Morgunblaðið - 03.12.2015, Page 22
22 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. DESEMBER 2015
Gjafakort á bangsa
í Bangsasmiðjunni
og klukkustunda tímakort
Verð 5.990
www.smarativoli.is / Sími 534 1900 / Smáralind
SKEMMTUN FYRIR ALLA!
Opið:
Mánud. til fimmtud. kl. 14-22
Föstud. kl. 14 - 23
Laugard. kl. 12 - 23
Sunnud. kl.13 - 22
AF VETTVANGI
Sunna Ósk Logadóttir
sunna@mbl.is
Þoka liggur yfir Bekaa-dalnum í
Líbanon fram eftir morgni. Þegar
léttir til koma fjöll í ljós í fjarska. Þá
horfa þúsundir flóttamanna í daln-
um dreymnar til heimalandsins,
Sýrlands, og minningarnar hrannast
upp. Sumt vilja þeir muna, öðru
gleyma. Flestir þrá þó ekkert heitar
en að geta snúið aftur. En það verð-
ur ekki í bráð. Stríðið geisar enn og
árunum í Líbanon fjölgar.
„Ég man vel eftir Sýrlandi, öllu
þar. Frændi minn bjó við hliðina á
mér. Hann passaði mig og við lékum
okkur saman. Ég hugsa oft um Sýr-
land. Og ég vildi óska þess að ég
gæti farið þangað aftur,“ segir
Walid, átta ára, og augnaráðið verð-
ur fjarrænt um stund. Nú gengur
hann í skóla í Líbanon. Hans stærsti
draumur er að eignast reiðhjól. „Ég
ætla mér að ná langt,“ segir hann
ákveðinn um önnur framtíðarplön.
„Því ég ætla að útvega mömmu
minni allt sem hún þarfnast.“
Veturinn nálgast
Í Sýrlandi bjó Walid í fallegu húsi,
með fallegum garði. Síðan eru liðin
nokkur ár og nú býr hann ásamt for-
eldrum sínum, bróður og systur, í
litlu tjaldi í Bekaa-dalnum. Á sumrin
er hitinn steikjandi og þá verður
óbærilega heitt í tjöldunum. Á vet-
urna er ískalt, það getur rignt mikið
og þá flæðir inn í tjöldin. Moldargöt-
urnar á milli tjaldanna breytast í
forarsvað á augabragði. Síðasti vet-
ur var óvenjuharður. Þá voru dæmi
um að börn frysu í hel. „Nú er vet-
urinn að koma. Hann verður erf-
iður,“ segir Shama sem átti gott líf í
Sýrlandi þar til fyrir þremur árum
er hún flúði ásamt eiginmanni og
tveimur börnum. Amena er í sömu
sporum. Hún hefur einnig verið í
Líbanon í þrjú ár með börnunum
sínum. Hún kvíðir vetrinum. „Vet-
urnir eru slæmir, mjög slæmir.
Vatnið kemur inn af götunni inn í
tjaldið, heimili mitt. Nú erum við að
gera varnargarð svo að vatnið kom-
ist ekki inn í vetur. Og það verður
svo kalt,“ segir hún og stynur þung-
an. Til að ylja sér kveikir fólkið á
olíuofnum eða upp í eldstæðunum.
Það hefur komið fyrir að eldur hafi
læst sig í tjalddúkinn og heilu fjöl-
skyldurnar brunnið inni.
Engar flóttamannabúðir
Líbanir hafa verið einstaklega
gestrisnir þegar kemur að flóttafólki
frá Sýrlandi og smám saman veitt
því aðgengi að lágmarks heilsugæslu
og skólum. En innviðir þessa litla
lands voru veikir fyrir og hafa nú
veikst enn frekar. Að þolmörkum er
komið að ýmsu leyti hjá þessari 4,4
milljóna manna þjóð, sérstaklega í
ljósi þess að nú blasir við sú ískalda
staðreynd að flóttamennirnir munu
ekki eiga þess kost að fara heim í ná-
inni framtíð.
Í Líbanon eru engar flótta-
mannabúðir þrátt fyrir að um 1,1
milljón Sýrlendinga hafi flúið þang-
að síðan stríðið braust út fyrir fimm
árum. Hluti flóttafólksins, þeirra á
meðal Shama og Amena, býr í
óformlegum flóttamannabyggðum,
þar sem nokkrum tjöldum er komið
fyrir í hnapp á litlum landskikum.
Allir þurfa að borga landeigendum
leigu. Sumir þeirra níðast á flótta-
Ljósmyndir/Dar Al Mussawir
5 stjörnu tjaldbúðir Vinkonur við heimili sitt, tjaldið, í flóttamannabyggð í Bekaa-dalnum. Göturnar eru malbikaðar sem er mjög fágætt. Það kalla þær „5 stjörnu tjaldbúðir“.
Úr helvíti í djúpt skuldafen
Flóttinn frá Sýrlandi á sér engin fordæmi.
12 milljónir hafa flúið heimili sín vegna stríðs
og ofbeldis. Helmingurinn er börn.
Fjórar milljónir hafa neyðst til að yfirgefa
landið og eygja litla von um að snúa aftur
heim í bráð, ef nokkurn tímann. Flestir eru
flóttamennirnir í nágrannaríkjunum, þar á
meðal um 1,1 milljón í Líbanon.
55 úr þessum hópi koma til Íslands nú í
desember. Þar með er flótta þeirra lokið.
4,4
milljónir manna búa í Líbanon
1,1
milljón sýrlenskra
flóttamanna hefur bæst
við síðustu ár
1/5
hluti mannfjöldans í
Líbanon er því flóttamenn
Það jafngildir því að
80 000
flóttamenn kæmu til
Íslands á innan við 5 árum
Sjá síðu 24