Morgunblaðið - 12.11.2015, Qupperneq 85

Morgunblaðið - 12.11.2015, Qupperneq 85
MENNING 85 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. NÓVEMBER 2015 Hljómsveitin Risaeðlan heldur tónleika á tónlistarhá- tíðinni Aldrei fór ég suður á Ísafirði um páskana á næsta ári. Eru það mikil tíðindi fyrir aðdáendur sveit- arinnar sem var upp á sitt besta á tíunda áratugnum og naut mikilla vinsælda. Risaeðlan er skipuð Möggu Stínu, söngkonu og fiðluleikara; Halldóru Geirharðsdóttur, söngkonu og saxófónleikara; Ívari Bongó Ragnarssyni bassaleik- ara, Þórarni Kristjánssyni trommara og Sigurði Guð- mundssyni gítarleikara. Hljómsveitin var stofnuð árið 1984 og gaf út plötuna Fame and Fossils árið 1990. Risaeðlan starfaði með hléum næstu árin og gaf út plötuna Efta! árið 1996 og lagði upp laupana skömmu síðar. Allir liðsmenn sveitarinnar munu koma saman um páskana á Ísafirði og segir í tilkynningu að það sé mikil tilhlökkun í framvarðasveit Aldrei fór ég suður vegna endurkomu Risaeðlunnar og jafnframt þakk- læti í garð hljómsveitarinnar fyrir að taka fyrirpurn skipuleggjenda um tónleikahald jafn vel og raun varð á. Aldrei fór ég suður verður haldin í þrettánda sinn á næsta ári og hefur hún stækkað á undanförnum árum og teygt anga sína um sveitarfélagið, þar sem tónlist og fjölbreyttir viðburðir hafa sett mikinn svip á bæ- inn. Aðaldagskráin stendur yfir í tvo daga, föstudag- inn langa og laugardag, en hliðardagskrá fer fram frá miðvikudegi til sunnudags. Auk Risaeðlunnar munu koma fram á hátíðinni rappsveitin Úlfur Úlfur, Agent Fresco, Strigaskór nr. 42 og ísfirska sveitin Mamma Hestur sem hefur ekki haldið tónleika í mörg ár. Fleiri tónlistarmenn og hljómsveitir munu bætast á lista flytjenda er nær dregur hátíð. Risaeðlan Hljómsveitin í árdaga. Risaeðlan gaf út plötuna Efta! árið 1996 og hélt eftirminnilega útgáfutónleika vegna hennar sama ár. Risaeðlan snýr aftur Dúettinn FUNI heldur tónleika í menningarhúsinu Mengi í kvöld og hefjast þeir kl. 21. Dúettinn skipa Bára Grímsdóttir og Chris Foster og hófu þau samstarf árið 2001. Upp frá því hafa þau keppst við að blása lífi í íslenska þjóðlagatónlist sem hefur leynst í gömlum upptökum og lítt þekkt- um bókum og handritum, auk þess sem þau hafa bætt við nýjum lögum í þjóðlegum stíl, að því er fram kemur í tilkynningu. FUNI flytur íslensk og ensk þjóðlög og syngja Bára og Foster bæði og leika á gítar, kantele, langspil og íslenska fiðlu. Flest laganna voru sungin án nokkurs undirleiks áður fyrr en FUNI bætir hljóðfæraleiknum við og notar gítar, kantele og hammer dulcimer, auk gömlu íslensku hljóðfæranna, langspils og ís- lenskrar fiðlu. Tvíeyki Bára Grímsdóttir og Chris Foster eru dúettinn FUNI. FUNI held- ur tónleika í Mengi Hin kunni lettneski fiðluleikari Baiba Skride leikur fiðlukonsert Beethovens með Sinfóníuhljómsveit Íslands á tónleikum í Hörpu í kvöld. Skride hreppti fyrstu verðlaun í Queen Elizabeth-keppninni árið 2001 og í tímaritinu The Strad var hún þá sögð „einn mest spennandi fiðluleikari sem komið hefur fram á sjónarsviðið síðan Itzhak Perlman hóf feril sinn“. Hún hefur hljóðritað fjölda geisladiska sem hlotið hafa alþjóðleg verðlaun. Hún leikur á Stradivarius-fiðlu Dideon Kremer. Hinn norski Eivind Aadland stjórnar hljómsveitinni og á efnis- skránni eru einnig þrjú hljóm- sveitarverk eftir Ravel. Vinsæl Hin lettneska Baiba Skride hefur hlotið mikið lof fyrir leik sinn. Skride leikur kon- sert Beethovens Fleiri spennandiuppskriftir á 1 væn lúka spínat 10-12 möndlur ferskminta eftir smekk 2 dl Floridana Túrmerik safi örlítil skvetta af límónusafa Öllu blandað vel saman. Gott er að leggja möndlurnar í bleyti áður. TÚRMERIK HRISTINGUR SUÐRÆNNOGGRÆNN oridana.is og fl heilsu Uppskrift: Heilsudrykkir Hildar
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.