Morgunblaðið - 03.12.2015, Side 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. DESEMBER 2015
Staksteinar létu áhyggjur siða-vandra vegna Vigdísar Hauks-
dóttur til sín taka á dögunum. Vef-
Þjóðviljinn sér málið í gegnum sín
gleraugu:
Í raunþarf
enginn
eyðslu-
seggur að óttast fjárlaganefnd Vig-
dísar Hauksdóttur. Fjárlaganefnd-
in gefst alltaf upp.
Styrkveitingar eru ekki skornarniður. Framlög eru ekki skorin
niður. Raunverulegur nið-
urskurður hjá ríkinu er næstum
enginn.
Rétt eins og skattalækkanir erulitlar og hægar.
Nýjasta uppgjöfin var að nú ætl-ar fjárlaganefnd ekki að láta
afturkalla aukafjárveitingu til
Ríkisútvarpsins, þrátt fyrir að
nefndin segi að Ríkisútvarpið hafi
ekki staðið við þau skilyrði sem sett
voru fyrir fjárveitingunni.
Nefndin segir að þetta verðigert vegna þrýstings innan úr
ríkisstjórninni og hljóta að verða
gefnar mjög nákvæmar skýringar á
því.
Staðreyndin er sú að enginn út-gjaldasinni þarf að óttast Vig-
dísi Hauksdóttur og fjárlaga-
nefndina hennar. Hún heldur
engum í ótta. Hún sker ekkert nið-
ur.
Og eftir rúmt ár lýkur kjörtíma-bilinu. En vegna stóryrðanna í
Vigdísi þá heldur sjálfsagt fullt af
fólki að ríkisstjórnin sé í miklum
niðurskurði. En hún er það ekki.
Ríkisstjórnin sker ekkert niður,
nema baráttugleði kjósenda sinna.
Hin hlið peningsins
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 2.12., kl. 18.00
Reykjavík -2 léttskýjað
Bolungarvík -2 skýjað
Akureyri 0 skýjað
Nuuk -7 skafrenningur
Þórshöfn 2 skýjað
Ósló 0 frostrigning
Kaupmannahöfn 8 skýjað
Stokkhólmur 1 léttskýjað
Helsinki -2 léttskýjað
Lúxemborg 7 skýjað
Brussel 10 léttskýjað
Dublin 7 skýjað
Glasgow 6 upplýsingar bárust ek
London 12 léttskýjað
París 10 alskýjað
Amsterdam 11 léttskýjað
Hamborg 10 heiðskírt
Berlín 10 alskýjað
Vín 11 skýjað
Moskva 0 alskýjað
Algarve 17 heiðskírt
Madríd 13 heiðskírt
Barcelona 15 léttskýjað
Mallorca 16 léttskýjað
Róm 12 heiðskírt
Aþena 16 heiðskírt
Winnipeg -11 þoka
Montreal 2 skúrir
New York 10 alskýjað
Chicago 0 alskýjað
Orlando 26 léttskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
3. desember Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 10:51 15:45
ÍSAFJÖRÐUR 11:28 15:18
SIGLUFJÖRÐUR 11:12 14:59
DJÚPIVOGUR 10:28 15:07
Dræm þátttaka
hefur verið í raf-
rænni íbúakosn-
ingu í Reykja-
nesbæ um
deiliskipulag í
Helguvík. Í gær-
morgun höfðu
innan við 600
manns tekið þátt
en á kjörskrá eru
10.722 íbúar.
Kjörsóknin var því innan við 6%.
Rúmlega 25% kosningabærra
íbúa Reykjanesbæjar, rúmlega 2.800
manns, óskuðu eftir íbúakosningu
um deiliskipulag sem er grundvöllur
samninga bæjarins við Thorsil um
byggingu kísilvers. Ekki einu sinni
þeir hafa skilað sér, en kosningin
stendur raunar þangað til klukkan
tvö í nótt, aðfaranótt föstudags.
Íbúakosningin er ekki bindandi
fyrir bæjarstjórn og hafa bæj-
arfulltrúar lýst því yfir að þeir hygð-
ust ekki breyta um skoðun. Kjartan
Már Kjartansson bæjarstjóri hvetur
alla bæjarbúa, í pistli á heimasíðu
bæjarins, til að greiða atkvæði því
mikilvægt sé að fá skýra niðurstöðu í
kosninguna. helgi@mbl.is
Dræm
þátttaka í
kosningu
Greidd atkvæði um
skipulag í Helguvík
Kjartan Már
Kjartansson
Boðið verður upp á hópferð á tvo
fyrstu landsleiki Íslands á Evr-
ópumótinu í handknattleik. Mótið
hefst föstudaginn 15. janúar og fer
riðiðll Íslands fram í borginni Kato-
wice í Póllandi. Þann sama dag leik-
ur Ísland við Noreg klukkan 18. Að
sögn Einars Þorvarðarsonar, fram-
kvæmdastjóra HSÍ, verður einnig
horft á leik Íslands og Hvíta-
Rússlands sem fram fer á sunnudeg-
inum. Katowice er einungis um 80
kílómetra frá hinni víðfrægu borg,
Krakow. „Það verður lent upp úr há-
deginu á föstudaginn. Svo er frídag-
ur á laugardeginum og þá getur fólk
farið til Krakow eða skoðað Auswich
til að mynda,“ segir Einar. Auk
leikja Íslands getur fólk farið á leiki
Króatíu og Hvíta-Rússlands á föstu-
deginum og Noregs og Krótatíu á
sunnudeginum en flogið er til baka á
sunnudeginum. „Við fórum í sam-
bærilega ferð til Álaborgar fyrir
tveimur árum og hún tókst mjög vel.
Að sjálfsögðu er það þannig að þetta
helst í hendur við þátttöku í ferðina
hvort farið verður,“ segir Einar.
Farið verður með leiguvél og í boði
eru 180 sæti fyrir handboltaþyrsta
Íslendinga. Leikir liðsins verða jafn-
framt í beinni útsendingu á RÚV.
vidar@mbl.is
Hópferð á EM í Póllandi
Munu fljúga til Katowice í janúar Góð þátttaka fyrir tveimur árum
Morgunblaðið/Golli
Kempur Mikil spenna er fyrir EM.