Morgunblaðið - 15.09.2016, Page 28
Skiptinemi Guðrún Jónasdóttir og Niccoló Carrivale, sem unir hag sínum vel á Furumel.
SVIÐSLJÓS
Guðrún Vala Elísdóttir
Borgarnesi
Niccoló Carrivale er 16 ára strákur
frá Ítalíu og er kominn til að dvelja á
Íslandi sem skiptinemi næsta árið.
Hann býr á Furumel, sem er sveita-
bær um 20 kílómetra vestan við
Borgarnes en fósturforeldrar hans
eru Guðrún Jónasdóttir og Þorkell
Guðbrandsson. Niccoló er búinn að
vera um þrjár vikur og segist alsæll
með dvölina.
,,Ísland var í fyrsta sæti hjá mér,
ég hafði kynnt mér margt um landið
og það var í fyrsta sæti hjá mér.“
Aðspurður segist hann ekki hafa
fengið alvarlegt menningarsjokk en
nefnir þó þrennt sem hafi komið á
óvart.
,,Mér fannst frekar óþægilegt þeg-
ar ég fór í fyrsta skipti í sund að af-
klæðast innan um aðra. En það vand-
ist eftir fyrsta skiptið. Eins finnst
mér skólinn hér skemmtilegur og
andrúmsloftið mun afslappaðra en á
Ítalíu. Hér má maður t.d. nota tölvur
í öllu námi en það er ekki leyfilegt
heima nema í einstaka fögum. Hér
kallar maður kennarana bara nöfn-
unum sínum en heima ávarpar mað-
ur þá sem prófessora og með eftir-
nafni. Ég varð líka hissa á því hvað
Íslendingar eru afslappaðir gagnvart
tíma, ég hélt að þeir væru stundvísir
og akkúrat eins og Þjóðverjar en
þeir eru miklu frekar eins og Ítalir.“
Guðrún og Þorkell eru að hýsa
skiptinema í annað sinn, en fyrir
tveimur árum dvaldi norsk stúlka hjá
þeim í eitt ár. Guðrún segir þetta
ánægjulega reynslu, og þau séu
heppin með þessa einstaklinga.
Niccoló sé mjög áhugasamur um Ís-
land og strax farinn að skilja talsvert
í íslensku.
,,Við höfum aðeins sýnt honum af
landinu og sérstaklega var gaman að
fylgjast með honum þegar hann sá
Geysi gjósa, en hann varð alveg upp-
numinn. Næst á dagskrá eru haust-
verkin göngur og réttir, sem hann
hlakkar til að upplifa. Nú, svo á ég
eftir að bjóða honum í fjósið með
mér, en hann er mjög virkur og vill
taka þátt í sem flestu með okkur.“
Markmiðið að víkka sjóndeild-
arhring ungs fólks
AFS (American Field Service) eru
alþjóðleg fræðslusamtök sem starfa í
yfir 50 löndum í öllum heimsálfum.
Saga þeirra nær allt aftur til fyrri
heimstyrjaldarinnar, en bandarískir
sjálfboðaliðar sem óku sjúkrabílum á
vígvöllum Frakklands í fyrri heims-
styrjöldinni stofnuðu samtökin. Þeir
töldu að aukin kynni og skilningur á
milli þjóða gæti dregið úr líkum á því
að hörmungar stríðsins endurtækju
sig. Alþjóðleg nemendaskipti væru
leið til þess að á því markmiði og eftir
þeirri hugsjón starfar AFS enn.
Fyrstu nemendaskipti AFS hófust
í Bandaríkjunum árið 1947 og árið
1957 héldu átta fyrstu íslensku
skiptinemarnir til Bandaríkjanna.
Síðan hefur starfið vaxið og nú send-
ir AFS á Íslandi árlega milli 100-120
skiptinema til dvalar á erlendri
grund og tekur á móti u.þ.b. 30 er-
lendum nemum ár hvert. Aðal-
viðfangsefni samtakanna hér á landi
er nemendaskipti unglinga á aldr-
inum 15-18 ára. Samtökin eru óháð
stjórnmálaflokkum og trúfélögum,
sem og hvers konar hagsmuna-
samtökum. Markmið AFS er að auka
kynni og skilning milli þjóða heims
og fólks af ólíkum uppruna, víkka
sjóndeildarhring ungs fólks og auka
menntun þess. AFS-félögin um allan
heim eru að mestu leyti byggð upp af
sjálfboðaliðum.
Hefur tvisvar hýst skiptinema
Jónína Kristín Guðmundsdóttir er
formaður og stofnandi Vesturlands-
deildar AFS.
,,Ég var skiptinemi í Frakklandi
1997-1998 og eftir heimkomuna varð
ég virkur sjálfboðaliði AFS. Ég hef
m.a. verið skólatengiliður, haldið
margar skólakynningar, tekið viðtöl
við verðandi skiptinema og tekið
þátt í undirbúningsnámskeiðum og
ýmsum viðburðum með erlendu
nemunum. Auk þess hef ég nokkrum
sinnum verið tengiliður skiptinema
en fyrir tveimur árum ákvað ég svo
loksins að hýsa sjálf skiptinema, sem
mig hafði dreymt um frá því að ég
kom heim“. Jónína og Jón Leví son-
ur hennar tóku á móti Moniku frá
Kína þá um haustið og var hún hjá
þeim í Búðardal í 10 mánuði. ,,Það
var mjög áhugavert að hafa Moniku
og að kynnast hennar menningu,
Skiptinema-
dvöl er góð
lífsreynsla
34 erlendir skiptinemar á landinu í
ár, þar af eru sex á Vesturlandi
Fjölskylda Jónína Kristín Guðmundsdóttir, Jón Leví, sonur hennar, og Monica frá Kína.
Hópurinn Alls eru 34 skiptinemar á landinu öllu þetta skólaárið en þeir komu til landsins 19. ágúst.
28 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. SEPTEMBER 2016
Arctic Trucks
Kletthálsi 3
110 Reykjavík
sími 540 4900
info@arctictrucks.is
www.arctictrucks.isEXPLORE WITHOUT LIMITS
®
Vandaðar plasthlífar á flestar gerðir bifreiða.
Hlífa bílnum gegn grjótkasti og varna lakkskemmdum.
• Húddhlífar
• Gluggavindhlífar
• Ljósahlífar
PLASTHLÍFAR