Morgunblaðið - 03.12.2015, Side 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. DESEMBER 2015
Laufey Rún Ketilsdóttir
laufey@mbl.is
„Þetta er nýtt á Íslandi en svona
hefur aldrei verið haldið hér,“ segir
Joana de Matos, portúgölsk ung
kona sem hefur dvalið hér á landi í
um níu ár, en hún heldur verk-
smiðju- og útsölumarkað um helgina
með innfluttar Kähler-keramikvörur
frá Portúgal. „Við erum með svo
flott keramik í Portúgal. Það kom
upp tækifæri til að flytja þessar
vörur inn frá verksmiðjunni og bjóða
upp á mjög lágt verð svo allir geti
haft aðgang að svona flottum
vörum,“ segir Joana.
Markaðurinn er haldinn í gamla
húsnæði Sports Direct á Smáratorgi
eða við hliðina á Bónus-versluninni.
Opið verður frá kl. 11-18 frá föstu-
degi til sunnudags en á laugardag
verður opið til kl. 20.
Um 50-80% afsláttur verður gef-
inn af markaðsvirði varanna. „Þá
geturðu eignast til dæmis tíu diska í
einu í stað þess að bíða í tíu ár og
safna alltaf einum í einu.“
„Þetta reddast“
Khäler-vörurnar hafa verið vin-
sælar hér á landi en það sem gerir
Joönu kleift að bjóða upp á svo lágt
verð er að vörurnar eru í svoköll-
uðum öðrum gæðaflokki sem þýðir
að þær koma án umbúða. Einhver
hluti varanna er þó í fyrsta gæða-
flokki og því með umbúðum.
„Þetta reddast,“ segir hún að-
spurð um væntingar sínar um gengi
markaðarins. „Ég er búin að vera
það lengi á Íslandi að ég er búin að
tileinka mér þetta hugarfar,“ segir
hún hlæjandi en það hafi vissulega
verið yfirþyrmandi að ráðast í þetta
verkefni með alla áhættuna á sínum
herðum. „Ég flutti mömmu líka inn
frá Portúgal og hún er á fullu með
mér ásamt manninum mínum og
góðum vinum.“
Áður starfaði hún í ferðaþjónust-
unni en langaði að breyta til og
tengja vinnu sína meira við Portú-
gal. „Maður byrjar alltaf einhvers
staðar og svo sér maður hvernig
þetta þróast,“ segir hún um framtíð-
aráætlanir við innflutning.
Vildi hlæja með Íslendingum
Joana kom fyrst til Íslands árið
2006 þegar hún sótti skiptinám. Hún
vann á Egilsstöðum og í Borgarfirði
eystri meðan á dvöl hennar stóð og
kynntist í kjölfarið manninum sínum
sem hún er gift í dag. Þau eiga eina
stúlku og annað barn á leiðinni.
„Það var ekki einfalt að læra ís-
lenskuna en ég er rosalega forvitin
og var mjög æst í að vita hvað fólk
var að segja í kringum mig – sér-
staklega þegar það sagði brandara
og ég gat ekki hlegið með,“ segir
hún á nánast lýtalausri íslensku.
Færni hennar í málinu hafi náðst
með mikilli elju og áhuga en hún
sótti öll námskeið sem hún komst í
ásamt því að tengdafjölskylda henn-
ar veitti góða hjálp við að leiðrétta.
„Maður má ekki vera feiminn við að
tala vitlaust, þetta kemur allt á end-
anum.“
Að koma inn í íslenskt samfélag
kallaði líka á ýmsar breytingar. „Ég
þurfti til dæmis að læra að hætta að
kyssa fólk alltaf en við kyssum alla í
Portúgal og þetta var bara vand-
ræðalegt hér,“ segir hún létt í
bragði. En þó allir hafi virst lokaðir í
upphafi þá hafi hún uppgötvað fljótt
hvað Íslendingar séu góðir og til-
búnir að hjálpa þegar þess þarf. „Ég
er mjög ánægð að vera hér.“
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Frumkvæði Joana de Matos heldur útsölu- og verksmiðjumarkað á Smáratorgi um helgina þar sem hún býður upp á
Kähler-vörur á lágu verði en þær eru í 2. flokki frá verksmiðjunni. Vörurnar eru frá heimalandi hennar, Portúgal.
Hræðist ekki óvissuna
Joana de Matos flytur inn keramikvörur frá Portúgal
Vinsælt Í Portúgal er framleitt
mikið af keramikvörum.
„Við höfum ekki áður farið í svona
framtak og okkur finnst þetta frá-
bært. Þetta fer beint í jólin fyrir fólk,“
segir Anna H. Pétursdóttir, formaður
Mæðrastyrksnefndar í Reykjavík,
um söfnunarátak Olís og ÓB bensín-
stöðvanna til handa Mæðrastyrks-
nefndinni.
Föstudaginn 4. desember renna
fimm krónur af hverju lítra sem dælt
er hjá bensínstöðvum Olís og ÓB
óskertir til styrktar Mæðrastyrks-
nefndar Reykjavíkur sem sér um
matarúthlutanir fyrir fólk um jólin.
„Við vonum að fólk verði duglegt að
fylla tankana og hjálpi þannig okkur
að hjálpa öðrum,“ segir Anna og er af-
ar ánægð með framtak Olís til styrkt-
ar þeim sem þurfa á aðstoð að halda.
Um tvö þúsund umsækjendur
„Fólkið sem til okkar kemur og
óskar eftir mataraðstoð um jólin er
óskaplega þakklátt og myndi ekki
geta haldið nein jól nema út af þessu,“
segir Anna en hátt í tvö þúsund
manns hafa nú sótt um mataraðstoð
hjá Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur.
„Á bak við hvern umsækjanda eru
fleiri, fjölskyldur og aðrir sem njóta
einnig góðs af aðstoðinni.“
Lokað hefur verið fyrir umsóknir
og nú þarf að safna nægu fé til að geta
annað eftirspurninni.
Alltaf er hægt að veita fjárstuðning
til Mæðrastyrksnefndarinnar í
Reykjavík í gegnum reikningsnúmer-
ið 101-26-35021 og kt. 470269-1119.
„Við krossum fingurna og vonum að
okkur takist þetta.“
Námsfólk bætist í hópinn
Mikið er um sjálfboðaliða sem
bjóða fram krafta sína við úthlutunina
fyrir jólin en í ár fer hún fram dagana
17., 18., 21. og 22. desember í Hátúni
12. Einstaklingum og fjölskyldum
verður raðað niður á daga þannig að
álaginu sé dreift og starfsfólkinu gert
auðveldara um við úthlutunina.
„Okkur finnst eins og það beri
meira á öldruðum, öryrkjum og
námsfólki,“ segir hún um umsækj-
endurna í ár. Námsfólkið hafi ekki áð-
ur verið áberandi í hópi þeirra sem
sækja aðstoðina fyrir jólin en það hafi
breyst.
„Gefum og gleðjum,“ segir Anna að
lokum og vonast eftir góðri þátttöku í
söfnuninni á morgun. laufey@mbl.is
Átak Hægt er að leggja Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur lið með því að dæla
á bíl sinn hjá Olís og ÓB á morgun en 5 kr. af hverjum lítra renna til þeirra.
Hjálpa okkur að
hjálpa öðrum
Safnað til styrktar mataraðstoð
Mæðrastyrksnefndar Reykjavíkur
Mikið úrval af fallegum jólagjöfum
www.facebook.com/spennandi - Opið: Mán-fim: 12-18 - fös: 12-16
Eikjuvogur 29 - 104 Rvk. S:694-7911
Púði kr. 7.900.-
(dúnfylling)
Púði kr. 7.900.-
(dúnfylling)
Karafla kr. 7.730.-
(silfurhúðuð - 0,5l.)
Servíettuhringir kr. 6.890.-
(silfurhúðaðir 4 í pk.)
Luktir - nokkrar gerðir
verð frá kr. 13.900.-
Armbönd frá kr. 11.700.-
(hreind.leður + silfurhúðað)Treflar frá kr. 9.800.-
(2 gerðir margir litir)
Grifflur kr. 7.980.-
(Nokkrir litir)
Skeifan 8 | 108 Reykjavík | sími 517 6460 | www.belladonna.is
Vertu þú sjálf, líka um jólin