Morgunblaðið - 03.12.2015, Síða 82
82 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. DESEMBER 2015
Viðurkennd gæðateppi, slitsterk, ofnæmisprófuð
og samþykkt af Mannvirkjastofnun.
Óhreinindavörn sem lengir líftíma teppanna
og léttir þrif.
Stigahúsateppi
Mikið úrval!
Mælum og gerum tilboð
án skuldbindinga og kostnaðar
Ármúli 32, 108 Reykjavík
Sími 568 1888
www.parketoggolf.is
Sérverslun með teppi og parket
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Helgi Björns fagnar útgáfu nýrrar
plötu, Veröldin er ný, með útgáfu-
tónleikum í kvöld kl. 21 í Gamla bíói
og verða hljóðfæraleikarar að mestu
þeir sömu og á plötunni en á henni
leika Magnús Trygvason Eliassen,
Guðmundur Óskar Guðmundsson,
Örn Eldjárn, Tómas Jónsson, Sam-
úel Jón Samúelsson, Ívar Guð-
mundsson, Óskar
Guðjónsson,
Viktor Árnason
og Áskell Más-
son. Á plötunni
syngur einnig
Sigríður Thorla-
cius. „Þetta er
æðislegur hópur, „crème de la
crème“ eins og sagt er. Það var
virkilega gaman að vinna plötuna
með þeim,“ segir Helgi um þetta
einvalalið tónlistarmanna.
„Ég fer á Land Rover frá Mý-
vatni á Kópasker“ er fyrsta lagið
sem fór í útvarpsspilun af plötunni
og naut afar mikilla vinsælda í sum-
ar enda einkar grípandi og
skemmtilegt. Í kjölfarið fylgdi svo
hið notalega „Lapis Lazuli“, ekki
minni eyrnaormur sem hefur verið
mikið leikinn í útvarpi. Fleiri slíka
mætti tína til af plötunni sem kom út
fyrir skömmu. Nær öll lögin á plöt-
unni sömdu þeir Helgi og Guð-
mundur Óskar í samvinnu og alla
texta nema einn samdi Helgi með
Atla Bollasyni.
Gjöfult samstarf
Blaðamaður ræddi síðast við
Helga í september í fyrra, nokkrum
dögum áður en hann hélt í ferð um
landið til að fagna 30 ára ferils-
afmæli sínu. Með í för var fyrr-
nefndur Guðmundur Óskar, fjölhæf-
ur tónlistarmaður og bassaleikari
Hjaltalín. Svo virðist sem þeir Helgi
hafi smollið saman eins og flís við
rass. „Það er greinilega mjög
skemmtilegt og gjöfult samstarf og
gerðist bara óvart þegar við fórum
af stað í ferðina. Þá áttum við tveir
þetta lag, höfðum samið það ein-
hvern tíma og hann geymdi það
bara í símanum hjá sér og svo þegar
ég var að fara að henda í lag fyrir
ferðina dró hann það upp. Ég kom
strax með þessa grunnhugmynd,
„ég fer á Land Rover frá Mývatni á
Kópasker“ en tíminn var mjög
naumur, ég var á hlaupum að und-
irbúa ferðina og hóaði því í Atla og
bað hann að hjálpa mér, draga mig
að landi,“ segir Helgi. „Það var mjög
skemmtilegur díalógur sem skilaði
sér í þessum texta og þessu lagi sem
sló svona líka vel í gegn og lagði svo-
lítið grunninn að þessari plötu. Síð-
an fórum við Gummi um allt land í
fimm vikur, mikið ferðalag og þá má
segja að hugmyndin hafi kviknað að
taka þetta aðeins lengra.“
Vinnubúðir á Hótel Búðum
-Urðu fleiri lög á plötunni til á því
ferðalagi?
„Nei, reyndar ekki í ferðinni sem
slíkri. Ég var búinn að semja fullt af
lögum fyrir þessa plötu sjálfur eins
og ég er vanur en svo var þetta svo
skemmtilegt að við Gummi fórum í
vinnubúðir á Hótel Búðir í mars síð-
astliðnum og sömdum slatta af lög-
um. Við unnum líka í lögum sem ég
var búinn að semja áður, m.a. „La-
piz Lazuli“ og „Ljósið vaknar“.
Þetta var mjög gjöfult og við hóuð-
um í Atla líka og við unnum textana
að mestu leyti saman. Úr varð þessi
plata og við fórum í hljóðver í maí og
tókum upp með Adda 800. En þetta
byrjaði allt með Land Rovernum,“
segir Helgi.
-Hverju finnst þér Guðmundur
bæta við þínar lagasmíðar?
„Fyrst og fremst finnst mér það
að eiga díalóg við einhvern mjög
gjöfult. Hann kemur kannski með
einhvern hljóm og þegar hugmynd
kemur í loftið þá kveikir hún aðra.
Neisti verður að öðrum neista og
færir mann áfram. Það finnst mér
koma í tveggja manna samtali.“
Miklar tilfinningar
Hvað textagerðina varðar segir
Helgi að þeir Atli hafi einfaldlega
hist og fabúlerað. „Hugmyndirnar
eru kannski mikið til komnar frá
mér í grunninn og okkur fannst það
eðlilegt þar sem ég væri að fara að
syngja þetta. Síðan förum við hvor í
sína áttina og skrifum báðir, hend-
um á milli en Atli setti þetta í end-
anlega formið.“
-Það er mikil fegurð og rómantík
á þessari plötu, ekki satt?
„Jú, það má alveg segja það, mikl-
ar tilfinningar. Fjölskyldan er ná-
læg og afturlit, smá nostalgía og
minningar. Fjarlægðin gerir fjöllin
blá o.s.frv.“
Í einu laganna, „Ljósið vaknar“,
syngur Helgi angurblítt til fyrsta
barnabarns síns, tveggja ára stúlku.
„Ég samdi lagið mánuði eftir að hún
fæddist og byrjunina á textanum,“
segir Helgi og er spurður að því
hvort hlustendur verði ekki að hafa
vasaklút tiltækan þar sem lagið og
textinn geti kallað fram nokkur tár.
„Jú, jú,“ segir Helgi kíminn. „Ég var
að vinna með nýorðnum foreldrum
fyrir stuttu og leyfði þeim að heyra
lagið. Það var bara grátið, þetta er
svo nálægt nýorðnum foreldrum.
Mér þykir vænt um lagið og fólki
finnst það fallegt.“
-Það er gott að vera faðir en ég
hef heyrt að það sé enn betra að
vera afi.
„Það er náttúrlega ótrúlega mikil
gjöf, maður er orðinn það þrosk-
aður, börnin öll orðin fullorðin og
það er langt síðan maður hefur verið
með ungbarn í fanginu. Það rifjar
líka upp stundir sem maður áttar sig
á núna að maður hefði átt að gefa
betri gaum. Þegar maður var að ein-
beita sér að starfsferlinum og í djöf-
ulganginum að reyna að koma sér
upp heimili,“ segir Helgi og hlær.
„Nú kann maður betur að meta
þessar stundir sem maður á með
ungviðinu.“
Eins og pallbíll á ferð
-Tíminn líður líka alltaf hraðar
eftir því sem maður eldist …
„Jú, jú, klárlega.“
-Það hefur ekki fundist nein eðl-
isfræðileg skýring á því …
„Nei, en þetta er kannski eins og
með pikköppinn minn. Hann er með
opnum palli og það er búið að sanna
það margsinnis að það rignir ekki
ofan í pallinn ef maður er á mikilli
ferð. Ég hef ekki vísindalega útskýr-
ingu á því en þannig er það nú
samt,“ segir Helgi og hlær. „Tíminn
kemst ekki inn, það er bara einhver
lofthjúpur yfir manni þegar maður
verður eldri,“ bætir hann við og
blaðamaður kann vel að meta þessa
samlíkingu.
Það er bjart yfir plötutitlinum,
Veröldin er ný, og Helgi er spurður
að því hvað hann sé að fara með
honum. „Ég held að hver manneskja
geti sífellt enduruppgötvað sjálfa sig
og nýja hluti, átt sín hamskipti innra
með sér með afstöðu sinni til lífsins.
Að verða afi t.d. breytir óneitanlega
aðeins sýninni, það eru ákveðin
kaflaskipti en í stærri merkingu
finnst mér hollt að sjá hlutina þann-
ig að það sé ekki allt bara staðnað og
búið. Að maður geti enduruppgötv-
að sjálfan sig og lífið og veröldina í
kringum sig.“
Söngvarinn Helgi
-Snúum okkur aðeins að söng þín-
um á plötunni. Fyrsta lagið, „Þegar
flóðið fellur að“, liggur mjög hátt.
Ertu að reyna að teygja röddina
hærra upp?
„Nei, það var ekkert markmið í
sjálfu sér, lagið var samið svona og
ég ákvað bara að reyna að halda því.
Það gefur því auðvitað ákveðinn tón
og maður þarf að syngja þetta
mýkra. Mér finnst skemmtilegt að
sýna fleiri fleti og það er kannski
það sem ég hef verið að reyna að
gera með því að syngja lög eftir aðra
á undanförnum árum. Að styrkja
söngvarann Helga og sýna þjóðinni
og sjálfum mér að það sé hægt að
horfa á mig sem söngvara en ekki
bara skemmtikraft og rokkara,“
segir Helgi. Hann vilji halda áfram
að koma sjálfum sér og öðrum á
óvart.
Helgi er enda hokinn af reynslu
sem söngvari og miðlar af henni sem
þjálfari í sjónvarpssöngkeppninni
The Voice Ísland á Skjáeinum. „Ég
bjóst við því að það yrði ágætlega
gaman en verð að játa að það er
mun skemmtilegra en ég átti von á
og mjög gefandi,“ segir Helgi þegar
hann er spurður að því hvort þjálf-
arastarfið sé ekki skemmtilegt. „Það
er mikil sköpun í þessari vinnu, að
vinna með þeim sem eru að taka
þátt, velja lög með þeim, finna út-
setningar, hjálpa þeim að syngja og
koma fram. Að opna fyrir þeim nýja
heima í þeim hæfileikum sem þau
búa yfir. Stundum þurfa þau að
brjótast út á einn eða annan hátt og
allir eiga við eitthvað að glíma.“
-Svo fær ný kynslóð að kynnast
Helga Björns í leiðinni?
„Reyndar og jú, jú, það er já-
kvætt. Maður var orðinn nokkuð
laus við ágang ákveðins aldurshóps
en hann hefur endurnýjast snögg-
lega,“ segir Helgi, hlær innilega og
bætir við að hann hafi bara gaman
af því.
Byrjaði allt með Land Rovernum
Helgi Björns er á ljúfum nótum á nýrri plötu, Veröldin er ný Guðmundur Óskar samdi lögin með
honum og Atli Bollason texta „Neisti verður að öðrum neista og færir mann áfram,“ segir Helgi
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Enduruppgötvun „Ég held að hver manneskja geti sífellt enduruppgötvað sjálfa sig og nýja hluti, átt sín hamskipti
innra með sér með afstöðu sinni til lífsins,“ segir Helgi Björns um titil nýútkominnar plötu sinnar, Veröldin er ný.