Morgunblaðið - 03.12.2015, Síða 18
18 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. DESEMBER 2015
LAUGAVEGI 5 - SÍMI 551 3383
Henry London úr
BAKSVIÐ
Atli Vigfússon
Laxamýri
„Við byrjuðum hér í Árbót með
Galloway-gripi í litlum mæli árið
1982, en fórum árið 1993 alfarið út
í Galloway þegar við keyptu hóp af
þessu kyni frá Sólheimabúinu í
Skagafirði. Það er fegurðin, holda-
farið og kjötgæðin á þessum
skepnum sem heilluðu mig og þess
vegna fór ég út í að fá mér þennan
stofn.“
Þetta segir Hákon Gunnarsson
bóndi í Árbót í Aðaldal sem hefur
um langt árabil búið með holda-
gripi ásamt konu sinni Snæfríði
Njálsdóttur og sonum sínum þrem-
ur.
„Ég sá að það hentaði mér ekki
endilega vel að búa bara með
sauðfé og mér fannst Galloway-
kynið passa mjög vel á harðbýlum
svæðum eins og t.d. í Þingeyj-
arsýslu. Galloway stofninn er hæg-
vaxta en hefur mikið kulda- og
veðurþol sem hin holdakynin hafa
ekki eins mikið af. Þessar skepnur
eru með mikinn og þéttan feld og
þeim hentar mjög vel að liggja við
opið, segir Hákon sem hefur mjög
mikla ánægju af þessari búgrein.
Hafa nýlega keypt
Hríseyjarstofninn
Það er í mörg horn að líta á Ár-
bótarbúinu, en einn sonur þeirra
hjóna, Viðar Njáll, er þeirra hægri
hönd í búskapnum. Fjósið í Árbót
er fullt og fjósið á Bergi í Aðaldal
líka sem er í u.þ.b. 10 km. fjar-
lægð, en sú jörð er líka í einnig í
eigu ábúenda í Árbót. Gripirnir eru
orðir 215, en þeim fjölgaði nýlega
þegar Árbótarbúið keypti síðustu
holdakýrnar og kálfana í Hrísey.
Þetta eru alls 49 skepnur og voru
þær fluttar með skipi í land og síð-
an í Árbót. Þar af eru 23 kelfdar
Galloway-kýr sem eiga að bera í
apríl. Meðal þeirra er líklega elsta
kýr landsins þ.e. Prímadonna sem
verður 22 ára nú í desember. Hún
gengur með sinn 17. kálf og ekki
að sjá annað en að hún sé heilbrigð
og hraust. Þessi hópur virðist una
hag sínum vel, kann vel við sig úti
og allar kýrnar eru mjög gæfar.
Ástæðuna fyrir kaupunum segja
þeir feðgar vera þá að þeir vilji
nýta betur fjárfestingar í bygg-
ingum og vélum auk þess að geta
orðið við eftirspurn frá kjötvinnslu-
fyrirtækinu Viðbót á Húsavík sem
hefur mikinn markað fyrir kjöt af
Galloway. „Þetta þýðir meiri velta
og meira kjöt segir Hákon, sem
segir að nóg kjöt þurfi að vera til
fyrir ferðamannatímann. Mjög góð
sala sé t.d. í nautakjöti frá því í
apríl og fram eftir sumri en oft sé
daufari tími seint á haustin og upp
úr áramótum.
Nýtt erfðaefni
mun efla búgreinina
Það hefur á vissan hátt birt til í
holdanautaræktinni og þeir Hákon
og Viðar Njáll eru bjartsýnir á
framtíðina. Hákon segir að á viss-
um tímapunkti hafi þessi búgrein
verið komin í ákveðið þrot hvað
varðar skyldleikaræktun en nú sé
Alþingi búið að samþykkja inn-
flutning á erfðaefni. Um leið og
bændur sjái fram á það, aukist
bjartsýnin, þó svo að framkvæmdin
sé ekki endanlega ljós. Búast megi
við reglugerð þar að lútandi í jan-
úar nk. Þeir feðgar eru sammála
um að til þess að viðhalda góðum
og vel byggðum gripum sé lífs-
spursmál að blanda núverandi
stofni við óskylda einstaklinga.
„Við komum alltaf til með að
þurfa að borða, segir Hákon og
brosir, en bætir því við að það
þurfi að hafa almennilegt nautakjöt
í landinu til þess að vera í takt við
eftirspurn. Hann og Viðar Njáll
sonur hans horfa björtum augum á
þá tíma sem framundan eru og
kaupin á Hríseyjargripunum í sl.
viku eru merki um stórhug í holda-
nautarækt.
Holdagripir með mikil kjötgæði
215 holdanautgripir af Galloway-kyni í Aðaldal Prímadonna, elsta kýr landsins, sem er 22 ára,
gengur með sinn 17. kálf Nýtt erfðaefni mun efla holdanautaræktina hér á landi
Morgunblaðið/Atli Vigfússon
Feðgar Viðar Njáll Hákonarson og Hákon Gunnarsson í Árbót hjá Galloway-kúnum sem nýlega komu úr Hrísey.
Fiskeldisstöðin Ísþór hefur hug á að
auka starfsemina enn frekar á næstu
árum. Í undirbúningi er umsókn um
rekstrar- og starfsleyfi fyrir tvöföld-
un stöðvarinnar. Jafnframt hefur
verið sótt um stækkun á lóð fyrir-
tækisins í Þorlákshöfn í framtíðinni.
Ísþór er seiðaeldisstöð sem sér
Fjarðalaxi og Fiskeldi Austfjarða
fyrir seiðum til áframeldis í sjókví-
um. Er hún langstærsta seiðaeldis-
stöð landsins. Fjarðalax er með mikil
umsvif í fiskeldi á Vestfjörðum og er
með áform um mikla aukningu. Fisk-
eldi Austfjarða er í uppbyggingu á
Austfjörðum, meðal annars í Beru-
firði.
Ísþór hefur nýlega lokið stækkun
seiðastöðvarinnar og hefur nú að-
stöðu til að framleiða 400-600 tonn af
laxi. Í pípunum eru um þrjár millj-
ónir seiða sem sett verða út á næsta
ári.
Sjókvíaeldið að aukast
„Það er þróunin að stöðvarnar eru
almennt að stækka. Þetta ferli tekur
svo langan tíma að ákveðið var að
sækja um stækkun seiðastöðvarinn-
ar í tæka tíð,“ segir Jónatan Þórð-
arson, eldisstjóri Ísþórs. Reiknar
hann með að sótt verði um heimild til
meira en tvöföldunar framleiðslunn-
ar. Hún verði um 1200 tonn af fiski
sem svarar til um 8 milljóna seiða.
Jónatan segir að slík starfsemi rúm-
ist innan núverandi skipulags.
Stjórnendur Ísþórs eru farnir að
hugsa til enn lengri framtíðar með
því að sækja um stækkun lóðar sinn-
ar í Þorlákshöfn. Bæjarstjórn Ölfuss
hefur tekið vel í erindi fyrirtækisins.
Við úthlutun á lóðinni þarf Ísþór að
vinna deiliskipulag fyrir svæðið.
helgi@mbl.is
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Eldi Seiðin frá Ísþór fara í sjókvíar
á Vestfjörðum og Austfjörðum.
Ísþór undirbýr tvö-
földun seiðastöðvar
Fylgir eftir þróun í sjókvíaeldi
Þegar vorar verður mjög líflegt í
fjósinu í Árbót en þá bera allar
holdakýrnar og flestar bera úti.
Burðurinn gengur almennt vel og
næsta vor er von á um það bil 70
kálfum. Það þarf mikinn heyskap
handa öllum þessum naut-
gripum en á undanförnum árum
hefur mikið verið ræktað upp.
Endurræktunarmöguleikar eru
miklir á hinum svokölluðu
Hvammsheiðartúnum sem eru
alls um 63 ha. og eru þau að-
allega í Árbótarlandi. Heynotkun
er auðvitað mikil, en það er gam-
an að gefa gripunum því Gal-
loway-gripir hafa mikla heylyst
og éta allt sem þeim er gefið.
Holdagripir
þurfa mikið hey
LÍFLEGT Í FJÓSINU
Elsta kýr landsins Holdakýrin Prímadonna er 22 ára gömul og tæplega er
vitað um eldri kú hér á landi. Hún gengur með sinn 17. kálf.