Morgunblaðið - 15.09.2016, Side 54
54 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. SEPTEMBER 2016
bestalambid.isBeztu uppskriftirnar okkar
Enn einn dagur
í Paradís
Bez
t á fi
skinn
Vegna mikillar sölu vantar okkur
fasteignir á höfuðborgarsvæðinu,
á söluskrá.
Ef þú ert í söluhugleiðingum,
endilega hafðu samband sem fyrst, í
síma 5334200 eða : arsalir@arsalir.is
Ef þú vilt selja, kaupa eða leigja fasteign,
hafðu samband í síma 533-4200
eða arsalir@arsalir.is
Ágæti fasteigna
eigandi !
Björgvin Björgvinsson,
löggiltur fasteignasali
Örugg og traust þjónusta í
fasteignaviðskiptum í áratugi.
Fjölmiðill í þjón-
ustu almennings
þarf bæði að skipta
máli og koma að
gagni. Í yfir 80 ár
hefur Ríkisútvarpið
verið samferða þjóð-
inni við leik og störf,
boðið upp á fréttir
og dagskrá sem
upplýsir, fræðir og
skemmtir, verið
hreyfiafl góðra
verka og ávallt staðið vaktina þeg-
ar mikið liggur við. Staða RÚV í
dag er traust og við erum vel í
stakk búin til að aðlagast tækni-
og samfélagsbreytingum. Sem
hluta af stefnumótun leitum við nú
eftir aðkomu almennings til að
móta áherslur og forgangsröðun
RÚV til framtíðar. Þannig von-
umst við til að geta sem best sinnt
því hlutverki sem þjóðin væntir af
Ríkisútvarpinu sem við eigum
saman.
Á undanförnum
misserum höfum við
lagt enn ríkari áherslu
á sérstöðu Ríkis-
útvarpsins með því að
setja innlent efni og
menningarefni í for-
gang, bæta þjónustu
við landsbyggðina og
umbylta þjónustu við
börn. Áhersla á nýtt ís-
lenskt leikið efni hefur
verið stóraukin og
vandaður fréttaflutn-
ingur færir okkur nær
viðburðum hér heima
og á alþjóðavísu. Við höfum hafið
samtal við áhorfendur og hlust-
endur um land allt, meðal annars
með hringferð um land allt og
stuðlum þannig að því að þjón-
ustan þróist til framtíðar í takt við
óskir ykkar.
Viðhorf fólks til RÚV jákvæð-
ara en nokkru sinni fyrr
Reglulegar hlustunar- og
áhorfsmælingar draga fram mikla
notkun þjóðarinnar á miðlum
RÚV en ný viðhorfskönnun Gallup
staðfestir einnig að jákvæðni þjóð-
arinnar gagnvart RÚV og þjón-
ustu þess hefur ekki verið meiri
frá því Ríkisútvarpið ohf. var
stofnað árið 2007. Tæp 73% að-
spurðra eru jákvæð gagnvart Rík-
isútvarpinu. Könnunin staðfestir
mikla og aukna ánægju með flesta
þætti starfsemi RÚV og almenna
sátt um nýjar áherslur. Aukin
áhersla RÚV á fjölbreytt íslenskt
efni og menningu í miðlum RÚV
fellur í frjóan jarðveg en mikill
meirihluti svarenda leitar helst
eftir íslensku efni, fréttum og
menningarefni í miðlum Rík-
isútvarpsins. Ánægja með dagskrá
Rásar 1 og RÚV sjónvarps hefur
verið að aukast og 63% lands-
manna eru ánægð með efnisval á
RÚV.is. KrakkaRÚV, ný þjónusta
við börn, fær frábær viðbrögð og
notkun almennings og ánægja með
Sarpinn hefur aldrei verið meiri.
Sem fyrr nýtur RÚV yfirburða-
trausts á íslenskum fjölmiðla-
markaði. Velvild og velgengni sem
staðfest er í könnuninni er þó
fyrst og fremst hvatning um að
halda áfram og gera enn betur.
Því horfum við nú fram á veginn
til að tryggja áframhaldandi dag-
legt samtal við íslenskan almenn-
ing.
Taktu þátt í að móta
framtíðaráherslur RÚV
Grundvallarmarkmið með starf-
semi almannaþjónustumiðils hafa
ekki breyst þó við upplifum örar
samfélags- og tæknibreytingar. Á
tímum þar sem erlent afþreying-
arefni á erlendum tungum er á
hverju strái er enn mikilvægara
en fyrr að þjóðin hafi aðgengi að
vönduðu innlendu efni úr okkar
nærumhverfi, að í boði sé vandað
efni á íslenskri tungu og æsku
landsins bjóðist uppbyggilegt dag-
skrárefni í hæsta gæðaflokki, óháð
búsetu og efnahag. Þörfin fyrir
þjónustu öflugs Ríkisútvarps í
flóru fjölbreyttra erlendra og inn-
lendra einkamiðla hefur því sjald-
an verið meiri. Sem fyrr er gerð
hin sjálfsagða krafa um hag-
kvæmni og áframhaldandi jafn-
vægi í rekstri. Nú og til framtíðar
aukast væntingar um aðgengi
hvar og hvenær sem er.
RÚV hefur verið samferða þjóð-
inni hingað til og ætlar að vera
það áfram. Til að uppfylla nýjar
þarfir þarf að forgangsraða enn
skýrar en fyrr. Við skorum á þig
að hjálpa okkur að móta þjón-
ustuna við þig og næstu kynslóðir.
Við höfum opnað gátt á forsíðu
RÚV.is þar sem við hvetjum þig
til að segja okkur hvað þér finnst.
Því hvetjum við þig til að fara inn
á RÚV.is, segja þína skoðun og
vera þannig með í að móta fram-
tíðina fyrir RÚV okkar allra.
Verum samferða
inn í framtíðina
Eftir Magnús Geir
Þórðarson
Magnús Geir
Þórðarson
» Sem hluta af stefnu-
mótun leitum við nú
eftir aðkomu almenn-
ings til að móta áherslur
og forgangsröðun RÚV
til framtíðar.
Höfundur er útvarpsstjóri.
Viðsnúninginn í
rekstri Hafnar-
fjarðarbæjar á milli
ára, sem nam um 900
milljónum króna og
kemur fram í nýlegu
hálfsársuppgjöri bæj-
arins, má að miklu
leyti rekja til hagræð-
ingaraðgerða sem
gripið var til í kjölfar
rekstrarúttektar á síð-
astliðnu ári. Ein mesta hagræðingin
náðist í útboðum vegna kaupa á
þjónustu fyrir sveitarfélagið. Alls
nemur sparnaðurinn á ári vegna
þeirra um 150 milljónum króna eða
600 milljónum króna á heilu kjör-
tímabili. Er hér um að ræða trygg-
ingar, endurskoðun, símakostnað og
fleira.
Ýmis störf og verkefni voru end-
urskipulögð og samningar endur-
skoðaðir sem leitt hafa til um 160
milljóna króna sparnaðar og svo
mætti áfram telja um fjárhagsleg
áhrif aðgerðanna. Þessi hagræðing
náðist með því að fara ítarlega í
gegnum alla þætti rekstrarins. Sú
mikla vinna hefur ekki einungis leitt
til sparnaðar heldur hefur þjónusta
sveitarfélagsins við íbúa og fyrir-
tækin verið efld á sama tíma. Hér er
því um að ræða betri nýtingu á fjár-
munum skattgreiðenda, en það eru
jú þeir sem standa undir rekstri
bæjarins.
Svigrúm til að styrkja innviði
Þessi árangur hefur leitt til þess
að nú fer að sjá til sólar í fjármálum
bæjarfélagsins. Framundan er hrað-
ari niðurgreiðsla óhagstæðustu
skulda bæjarins og þar með lækkun
fjármagnskostnaðar sem hefur verið
einn af stærstu útgjaldaliðum bæj-
arfélagsins.
Það léttir talsvert á rekstrinum og
skapar jafnframt svigrúm til að ráð-
ast í nauðsynlegar framkvæmdir
sem verða fjármagnaðar með eigin
fé.
Nýlega var opnaður nýr leikskóli í
Hafnarfirði sem eingöngu var
byggður fyrir eigið fé sveitarfé-
lagsins. Yfirstandandi
ár er það fyrsta í hálf-
an annan áratug sem
bærinn þarf ekki að
taka lán til fram-
kvæmda eða til að
borga af lánum. Á
árinu hefur búnaður
eins og tölvur inni í
leik- og grunnskólum
bæjarins verið end-
urnýjaður að hluta eft-
ir uppsafnaða þörf.
Stefnt er að því að
gera enn betur í þeim
efnum ásamt því að auka fjármagn
til viðhalds. Spjaldtölvuvæðing nem-
enda er hafin og áætlað að í byrjun
árs 2018 verði allir nemendur í 5.-10.
bekk í grunnskólum Hafnarfjarðar
komnir með slík tæki. Þá hefur
kennsluúthlutun verið aukin um-
fram fjölgun nemenda í grunn-
skólum bæjarins og þar með stöðu-
gildum kennara verið fjölgað,
leikskólagjöld ekki hækkað í þrjú ár,
niðurgreiðslur auknar til dagfor-
eldra og frístundastyrkir auknir.
Lægri álögur og gjöld
Þessi breytta staða sýnir okkur að
með markvissum og vel ígrunduðum
aðgerðum er hægt að ná árangri í
opinberum rekstri án þess að bitni á
þjónustu. Að mínu mati á það jafnan
að vera keppikefli kjörinna fulltrúa
að fara vel með fjármuni skattgreið-
enda. Að nýta þá fyrst og fremst í
þau verkefni sem hinu opinbera ber
að sinna og gera það þá af metnaði.
Í Hafnarfirði munum við halda
áfram á sömu braut, sýna ábyrgð og
ráðdeild í rekstrinum til hagsbóta
fyrir Hafnfirðinga og framtíð þeirra.
Þá fer líka að verða grundvöllur til
þess að lækka álögur og gjöld í
bæjarfélaginu.
Eftir Rósu
Guðbjartsdóttur
» Í Hafnarfirði munum
við halda áfram á
sömu braut og sýna
ábyrgð og ráðdeild í
rekstrinum …
Rósa Guðbjartsdóttir
Höfundur er formaður bæjarráðs
Hafnarfjarðar.
Ráðdeild skilar ár-
angri í Hafnarfirði
Ég hefi verið að lesa
doktorsrit Soffíu Auð-
ar Birgisdóttur, Um
skrif Þórbergs Þórð-
arsonar. Mér finnst
bókin fróðleg og góð,
einkum vel til fundið
að enda hana á áhrif-
um Þórbergs á nýleg
skrif. E.t.v. finnst mér
bókin góð vegna þess
sem finna mætti að
henni: að hún velji úr, fjalli mjög lítið
um þau skrif Þórbergs sem minnst
hefur þótt til koma, bókina um Einar
ríka, Rauðu hættuna og Alþjóðamál
og málleysur. Þar hefði þó mátt
nefna hvað að þótti. En slæman
skalla finn ég í bókinni og þar sem
hann snýr að mér, verð ég að víkja
að honum.
Fyrst verð ég þó að nefna, að Ís-
lenskur aðall byggir á aldarfjórð-
ungsgömlum dagbókarfærslum Þór-
bergs. Hann þurfti sem sagt að hafa
forsaminn texta til að byggja á, jafn-
vel sjálfsævisögulegan texta! Þetta
segir töluvert um vinnubrögð Þór-
bergs og því hefði Soffía mátt segja
frá því, en gerir ekki. Hitt er þó
verra, að „Elskan mín“ í Íslenskum
aðli er samin upp úr dagbók-
arfærslum um Arndísi
Jónsdóttur frá 1912 og
Tryggva Jónsson frá
1916! T.d. færslan um
veruna í lautinni, fjar-
lægðina milli þeirra,
o.fl. Enda segist Þór-
bergur margoft „elska
Tryggva“ í þessum dag-
bókarfærslum. Hann
ætti að vita hvað hann
var að segja, kominn
undir þrítugt, og hafði
haft náin kynni af kon-
um. Þá skilst betur
uppburðarleysi Þórbergs gagnvart
„Elskunni sinni“ í Íslenskum aðli,
sem oft hefur verið rætt um. Það var
öllu erfiðara fyrir karlmann að leita
á karlmann fyrir 100 árum en nú. Að
þessu vék ég í grein um dagbækur
Þórbergs í Lesbók Morgunblaðsins
8. júní 1985 og DV í nóvember 1986
og 14. desember 1987. Og þetta
skiptir máli í skrifum Þórbergs,
miklu meira en hitt hvort hann var
bí.
Skalli í Þórbergs-
bók Soffíu Auðar
Eftir Örn
Ólafsson
Örn Ólafsson
» Góð bók en gölluð.
Höfundur er bókmenntafræðingur í
Kaupmannahöfn.