Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 2016, Blaðsíða 3

Náttúrufræðingurinn - 2016, Blaðsíða 3
75 Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags Viðbrögð við PISA 2015 – Reynsla skiptir máli Niðurstöður PISA-könnunarinnar frá árinu 2015 benda til þess að læsi 15 ára íslenskra nemenda í náttúruvísindum hafi farið aftur. Viðhorf íslenskra nemenda til náttúru vísinda er aftur á móti jákvætt og vitund þeirra um umhverfismál hefur aukist. Við- brögð við þessum tíðindum gætu verið þau að gefa börnunum færi á aukinni beinni reynslu af viðfangs- efnum náttúruvísinda – og auka samstarf kennara og fagmanna í þessum fræðum. PISA-kannanirnar hafa verið lagðar fyrir skólabörn – 10. bekk á Íslandi – í aðildarríkjum OECD á þriggja ára fresti frá árinu 2000. Prófað er í lesskilningi, og hefur sá þáttur oftast vakið mesta athygli hérlendis, en einnig í stærðfræðilegu læsi og náttúruvísindalegu. Hug- takið náttúruvísindi er í þessum könnunum notað sem samheiti um eðlisvísindi, jarðvísindi og lífvísindi. Í ljósi niðurstaðnanna í PISA 2015 er eðlilegt að spyrja hvort áherslur könnunarinnar séu aðrar en í aðalnámskrá grunnskólans. Við rýni í námskrána frá 2011 má sjá að svo er ekki. Áherslur í könnuninni eru í góðu samræmi við þá hæfni sem lýst er í aðalnámskrá. Þetta á til dæmis við um umfjöllun um grunnþætti menntunar og um hæfniviðmið fyrir náttúrugreinar. Þegar rýnt er nánar í þekkingar- svið læsis á náttúruvísindi kemur í ljós að íslensku nemendurnir eru einu til tveimur árum á eftir jafnöldrum sínum í Noregi, Svíþjóð og Danmörku í eðlis- og efnafræði. Þá benda niðurstöðurnar til þess að íslenskum unglingum hafi farið mest aftur á þekkingarsviði jarðvísinda og stjörnufræði (e. earth and space). Í niðurstöðum PISA 2015 birtist ákveðin mótsögn um kennsluna. Nemendur segjast upplifa mikinn stuðning náttúrufræðikennara sinna. Í því felst að þeim finnst að námi þeirra sé sýndur áhugi, þeir fá aukaaðstoð þegar það þarf og geti tjáð skoðanir sínar ef þeir vilja. Þá hafa þeir mikla trú á eigin getu. Aftur á móti telja þeir sig fá litla endurgjöf. Í endurgjöf felast upplýsingar um frammistöðu hvers og eins, um það hvar styrkleikarnir liggja, á hvaða sviðum nemandinn gæti bætt sig og hvernig hann eða hún gæti farið að því. Upplifun íslenskra nemenda bendir til að hér þurfi afdráttarlaus viðbrögð með faglegum stuðningi við kennarana. Þessar vísbendingar ríma vel við rannsóknir á íslensku skólastarfi og þá sérstaklega rannsóknir sem hafa beinst að kennsluháttum í náttúrufræði síðasta áratug. En hvað er þá til ráða? Hvernig má efla náttúrufræðimenntun þannig að nemendur öðlist þá hæfni sem aðalnámskrá kveður á um og er mæld í alþjóðlegri könnun á borð við og PISA? Menntun í náttúrufræði er á ábyrgð margra aðila. Ef kennarinn er óöruggur eða telur einhverja hindrun í vegi fyrir því að hann nái sem mestu og bestu úr samveru- tímum með nemendum, þá er það ekki einkamál kennarans. Ef kennarann vantar þekkingu og reynslu, og ef til vill trú á eigin getu til að kenna náttúrufræði, þá má færa fyrir því rök að réttur nemenda til náms sé skertur. Meðal þeirra sem hafa áhrif á skilyrði til náms og kennslu eru stefnumótendur, kennarar, skóla- stjórnendur, nemendur, náms efnis- höfundar, starfsfólk sveitarfélaga og sérfræðingar á tilteknum fagsviðum. Þá þarf að hafa í huga að starf í skólum hefur breyst frá því sem áður var og hlutverk kennara er flóknara nú en fyrir til dæmis aldarþriðjungi. Ef efla á náttúrufræðimenntun þarf að styðja skólastarfið á hverjum stað og nýta markvisst það nær- umhverfi sem nemendur búa í. Í því samhengi þarf að spyrja hvernig náttúrufræðingar geti stutt kennara og unnið með þeim. Rannsóknir á kennslu benda til þess að það ætti að draga úr áherslunni á miðlun upplýsinga og beina sjónum annars vegar að orðaforða og lesskilningi nemenda og hins vegar að því að gefa nemendum færi á að öðlast reynslu af því sem námsbækur kynna. Með þetta tvennt í huga þarf að rýna í það hvers konar kennsluefni á sviði náttúruvísinda er til fyrir unglinga og athuga hvort slíkt kennsluefni sé í takt við þær áherslur sem aðalnámskrá kynnir. Í þessu samhengi er hlutverk náttúrufræðinga mikilvægt. Kennarar eru að sjálfsögðu fag- mennirnir á sviði kennslu, en náttúrufræðingar með sérþekkingu á spennandi sviðum geta veitt kennurum stuðning og verið nemendum bæði fyrirmynd og hvatning. Auður Pálsdóttir, Ph.D. lektor við Menntavísindasvið Háskóla Íslands
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.