Morgunblaðið - 15.09.2016, Qupperneq 40
40 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. SEPTEMBER 2016
ÞJÓÐVEGURINN
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Í Vestfjarðaferð, þegar halda átti
suður, var tvennt í boði. Annars veg-
ar að sigla með Baldri yfir Breiða-
fjörð eða aka inn Barðastrand-
arsýslu, þræða firðina og fara fyrir
nes, múla og yfir hálsa. Sjá sögustaði
og fallega náttúru, slóðir þjóðskálds,
amerískra auðdísa og sviðsmynd úr
bíói. Valið varð auðvelt.
Fornar sögur greina frá því að
landneminn Hrafna-Flóki hafi komið
í Vatnsfjörð árið 865. Þar var sumar-
fagurt en líka vetrarþungt svo að
firðir voru fullir af ís. Því kom Flóki
með nafnið Ísland. Nærri hótelinu
Flókalundi hefur Hrafna-Flóka verið
reist minnismerki.
Eyðibyggð í Múlasveit
Stærri í brotinu á þessu svæði eru
þó önnur mannanna verk, svo sem í
Kjálkafirði og Mjóafirði, sem eru
næstir innan við Vatnsfjörð. Á síð-
asta ári var lokið við að þvera þá báða
með uppfyllingum og brúm, en lagð-
ur við 16 kílómetra langur nýr vegur
– jafnvel hraðbraut – sem stytti leið-
ina um átta kílómetra. Miklu þótti
muna að fá þennan spotta og losna
við tvo firði af tíu, sem af landakorti
séð minna á tennur í stórviðarsög.
Í Kjálkafirði erum við í Múlasveit,
sem nær að Kletthálsi við vest-
anverðan Skálmarfjörð. Þegar best
lét var setið á rúmlega öðrum tug
bæja í Múlasveit. Búskapur þar og
samgöngur voru erfiðar og því gáfust
bændur upp, fluttu upp af jörðum
sínum og fluttust á brott fullir trega.
Nú er engin byggð í þessari sveit,
Múlasveit fór í eyði um 1970. Víða á
fólk sér þó sumardvalarstaði á þess-
um slóðum, svo sem fram í Skálmar-
nesmúla þar sem er kirkja.
Wathne-systur og
Ameríkuvegur
Um Múlasveit, frá Kjálkafirði að
Klettshálsi, eru um 20 kílómetrar.
Klettsháls er 332 metra hár fjall-
vegur og stundum erfiður yfirferðar
á veturna. Þegar komið er yfir þenn-
an hrygg að austan tekur við Kolla-
fjörður, þar sem flugbraut við bæinn
Eyri, skammt frá þjóðvegi, vekur at-
hygli. Skammt ofan við brautina er
svo sumarhús sem er í eigu hinna
þekktu Wathne-systra. Þær eru af ís-
lenskum ættum en búa í New York
og hefur orð farið af ríkidæmi þeirra
þar.
Reyndar er fleira í þessari eyði-
byggð sem minnir á Bandaríkin, þar
sem hinn frægi vegur Road 66 þverar
landið. Úr botni fjarðarins liggur
leiðin upp á Kollafjarðarheiði sem
liggur yfir í Ísafjarðarveg – og er
þetta fjallvegur sem er merktur F-66
í vegaskrá.
Harðfiskur og
Börn náttúrunnar
Þegar komið er út Kollafjörð er
ekið fyrir Skálanes. Þar lá vegurinn
áður um bæjarhlað en var færður
fyrir nokkrum árum. Fram undir
aldamót var þarna rekin bensínsala
og kaupfélagsbúð og því umhverfi
sést bregða fyrir í kvikmyndinni
Börnum náttúrunnar. Þá var versl-
unin þekkt fyrir harðfiskinn; rikling
sem Katrín Ólafsdóttir seldi og var
jafnframt fyrirsæta ljósmyndaglaðra
túrista.
Þegar komið er fyrir Skálanes tek-
ur við Gufudalssveit. Inni af botni
Gufufjarðar eru fjórir bæir og frá
mannlífi þar segir í hliðargrein með
þessari samantekt. Fólk þar skiptir
miklu að lagður verði vegur um
Teigsskóg með utanverðum Þorska-
firði, en því myndi fylgja að Djúpi- og
Gufufjörður yrðu þveraðir. Þær fyr-
irætlanir hafa verið strand árum
saman, en eru þýðingarmiklar því þá
væru menn líka lausir við vegina yfir
Ódrjúg- og Hjallahálsa með sínum
húrrandi háu brekkum sem mörgum
ofbjóða.
Fyrirmynd Akureyrarkirkju
Þegar ekið er yfir Hjallaháls að
austan er komið í Þorskafjörð. Vaðal-
fjöll eru hér áberandi kennimark,
tveir samstæðir stuðlabergshnjúkar.
Er hermt að Guðjón Samúelsson
húsameistari hafi haft þá til hlið-
sjónar þegar hann teiknaði Akur-
eyrarkirkju, en þjóðskáldið sr. Matt-
hías Jochumsson, sem kirkjan er
stundum kennd við, er frá bænum
Skógum og þar er minnismerki hans.
Þegar úr Þorskafirði er komið eru
vegfarendur á sléttlendi, á beinum
vegi inn sveitina sem kennd er við
Reykhóla, þótt drjúgur spotti sé af
þjóðvegi fram í þorp. Er þá farið um
Barmahlíð, sem er hin eina sanna
hlíð sem skáldið Jón Thoroddsen orti
um ljóðið Hlíðin mín fríða. Hún er þó
ekkert endilega öðrum hlíðari fríðari.
En hver sér landið með sínum augum
og það breytist sífellt – og þegar á
flakki þessu var komið að Króks-
fjarðarnesi og Gilsfirði var allt með
ævintýrablæ. Síðdegissólin hafði með
birtubrigðum sínum málað fjöllin
rauð og gyllt sem förumaður dáðist
að því annað var ekki hægt.
Kollafjörður Stýrishús af gömlum Patreks-
fjarðarbát er nú einskonar flugstöð.
Þorskafjörður Minnismerki um sr. Matthías
Jochumsson á fæðingstað hans að Skógum.
Firðirnir tíu sem tennur í sög
Úr Vatnsfirði í Króksfjarðarnes á sunnanverðum Vestfjörðum Firðir, hálsar, nes og múlar
Hraðbraut í eyðibyggðum og Road 66 Hrafna-Flóki, flugbraut og þjóðskáldið Matthías
Neyðarskýli Hjallaháls getur verið erfiður og
hafa skýli frá slysavarnafélaginu komið sér vel.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Flugsýn Mjóifjörður og Kjálkafjörður og Litlanes á milli. Firðir eru þveraðir og brúaðir og afstaðan sést vel úr lofti.
Skálanes Gömul kaupfélagsbúð og þetta er
sviðsmynd í þekktri íslenskri bíómynd.
Vestfjarðaleiðin
KJ
ÁL
KA
FJ
ÖR
ÐU
R
VATNSFJÖRÐUR
MJÓIFJÖRÐUR
SKÁLMARNESMÚLI
EYRI
SKÁLANES
VAÐALFJÖLL
SK
ÁL
M
AR
FJ
ÖR
ÐU
R
KO
LL
AF
JÖ
RÐ
UR
ÞORSK
A- F
JÖ
RÐ
UR
TEIGSKÓGUR
BARMAHLÍÐ
GUFUDALUR
Helstu kostir kerranna eru:
• 7 blaða blaðfjaðrir tryggja góða fjöðrun.
• Stórar legur í hjólnáum og 6,50 x 16“ dekk.
• Plast á fjaðraendum dregur úr hávaða.
• Hraðlæsing á afturhlera.
• Öryggislæsing á dráttarkúlu.
• Hluti framhlera opnanlegur sem auðveldar
upprekstur gripa á kerruna.
• Heilsoðinn botnplata við hliðar einfaldar þrif
og eykur styrk kerrana.
Kr.1.390.000
Einnig sturtukerrur,
flatvagnar og vélakerrur!
+
vs
k
Kr. 1.723.600 með vsk.
Gripakerrur
Höfum hafið innflutning á vönduðum breskum
gripakerrum frá framleiðandanum Indespension.
Austurvegur 69 - 800 Selfoss Lónsbakki - 601 Akureyri Sólvangi 5 - 700 Egilsstaðir
Sími 480 0400 jotunn@jotunn.is www.jotunn.is
Ve
rð
og
bú
na
ðu
rb
irt
ur
m
eð
fy
rir
va
ra
um
pr
en
tv
ill
ur
og
/e
ða
m
yn
da
br
en
gl
.
Strikinu 3 • Iðnbúð 2 • Garðabæ • 565 8070 • facebook.com/okkarbakari
SÆLKERA
SÚRDEIGSBRAUÐ
bökuð eftir aldagömlum hefðum
SÍÐDEGISBAKSTUR
Um kl. 15 alla virka daga
tökum við nýbökuð
súrdeigsbrauð úr
ofninum, fást einungis
í Iðnbúð 2
Skoðið
úrvalið á
okkarbakari
.is