Morgunblaðið - 15.09.2016, Blaðsíða 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. SEPTEMBER 2016
Eikjuvogur 29 - 104 Rvk. S:781-5100
Opið: Mán-fim: 12-18 - fös: 12-16 - www.facebook.com/spennandi
Ný sending frá Frakklandi
Engjateigi 5 // 581 2141 // hjahrafnhildi.is
DÚNÚLPA
MEÐ EKTA LOÐFELDI
VERÐ 32.980
STÆRÐIR 36-52
Bæjarlind 1-3
201 Kópavogur
sími 571 5464
Nýjar vörur í hverri viku
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Nýtt uppsjávarfrystihús Vinnslu-
stöðvarinnar í Vestmannaeyjum
verður tekið í notkun á næstunni.
Sindri Viðarsson, sviðsstjóri upp-
sjávarsviðs VSV, segir að húsið sé
tilbúið að innan en unnið sé að frá-
gangi að utan. Búið er að setja upp
flest tæki og unnið hefur verið að því
að stilla vélar og prufukeyra tæki.
„Þetta er á lokametrunum hjá okkur
og við höfum aðeins keyrt makríl í
gegnum kerfin. Ég er að vona að í
næstu viku verðum við komnir á gott
skrið, en það eru mörg handtök og
verkefni sem þarf að leysa á síðasta
sprettinum,“ segir Sindri.
Í frystihúsinu verður blásturs-
frysting að norskri fyrirmynd, en
ekki plötufrysting eins og yfirleitt
hefur tíðkast í uppsjávarfrystihús-
um hér á landi. Frystitæki eru að
mestu keypt frá Optimar í Noregi.
Engar breytingar
hjá fastafólkinu
Uppsjávarfrystihúsið verður í
húsnæði sem áður var Mjölhús
Vinnslustöðvarinnar. Húsinu var
verulega breytt, þakið m.a. hækkað
og burstum snúið. Nýtt mótorhús
var byggt auk margvíslegra annarra
verkefna sem tengjast framkvæmd-
inni.
Nýja vinnslan eykur afköst í
frystingu uppsjávartegunda og
verður frystigetan 450 tonn á sólar-
hring en er núna 280-300 tonn. Mikil
sjálfvirkni fylgir nýja húsinu og
áætlar Sindri að 10-12 manns verði á
hverri vakt, og því 20-24 starfsmenn
sem gangi vaktir. Það er mikil breyt-
ing frá því sem áður var er hátt í 100
manns gengu vaktir hjá fyrirtækinu,
um 50 á hvorri vakt.
„Með nýju vinnslunni verða
engar breytingar hjá fastafólkinu
okkar,“ segir Sindri. „Vaktirnar
hafa hins vegar að miklu leyti verið
mannaðar af fólki sem hefur komið
tímabundið til Eyja og skólafólki. Í
sumar var staðan sú að um tíma var
erfitt að manna stöður í vinnslunni
enda ýmis önnur atvinnutækifæri í
boði hér í Eyjum.“
Nýtt frystihús í notk-
un í Eyjum á næstunni
Ljósmynd/Ísleifur Arnar Vignisson
Eyjar Glaðbeittir starfsmenn Vinnslustöðvarinnar í nýja frystihúsinu, frá vinstri: Ágúst Einarsson rafvirki, Óðinn
Kristjánsson vélstjóri, Rikharð Bjarki Guðmundsson rafvirki og Benoný Þórisson, framleiðslustjóri uppsjávarsviðs.
Aukin frystigeta og sjálfvirkni Færra fólk á vöktum
Aðalfundur Smábátafélags Reykja-
víkur var haldinn á mánudag í
höfuðstöðvum félagsins í Suður-
bugt. Á heimasíðu Landssambands
smábátaeigenda, LS, segir að
fundurinn hafi einkennst af snörp-
um umræðum sem framkölluðu
hreinar línur félagsins til hinna
ýmsu málaflokka.
„Upplýst var á fundinum að LS
ætti fulltrúa í óformlegum starfs-
hópi á vegum sjávarútvegsráðu-
neytisins sem ætlað væri að endur-
skoða strandveiðikerfið. Fréttir af
fyrsta fundi hópsins féllu í grýttan
jarðveg á fundinum, þar sem upp-
lýst var að ekki væri gert ráð fyrir
aflaaukningu til strandveiða,“ segir
á heimasíðu LS.
Í ályktun Reykjavíkurfélagsins
segir: „Aðalfundurinn afþakkar
frekari afskipti núverandi sjávar-
útvegsráðherra af málefnum smá-
bátaútgerðarinnar og krefst þess
að vinnuhópurinn verði tafarlaust
leystur upp.“
Afþakka afskipti sjávarútvegsráðherra
Á aðalfundi Snæfells, félags smá-
bátaeigenda á Snæfellsnesi, á
sunnudag átti sér stað þung um-
ræða um veiðigjöld og uppboð á
veiðiheimildum, segir á heimasíðu
Landssambands smábátaeigenda. Á
fundinum var samþykkt tillaga þar
sem harðlega er mótmælt uppboðs-
leið á aflaheimildum. Slíkar hug-
myndir stefni útgerð um land allt í
uppnám og óvissu.
Alls voru 20 tillögur lagðar fram
á fundinum og meðal annars var
samþykkt tillaga um að veittur
verði afsláttur af veiðigjaldi þeirra
sem eru eingöngu í útgerð án fisk-
vinnslu. Í greinargerð segir að ein-
yrkjaútgerð eigi í vök að verjast og
halli verulega á hana í samkeppni
við útgerð með fiskvinnslu.
Uppnám og óvissa með uppboðsleið
Morgunblaðið/RAX