Morgunblaðið - 03.12.2015, Síða 55
UMRÆÐAN 55
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. DESEMBER 2015
Vitað er að mikil
aukning verður á
fjölda hvítra blóð-
korna eftir neyslu
soðins matar, en eng-
in við neyslu hrás
matar, sama hvort er
úr dýra- eða jurtarík-
inu. Virðist líkaminn
bregðast við soðnum
mat sem að-
skotaefnum sem þurfi
að koma burt. Sumir hafa túlkað
þetta svo að frummaðurinn hafi að-
allega neytt hrás jurtafæðis og
benda á gerð tanna og lögun melt-
ingarfæra í því sambandi. Þá hafi
líka hrá jurtafæða áhrif á þarmaf-
lóruna með fjölgun heilsusamlegra
sýrumyndandi gerla. Álitið er að há-
marks prótínþörf sé nálægt lág-
marksþörfinni (Daninn Hindherde)
nokkuð sem er vel skiljanlegt þar
sem líkaminn getur ekki geymt um-
framþörf prótíns eins og sykrur
(glýkógen) og glýseríðfitu (forða-
fita). Við of mikið prótínát þrengjast
líka háræðarnar sem hefur áhrif á
blóðþrýsting. Frá 1909 var með-
alneysla prótíns alla 20. öldina í
BNA 90 g á mann og dag sem er ríf-
lega tvöföld þörfin (T.J. Moore).
Heilbrigðiskerfið þar er dýrast í
heimi hér en helmingi ódýrara í
Þýskalandi, þrátt fyrir svipaða
menntun lækna og ævilengd íbú-
anna.
Sykrum og fitu í mataræðinu hef-
ur lengi verið kennt um æðimarga
lífsstílskvilla manna í iðnríkjunum
en nú virðist röðin líka komin að
prótíninu og þá einkum úr dýrarík-
inu. Í fyrra stríði vofði hungursneyð
yfir Dönum en henni
var afstýrt með því að
taka upp jurtafæði.
Svipað átti sér stað í
Norergi og Svíþjóð í
seinni heimstyrjöldinni,
þótt ekki hafi verið
gengið jafnlangt og
Danir gerðu. Mikið hef-
ur verið ritað um batn-
andi heilsufar á þessum
örlagatímum og fullyrt
að Danir hafi ekki notið
betri heilsu fyrr né síð-
ar. Það er raunar fyrst
eftir seinni heimstyrjöldina að ofát
verður viðvarandi vandamál í iðn-
ríkjunum. Hefur ís- og kæliskáp-
unum jafnvel verið kennt um þar
sem tilkoma þeirra beindi óbeint
mataræðinu í átt að orku- og prót-
ínríkum dýraafurðum á kostnað
jurtaafurða. Við neytum í dag allt of
mikils af kjöti, fiski, eggjum og
mjólkurafurðum miðað við prót-
ínþörfina. Með tilraunum hefur ver-
ið sýnt fram á að mikil kjötneysla
hækkar líka orkuþörf líkamans.
Sé reynt að skoða flutning að og
frá frumunum úr blóðinu um háræð-
ar og í gegnum þekjuvefsfrumur
„mes-enchyme“-lagsins, kemur í
ljós að þetta frumulag stöðvar óþörf
efni og kemur þeim burt. Takist
ekki að koma óþurftarefnum burt er
talið að ýmsir krónískir kvillar eða
drep í vefjum geti myndast. Þetta
frumulag umlykur háræðar, blóð-
æðar, taugar og vefi um allan líkam-
ann. Þau efni sem hlaðast upp í
þessu millistoðfrumulagi eru kölluð
„amýloid“ og eru flóknar óuppleys-
anlegar prótínsameindir sem hafa
bundist fjölsykrum (mucopolysacch-
arides). Þessar amýloidútfellingar
eiga sér væntanlega líka stað í slag-
æðum á undan kólesterólfellingum
og kölkun þeirra.
Gegnumstreymi háræðanna er
vegna rafkrafta en spennumunur er
milli blóðsins í háræðunum og í
frumunum. Það hefur verið sýnt
fram á að hrá jurtafæða eykur
þennan spennumun (Austurrík-
ismaðurinn Eppinger) og hjálpar til
við hreinsun amýloid úr milli-
frumulaginu. Það er eimitt sýru-
basa jafnvægið með alla sína raf-
hlöðnu jóna úr grænmetinu sem
hlýtur að hjálpa hér verulega til við
þessa flutninga úrgangsefna og
næringarefna. Þá er því haldið fram
af stuðningsmönnum sýru-basa-
fræðanna að koma megi í veg fyrir
marga lífsstílssjúkdóma sem eru að
því er virðist þeir sömu og hrjá
alæturnar í iðnaðarlöndunum í dag.
Það þurfi að breyta samsetningu í
einfaldlega 80% matar úr jurtarík-
inu og restina úr dýraríkinu, því þá
sé neyslan í sýru-basa-jafnvægi í
líkamanum og við losnum við að fá
„amýloidósis“-sjúkdóminn vegna of
mikils prótíns.
Það virðist því vera unnt að bæta
lýðheilsuna auk þess sem mikil
tækifæri væru í að rækta enn meiri
hollan mat í gróðurhúsum hérlendis
handa landsmönnum enda arðsamt
til lengri tíma litið. Góð lýðheilsa
verður ávallt dýrmætasta eign þjóð-
arinnar.
Um lýðheilsu almennt
Eftir Pálma
Stefánsson
Pálmi Stefánsson
» Ofát dýraprótíns
veldur að því er virð-
ist hægt og bítandi lífs-
stílssjúkdómum sem
mætti komast hjá.
Höfundur er efnaverkfræðingur.
Það sem ég skil um umræðu á Al-
þingi er mér framandi, enda gam-
all. Ég nefni sem dæmi Pírata.
Kafteinn þeirra talar þannig: Ég
kann ekki. Ég skil ekki. Ég vil vita.
Ég vil að allt sé gegnsætt. Ég vil
að allt sé á tölvutæku formi, allt sé
rafrænt. Ég er ekki sósíalisti, held-
ur ekki kapítalisti. Mér líkar við
hvern sem er, ef hann er heið-
arlegur. Mér líkar illa við stjórn-
málamenn sem ekki eru heið-
arlegir. Ég get bæði verið
stjórnarsinni eða stjórnarandstæð-
ingur. Fer eftir því hvað mér „lík-
ar“. Það er sannfæring mín, að
þjóðin mín, fólkið okkar og þeir
sem eru minni máttar í samfélag-
inu, eigi að álykta og geta sett lög
alveg eins og við hér á Alþingi.
Þjóðin á að ráða.
Fulltrúalýðræði var gott á sínum
tíma en er úrelt. Ég, kafteinn Pí-
rata, er kominn til að breyta
stjórnarskrá Lýðveldisins Íslands
og setja landinu og fólki þess end-
urskoðaða stjórnarskrá. Það er
verkefni okkar Pírata.
Man einhver eftir Jörundi
hundadagakonungi?
Brynleifur Steingrímsson.
Velvakandi Svarað í síma 569-1100 frá kl. 10-12 velvakandi@mbl.is
Píratar
Umræður Pistlahöfundi eru sumar umræður á Alþingi framandi.
Nú geta allir fengið
iPad-áskrift
Skráðu þig í iPad-áskrift á
www.mbl.is/mogginn/ipad/
Hafa skal það sem betur sést og heyrist
ormsson.is laugardaga kl. 11-15
LÁGMÚLA 8
SÍMI 530 2800
á góðu
verði
SÍÐUMÚLA 9
SÍMI 530 2900
kl. 10-18 og
UE55JU6075
55” kr. 199.900.-
UE65JU6075
65” kr. 399.900.-
UE43JU5505
43” kr.99.900.-
Suðurlandsbraut 20, Reykjavík, sími 588 0200, eirvik.is
JÓLAGJAFIRNAR
fást í Eirvík
Jólatilboð
Blandarar kr. 38.242
Jólatilboð Jólatilboð Jólatilboð
Matvinnsluvélar
frá kr. 38.242
Brauðristar
frá kr. 33.992
Safapressur
frá kr. 38.242
Frönsk gæðavara - lengri ending
Magimixmatvinnsluvélar, blandarar,
safapressur og brauðristar.
Magimix kaffivélar og kaffiskot frá CafféVergnano.