Morgunblaðið - 15.09.2016, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. SEPTEMBER 2016
Viltu selja eða
kaupa fyrirtæki?
Firma Consulting, Þingaseli 10, 109 Reykjavík,
GSM: (+354) 820 8800 og (+354) 896 6665,
Fax: (354) 557 7766, Veffang: firmaconsulting.is
Magnús Hreggviðsson viðskiptafræðingur og lög-
giltur fyrirtækja-, fasteigna- og skipasali. Magnús er
með áratuga reynslu af endurskoðunarstörfum, sem
rekstrarráðgjafi, fyrirtækja- og fasteignasali, útgef-
andi, fasteignarekandi, „land-developer“ í Smára-
hvammi og starfandi stjórnarformaður í nokkrum
fyrirtækjum. Er aðalráðgjafi hjá Firma Consulting.
(magnus@firmaconsulting.is)
Firma Consulting (www.firmaconsulting.is) er
ráðgjafafyrirtæki sem sérhæfir sig í ráðgjöf við
kaup og sölu millistórra og stórra fyrirtækja.
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
Erfið staða leikskólanna í Reykjavík
og krafa borgaryfirvalda um frekari
aðhald í rekstri hefur verið mikið til
umræðu að undanförnu. Margir
þessara skóla glíma nú við mikla
manneklu og hafa sumir þeirra
neyðst til að skerða þjónustu, m.a.
með því að senda börn heim. Var
þannig 71 stöðugildi á leikskólum
Reykjavíkurborgar ómannað við
upphaf þessarar viku.
Morgunblaðið hafði í gær sam-
band við nokkra leikskólastjóra á
höfuðborgarsvæðinu og Akureyri til
að fá upplýsingar um stöðuna. Einn
þeirra er Guðný Anna Þóreyjar-
dóttir, leikskólastjóri á Austurkór í
Kópavogi. Hún segist glíma við
mikla manneklu og mun það hafa
talsverð áhrif á þjónustu.
„Vegna m.a. langveikinda starfs-
fólks vantar okkur fimm starfsmenn
í fullu starfi og tvo í hlutastarfi svo
kalla megi leikskólann fullmann-
aðan,“ segir Guðný Anna og bætir
við að frá og með deginum í dag
muni starfsfólk á hverjum degi þurfa
að senda börn heim af öllum deild-
um. Deildir leikskólans eru sex tals-
ins og er misjafnt hversu mörg börn
fara heim hvern tiltekinn dag, en
mest fer það upp í 30 börn.
„Okkur þykir að sjálfsögðu mjög
miður að þurfa að grípa til þessara
aðgerða, en þetta er algjört neyð-
arúrræði,“ segir Guðný Anna. Spurð
hvort leikskólanum hafi borist um-
sóknir um auglýst störf svarar hún:
„Við erum búin að bjóða þremur um-
sækjendum vinnu og erum með aðr-
ar umsóknir í vinnslu. Við vonum því
að þetta vandamál leysist sem fyrst.“
Sigríður Björg Tómasdóttir, al-
mannatengill Kópavogsbæjar, segir
stöðuna á Austurkór vera einsdæmi í
sveitarfélaginu. „Við erum, fyrir ut-
an þennan eina leikskóla, í góðum
málum,“ segir hún.
Góð staða og vísar fólki frá
Langflestir leikskólar í Hafn-
arfirði teljast nú fullmannaðir, en
samkvæmt upplýsingum þaðan eru
sex störf auglýst á vef sveitarfé-
lagsins um þessar mundir.
Oddfríður Jónsdóttir, leikskóla-
stjóri á Arnarbergi í Hafnarfirði,
segist ekki glíma við neina manneklu
í sínum skóla. „Ég vísa frekar frá en
hitt,“ segir Oddfríður, en alls vinna
27 manns á leikskólanum og eru
börnin nú 86 talsins en verða að lík-
indum 90 á næstunni. „Við höfum
hins vegar þurft að vera í aðhaldi alla
tíð. Þó góðæri sé ríkjandi þá er kraf-
an um sparnað alltaf uppi. En al-
mennt er staðan í mínum skóla
þokkalega góð þó það mætti fara að
huga að viðhaldi,“ segir hún.
Í Garðabæ er auglýst eftir fjórum
starfsmönnum fyrir tvo af þeim 12
leikskólum sem starfandi eru í sveit-
arfélaginu. „Það eru engin vandræði
hjá mér, en ég var svo heppin að ná
að fullmanna allar stöður,“ segir
Marta Sigurðardóttir, leikskólastjóri
á Kirkjubóli í Garðabæ, en þar vinna
alls 17 manns. Aðspurð segir hún þó
hlutfall fagmenntaðra starfsmanna
hafa lækkað nokkuð að undanförnu.
„Ég held að hlutfallið sé komið ei-
lítið undir 50%,“ segir Marta og
heldur áfram: „Garðabær hefur allt-
af verið vel rekið sveitarfélag, en
okkur finnst þó að það mætti gefa
aðeins betur í og veita okkur meira
fjármagn. Eftir hrun 2008 var skorið
mikið niður og það hefur ekki skilað
sér til baka.“
Anna Bjarnadóttir er leikskóla-
stjóri á Bæjarbóli í Garðabæ. Hún
segist vera að leita að leikskólasér-
kennara eða þroskaþjálfa í stuðn-
ingsstöðu og leikskólakennara eða
starfsmanni með aðra uppeldis-
menntun. „Það er búið að vera aug-
lýst í þessar stöður í meira en mán-
uð,“ segir hún.
Spurð hvort þessi mannekla hafi
neikvæð áhrif á þjónustu við börn
leikskólans kveður hún nei við. „Ég
hef t.a.m. sjálf verið inni á deildum
að vinna ásamt sérkennslustjóra svo
við náum að halda sjó.“
Á Bæjarbóli vinna nú 24 manns og
af þeim eru 9 fagmenntaðir og tveir í
námi. „Það er bara nokkuð fín
staða.“
Leikskólarnir fullmannaðir
Gunnhildur María Sæmunds-
dóttir, skólafulltrúi Mosfellsbæjar,
segir manneklu á leikskólum sveitar-
félagsins eingöngu þegar veikindi
koma upp meðal starfsmanna. „Þá
tekst okkur ekki alltaf að leysa af all-
ar stöður, en leikskólarnir eru full-
mannaðir og okkur vantar þannig
lagað ekki fólk,“ segir hún.
Spurð hvort hún viti dæmi þess að
leikskóli í Mosfellsbæ hafi þurft að
senda börn heim líkt og nú gerist í
Reykjavík og í einum skóla í Kópa-
vogi svarar Gunnhildur María: „Mig
rekur ekki minni til þess.“
Þuríður Stefánsdóttir, leikskóla-
stjóri á Huldubergi í Mosfellsbæ,
segir skólann hafa þurft að auglýsa
eina stöðu og var búið að ráða í hana
tveimur dögum síðar. „Ég hélt þetta
yrði erfiðara, en svo reyndist ekki
vera,“ segir hún, en 28 manns vinna
á leikskólanum. „Kjarninn er ein-
staklingar sem hafa unnið hérna
lengi,“ segir Þuríður.
Þá hefur verið boðað til frétta-
mannafundar í Ráðhúsi Reykjavíkur
í dag þar sem kynnt verður aðgerða-
áætlun vegna skólamála.
Verst virðist staðan í Reykjavík
Ómannaðar stöður á leikskólum Reykjavíkurborgar voru við upphaf þessarar viku 71 talsins
Staðan er almennt mun betri á leikskólum í Kópavogi, Hafnarfirði, Garðabæ og Mosfellsbæ
Morgunblaðið/Eva Björk
Leikskólakrakkar Mannekla á leikskólum hefur m.a. valdið því að börn eru send heim, en slíkt er raunin á Bakka-
borg í Breiðholti og Austurkór í Kópavogi. Aðgerðaáætlun vegna skólamála í Reykjavík verður kynnt í dag.
„Ástand leikskóla er á mörgum
stöðum algerlega til fyrir-
myndar og má þá einkum
nefna skólana á Akranesi og
Akureyri. En þar er í raun allt
annar veruleiki,“ segir Ingi-
björg Kristleifsdóttir, formaður
Félags stjórnenda leikskóla, og
bendir á að hlutfallslega séu
mjög margir starfsmanna á
leikskólum þar fagmenntaðir.
„Ástæðan er einna helst sú að
Háskólinn á Akureyri hóf á sín-
um tíma að mennta kennara og
Akraneskaupstaður studdi
mjög sitt fólk við að ná sér í
menntun.“
Hrafnhildur G. Sigurð-
ardóttir, leikskólafulltrúi
Akureyrarbæjar, segir leikskóla
í sveitarfélaginu ekki búa við
vanda vegna manneklu. „Okkar
sérstaða er einnig sú að við er-
um með mjög hátt hlutfall fag-
menntaðra. Eru m.a. nokkrir
skólar með 100% hlutfall,“
segir Hrafnhildur og bætir við
að algengt hlutfall fagmennt-
aðra sé um 80% til 90%.
„Háskólinn á Akureyri hefur
verið mjög duglegur við að út-
skrifa leikskólakennara og það
er okkar happ. Eins höfum við
tekið aðra fagmenntun inn til
okkar, en við erum m.a. með
nokkra grunnskólakennara, sál-
fræðimenntað fólk og iðju- og
þroskaþjálfa. Þetta metum við
allt sem fagmenntað fólk.“
Erna Rós Ingvarsdóttir er
leikskólastjóri á Pálmholti á
Akureyri. Fjöldi starfsmanna
þar er 41 og eru 87% þeirra
fagmenntaðir. „Við finnum
virkilega til með samkennurum
okkar í Reykjavík en við höfum
það mjög gott,“ segir hún.
Tveir staðir
skara fram úr
FAGMENNTAÐ FÓLK
Flutningaskipið Winter Bay kom
til Osaka í Japan 9. september sl.
með tæp 1.600 tonn af frystum
hvalaafurðum frá Íslandi. Skipið
lagði úr höfn í Hafnarfirði 29. júlí
og sigldi norðausturleiðina, um
Norður-Íshafið norðan við Rúss-
land, með viðkomu í Noregi þar
sem tekin var olía.
„Þetta gekk eins og í sögu. Það
er búið að losa allt og skipið er
farið frá Osaka og ætlar sömu leið
til baka og í fyrra,“ sagði Kristján
Loftsson, framkvæmdastjóri Hvals
hf. Farmurinn samanstóð af hval-
kjöti, spiki, rengi og öðrum fryst-
um hvalaafurðum. „Við vorum
búnir að framleiða allar þessar
vörur fyrir þennan markað og
höfðum ekkert annað val en að
senda þetta út. Nú á þetta eftir að
fara í gegnum efnagreiningar og
innflutningsferlið í Japan. Þær
efnagreiningaraðferðir sem Japan-
ir nota eru sumar 40-50 ára gaml-
ar og eru ekki í samræmi við nein-
ar alþjóðlegar aðferðir varðandi
svona efnagreiningar. Hvað kom
út úr öllum þessum viðræðum við
japönsk stjórnvöld, sem enn
standa yfir, á nú eftir að koma í
ljós.“
Kristján sagði aðspurður að nóg
yrði til af súrsuðu rengi fyrir
þorrablótin í vetur. Ekki þyrfti að
hafa áhyggjur af því. gudni@mbl.is
Ljósmynd/Guðmundur Steinbach
Lagt úr höfn Winter Bay sigldi norðausturleiðina til Japans.
Frystar hvalaafurðir
fluttar til Japans
Winter Bay flutti tæp 1.600 tonn af hvalaafurðum