkingaskips- dyr, fór drjúgur tími í að skoða hvort skipið væri eins báðum megin, þetta eru minningar sem ekki gleymast, þó svo það sé rúm hálf öld liðin frá atvik- um þessum. Auðvitað þurfti Þorsteinn að skáka okkur öllum í kvenna- málum, en hann nældi í dóttur skólastjórans, Láru Erlings- dóttur, en Lára stóð með Þor- steini í gegn um súrt og sætt, allt þar til yfir lauk, en þau eignuðust einn son, sem hefur gefið þeim fjögur barnabörn, en þau eru öll búsett í Dan- mörku, þar sem Þorsteinn og Lára hafa búið um árabil. Hópurinn úr Langholtsskóla sem Þorsteinn tilheyrði hefur víða vakið athygli, en þetta fólk sem hittist fyrir 55 árum á gúmmískóm og í gammósíum, heldur enn sambandi, við strák- arnir reynum að hittast í há- deginu einu sinni í mánuði og kvenfólkið hittist líka, en þar sem höfundur tilheyrir ekki þeim hóp, veit hann ekki um stund né stað þeirra, en við sáum Þorstein síðast í gleðskap hjá Guðmundi Jónssyni arki- tekt, sem tilheyrir þessu góða hóp, en sennilega eru 4-5 ár síðan. Í gegnum fésbókina, en sá tjáningarmáti virtist ekki henta Þorsteini, fengum við fréttir af honum í gegnum Láru eigin- konu hans eða Erling Tómas- son tengdaföður hans. Í minn- ingarathöfn um Þorstein sem fór fram í Dómkirkjunni 20. október sl. vorum við 10 skóla- systkin hans úr Langholtsskóla og óskum við Þorsteini velfarn- aðar á þeirri braut sem hann hefur nú lagt út á. Megi hinn hæsti höfuðsmiður halda verndarhendi sinni yfir Láru, syni Þorsteins, afabörn- um og öldruðum tengdaföður, Erling Tómassyni. Fyrir hönd E.S.-bekkjarins, Sigurjón Símonarson Þorsteinn Á. Henrysson Við, starfsfólk velferðarráðuneyt- isins, viljum með nokkrum orðum minnast Guðbjarts Hannessonar fyrrverandi ráð- herra og þá fyrst og fremst lýsa þakklæti okkar fyrir að hafa átt með honum samleið um nokkurt skeið sem var bæði ánægjulegt og lærdómsríkt. Guðbjartur Hannesson ✝ GuðbjarturHannesson fæddist 3. júní 1950. Hann lést 23. október 2015. Útför Guðbjarts fór fram 30. október 2015. Orð verða óhjá- kvæmilega fátæk- leg í samhengi sem þessu þegar margir hafa misst mikið og það á svo sannar- lega við hér. Guð- bjartur var kunnur af störfum sínum, sem skólamaður um áratuga skeið, sem sveitarstjórn- armaður, þingmað- ur og ráðherra og ótalin eru þá margvísleg önnur félagsstörf sem ekki verða rakin hér. Alls staðar virðist Guðbjartur hafa getið sér orð sem maður samstarfs og sátta en jafnframt fyrir að vera traustur, einbeitt- ur og agaður í þeim verkum sem hann tók sér fyrir hendur. Við, sem unnum undir stjórn Guðbjarts í velferðarráðuneyt- inu – og sum okkar áður í þeim ráðuneytum sem síðar voru sameinuð, þ.e. heilbrigðisráðu- neyti og félags- og trygginga- málaráðuneyti, kynntumst mannkostum Guðbjarts og vit- um af eigin raun að ekkert hef- ur verið ofsagt í þeim efnum. Við minnumst hans með hlýju og söknuði. Víst er að orðstír deyr aldrei þeim er sér góðan getur. Margir hafa misst mikið en mestur er missir nánustu fjöl- skyldu, ættingja og vina. Við vottum fjölskyldu Guðbjarts okkar innilegustu samúð á erf- iðum tímum. Fyrir hönd starfsfólks vel- ferðarráðuneytisins, Anna Lilja Gunnarsdóttir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.