Morgunblaðið - 15.09.2016, Side 32

Morgunblaðið - 15.09.2016, Side 32
32 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. SEPTEMBER 2016 Soap ljós Ármúla 24 - s. 585 2800 - www.rafkaup.is Opið virka daga 9-18, laugardaga 11-16 Hvert ljós er einstakt SKÁK Helgi Ólafsson helol@simnet.is Bandaríkjamenn unnu sögulegan sigur í opnum flokki Ólympíu- skákmótsins í Bakú á þriðjudaginn þegar liðið vann öfluga sveit Kan- ada, 2½:1½, en keppinautar þeirra Úkraínumenn unnu einnig. Banda- ríkjamenn og Úkraínumenn hlutu 20 stig en þeir fyrrnefndu voru mun hærri á mótsstigum. Rússar urðu svo í þriðja sæti. Bandaríkja- menn unnu gullið síðast í Haifa ár- ið 1976 og sigruðu þrisvar á milli- stríðsárunum, 1933, 1935 og 1937. Bandaríska skáksambandið lagði mikið undir að þessu sinni og sig- urinn var sannfærandi og sann- gjarn, en sveitina skipuðu Fabiano Caruana, Hikaru Nakamura, Wes- ley So, Samuel Shankland og Ray Robson. Í kvennaflokki staðfestu Kín- verjar yfirburði sína og unnu Rússa í lokaumferðinni 2½:1½. Kínverjar hlutu 20 stig, Pólverjar urðu í 2. sæti og Úkraína í 3. sæti en báðar þjóðirnar fengu 17 stig. Segja má að íslenska liðið í opna flokknum hafi botnað á kolvitlaus- um tíma; 60. sæti er ekki viðunandi niðurstaða. Sá sem þessar línur rit- ar er ekki mikill aðdáandi þeirra breytinga sem gerðar voru á keppninni fyrir nokkrum árum; við það að fækka umferðum úr þrettán í ellefu og láta stig gilda er hættan sú að ýmsar niðurstöður verði full tilviljanakenndar. En lengi var ís- lenska sveitin á réttri leið og tókst það sem að var stefnt – að komast í góð færi fyrir lokasprettinn – en það hafðist með góðum sigri á Sló- vakíu í 8. umferð. En í lokaumferð- unum þremur gekk allt á afturfót- unum og sveitin fékk aðeins eitt stig. Hægt er að tína til ýmislegt sem betur hefði mátt fara en þess má geta að þrír af fimm liðsmönnum bættu ætlaðan árangur sinn og frammistaða Hjörvars Steins Grét- arssonar var með ágætum. Hvorki honum né Braga Þorfinnssyni tókst þó að fylgja eftir frábærri byrjun, en Hjörvar var látinn tefla með svart í fimm af sex síðustu skákum sínum og jafnteflistilboð sem hann fékk í betri stöðu í næst- síðustu umferð kallaði á að liðs- stjórinn svaraði með afdráttar- lausum hætti en hann kaus að varpa ábyrgðinni frá sér. Þá var hinn öflugi stórmeistari Jóhann Hjartarson hvíldur fjórum sinnum, sem var sérkennileg ráðstöfun þeg- ar litið er til þess að á EM í fyrra tefldi hann allar skákirnar fyrir lið sitt og stóð sig glimrandi vel. Hannes Hlífar var ekki sannfær- andi á 1. borði, vann aðeins tvær skákir í upphafi móts gegn and- stæðingum með í kringum 2.200 Elo-stig. Ingvari Þór Jóhannessyni liðsstjóra tókst vel upp með ís- lenska liðið á EM í fyrra en var ekki farsæll í Bakú. Árangur liðsmanna, vinningar og reiknaður árangur var þessi: 1. borð: Hannes Hlífar Stef- ánsson 5 v. af 10 – 2.537 Elo 2. borð: Hjörvar Steinn Grét- arsson 7 v. af 10 – 2.617 Elo. 3. borð: Jóhann Hjartarson 3½ v. af 7 – 2.472 Elo. 4. borð: Guðmundur Kjartansson 5 v. af 9 – 2.466 Elo. 1. varamaður: Bragi Þorfinnsson 5 v. af 8 – 2.469 Elo. Íslenska kvennaliðið hafnaði um mitt mót, eða í 78. sæti. Lenka Ptacnikova hefur um langa hríð verið akkerið í þessu liði og ágætur grunnur Hallgerðar Helgu Þor- steinsdóttur skilaði stigahækkun upp á 35 Elo-stig. Hrund Hauks- dóttir og Veronika Steinunn Magnúsdóttur bættu báðar ætl- aðan árangur sinn en Guðlaug Þor- steinsdóttir var langt frá sínu besta. Þegar allt er tekið saman skilaði liðstjóri kvennaliðsins, Björn Ívar Karlsson, góðu verki. Árangur liðsins var þessi: 1. borð: Lenka Ptacnikova 7 v. af 11 – 2.276 Elo 2. borð: Guðlaug Þorsteinsdóttir 2 v. af 9 – 1.893 Elo. 3. borð: Hallgerður Helga Þor- steinsdóttir 6½ v. af 10 – 2.135 Elo. 4. borð: Hrund Hauksdóttir 2½ v. af 6 – 1.846 Elo. 1. varamaður: Veronika Steinunn Magnúsdóttir 2½ v. af 6 – 1.802 Elo. Torre hetja Ólympíumótsins Ólympíuskákmótin eru gríð- arlega stór viðburður þar sem saman safnast skákmenn úr öllum heimshornum undir kjörorði FIDE, Gens una sumus – Við er- um ein fjölskylda. Athyglin beinist oft að þeim sem fremst standa á hverjum tíma. Heimsmeistarinn Magnús Carlsen hóf mótið á byrj- unarleik sem ekki sést oft, 1. e2-e3. Hann fékk 7½ vinning af 10 mögu- legum og var taplaus. Andstæð- ingur hans í HM-einvíginu í New York í haust, Sergei Karjakin, hlaut sex vinninga úr níu skákum. Filippseyingurinn Eugenio Torre, góðvinur og velgjörðar- maður Bobby Fischer, er 64 ára gamall og tefldi á sínu fyrsta Ól- ympíumóti í Siegen í V-Þýskalandi árið 1970. Hann var fyrsti stór- meistari Asíu eftir árangur á Ól í Nice í Frakklandi sumarið 1974. Hann tefldi á sínu 23 Ólympíumóti, sem er þátttökumet. Frammistaða hans í Bakú verður lengi í minnum höfð; hann hlaut flesta vinninga allra keppenda, 10 vinninga af ell- efu mögulegum, árangur sem reiknast upp á 2.836 Elo stig. Sögulegur sigur Bandaríkjamanna  Kína vann kvennaflokkinn á Ólympíuskákmótinu með yfirburðum  Íslensku liðin misstu flugið Karlasveitin Íslenska liðið í opnum flokki endaði í 60. sæti á Ólympíuskákmótinu í Bakú sem lauk í vikunni. Kvennasveitin Íslenska kvennaliðið endaði í 78. sæti á Ólympíuskákmótinu. Ban Ki-moon, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, og Nicola Sturgeon, forsætisráðherra Skot- lands, flytja stefnuræður á þingi Arc- tic Circle – Hringborði norðurslóða, sem haldið verður í Hörpu 7.-9. októ- ber næstkomandi. Auk þess munu ráðherrar frá ýms- um löndum, forystumenn vísinda- stofnana, atvinnulífs, heimsþekktra umhverfissamtaka og frumbyggja- samfélaga taka þátt í störfum þings- ins. Alls verða á þinginu yfir 90 mál- stofur og málshefjendur verða um 400 fyrirlesarar og ræðumenn. Þátttakendur í þinginu koma frá tugum landa, öllum ríkjum Norður- skautsráðsins og forysturíkjum í Evrópu og Asíu. Eins og á fyrri þing- um hefur verið ákveðið að bjóða áhugasömum almenningi á Íslandi að taka þátt í þinginu og kynna sér þannig alþjóðlegar umræður og áherslur í málefnum norðurslóða. Þátttakendur geta skráð sig á heima- síðu Hringborðsins – www.arcticc- ircle.org – en þar er jafnframt birt dagskrá þingsins, skrá yfir allar mál- stofur, ræðumenn og fyrirlesara. Í fréttatilkynningu kemur fram að Arctic Circle hafi á fáeinum árum orðið stærsti alþjóðlegi vettvangur um málefni norðurslóða. Á þinginu í ár verður m.a. gerð grein fyrir áherslum ríkisstjórnar Baracks Obama í formennskutíð Bandaríkj- anna í Norðurskautsráðinu, þróun Yamal Nenets, eins helsta norður- svæðis Rússlands, og stefnu Rúss- lands í málefnum norðurslóða, áherslum kanadískra, norskra og danskra stjórnvalda og stofnana, sýn ríkisstjórna Grænlands og Færeyja sem og baráttumálum alþjóðlegu um- hverfissamtakanna World Wildlife Fund og Greenpeace. Sérstakar mál- stofur verða um framlag stjórnvalda og rannsóknarstofnana í Sviss og Hollandi til þróunar norðurslóða. Einnig verður ítarlega fjallað um vísindalegar rannsóknir á norður- slóðum og þróun loftslagsmála. Þekktir ræðumenn á Hringborðinu  400 fyrirlesarar og ræðumenn Nicola Sturgeon Ban Ki-moon

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.