Morgunblaðið - 15.09.2016, Blaðsíða 56
Petrea Ingibjörg
Halldórsdóttir var
fædd á Grund á Akra-
nesi 29. desember
1879. Foreldrar henn-
ar voru Ragnheiður
Þorgrímsdóttir Thor-
grímsen, húsmóðir
þar, og fyrri maður
hennar Halldór Ein-
arsson, en hann
drukknaði í Hoff-
mannsveðrinu 7.-8. janúar 1884.
Seinni maður Ragnheiðar var Þor-
steinn Runólfur Jónsson. Með fyrri
manni sínum, Halldóri, eignaðist
Ragnheiður sex börn. Fjögur létust í
frumbernsku, Þorgrímur, Gunn-
hildur, Jón og Ingibjörg, en upp
komst auk Petreu, Gunnhildur,
yngri, sem féll frá í blóma lífsins að-
eins 22ja ára að aldri, en hún hafði
þá nýlokið ljósmæðranámi. Petrea
Ingibjörg varð hins vegar háöldruð,
lést árið 1972, 92ja ára að aldri.
Ragnheiður á Grund, móðir Petreu,
var orðlögð gæðakona. Hún var
margfróð og minnug og mikill
blóma- og dýravinur.
Halldór Einarsson og
Hoffmannsveðrið
Halldór, faðir Petreu, var útvegs-
bóndi á Grund og þótti afburðamað-
ur að viti og orku, vin-
sæll og raungóður.
Halldór var glæsi-
menni, veðurglöggur
og kom fólki sífellt á
óvart, og eru til margar
sögur af honum og ein-
stakri forspá hans. Um
sjóslysið mikla nóttina
milli 7. og 8. janúar
1884, kennt við Hoff-
mannsveðrið, má lesa í
bókinni „Úr byggðum
Borgarfjarðar“ II.
hefti (bls. 231) eftir
Kristleif Þorsteinsson og einnig í
„Borgfirzkri blöndu“ Braga Þórð-
arsonar, II. hefti (bls. 135, „Örlaga-
nótt yfir Akranesi“). Einnig má lesa
um þessa atburði í Annál nítjándu
aldar, Sögu Akraness eftir Ólaf B.
Björnsson og víðar. Þrjú hákarla-
skip fórust í Hoffmannsveðrinu, eitt
af Álftanesi og tvö frá Akranesi, en á
Akranesi bjuggu þá á sjötta hundrað
íbúar. Þetta eina slys var mikil blóð-
taka fyrir Akranes; 18 úrvalsmenn á
besta aldri drukknuðu, en það voru
um 3,3% íbúanna. Í dag, miðað við
íbúatölu á Akranesi, þýddi það að
230 menn á besta aldri drukknuðu á
einum og sama deginum. Það er því
engin furða að þetta mikla slys hafi
lengi búið í hugum íbúa Akraness.
Þorsteinn Jónsson á Grund
Með síðari manni sínum, Þor-
steini, átti Ragnheiður á Grund eina
dóttur, Emilíu, sem fæddist þann 17.
febrúar 1886, og sem lést 74ra ára að
aldri 30. júlí 1960. Ári eftir að Emilía
fæddist flytja þau Ragnheiður og
Þorsteinn ásamt dætrunum að Mel-
um í Melasveit og búa þar næstu
fimm árin (1887-1891). Petrea var
orðin átta ára þegar þau fluttu í
sveitina en 13 ára þegar þau komu
aftur að Grund, þar sem þau hjón
bjuggu upp frá því. Miklir kærleikar
voru alla tíð milli Petreu og fóstur-
föður hennar, Þorsteins. Þorsteinn
stundaði barnakennslu um 20 ára
skeið og var auk þess útvegsbóndi.
Hann var oddviti í 12 ár og sýslu-
nefndarmaður í 26 ár. Hann tók mik-
inn þátt í félagsstörfum á Akranesi
og skrifaði fjölda greina í blöð og
tímarit, auk þess sem hann orti
reglulega vísur og lengri kvæði. Þor-
steinn var einn þeirra sem áttu til-
lögu um þjóðfána Íslands, en árið
1914 hafði verið óskað eftir tillögum
almennings að hönnun íslenska fán-
ans sem skyldi verða sérfáni fyrir
Íslendinga.
Petrea og Hans Júlíus
19 ára að aldri fer Petrea í
Kvennaskólann í Reykjavík og er
þar 1898-99. Síðan fer hún í mat-
reiðslunám til Kaupmannahafnar,
en skólaganga kvenna var fátíð á
þessum árum og óþekkt á Akranesi.
Hún er tvítug árið 1899 þegar hún
trúlofast Hans Júlíusi Jörgensen, en
þau eru gefin saman árið 1902 og
búa þau saman í Reykjavík frá 1902
til 1908, eða sex ár, en Hans Júlíus
deyr það ár, aðeins 33ja ára að aldri.
Petrea fór að vinna ýmis veitinga-
störf í Reykjavík, meira eða minna
um 30 ára skeið, aðallega hjá Doro-
theu tengdamóður sinni og seinni
manni hennar, Halberg veitinga-
manni á Hótel Íslandi, þ.e. til 1934,
en flytur það ár aftur til Akraness og
átti heima þar til dánardægurs, fyrst
á Grund, Vesturgötu 47 hjá systur
sinni, Emilíu, og hennar manni,
Þórði Ásmundssyni. Í því húsi dvaldi
hún til 1966, síðan hjá Ólínu Þórðar-
dóttur systurdóttur sinni og manni
Eftir Ásmund
Ólafsson
»Hótel Ísland, hið
fyrsta hótel hér á
landi, átti sér langa og
viðburðaríka sögu og þar
voru m.a. helstu veislur
og dansleikir haldnir
næstu tvo áratugi.
Ásmundur Ólafsson
Listaverk Þessar tvær klukkur eru mikil listaverk úr eigu Frakkakonunga,
önnur þeirra er í Alþingishúsinu, hin er í Háskóla Íslands.
Ljósmynd/Junker Jensen, Kaupmannahöfn
Yngismær Petrea Ingibjörg Hall-
dórsdóttir Jörgensen, um tvítugt.
Ljósmyndari óþekktur.
Á Akranesi Til vinstri er æskuheimili Petreu, Grund á Akra-
nesi, en húsin fjær eru Böðvarshús. Fyrir neðan þessi hús er
Lambhúsasund, en þaðan ýttu skipin úr vör sem fórust í Hoff-
mannsveðrinu 1884.
Heimsókn Petrea Jörgensen fær heimsókn frá Akranesi, en þá bjó hún í
Halbergshúsinu, Laufásvegi 9 í Reykjavík. Frá vinstri Ólína Þórðardóttir,
Þórður Ásmundsson, Ragnheiður Þórðardóttir og systir Petreu, Emilía
Þorsteinsdóttir. Petrea er sjálf lengst til hægri. Myndin er tekin af Ólafi Fr.
Sigurðssyni árið 1930 í sambandi við Alþingishátíðina á Þingvöllum.
Heiðurskonan af Skaganum og Hótel Ísland
Ljósm. óþekktur
Aðalstræti Verslun Gunnars Þorbjörnssonar við
Aðalstræti. Á myndinni sést vatnsburðarkona með
fötur og vatnsgrind á leið í Prentsmiðjupóstinn
(vatnspóst/vatnsdælu). Maðurinn hefur líklega
haft þann starfa að hreinsa götur.
56 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. SEPTEMBER 2016
Feld
u
það
Reyktur
og grafinn
lax
Söluaðilar: 10-11, Hagkaup, Iceland verslanir, Kostur, Kvosin, Melabúðin, Nettó,
Pure Food Hall flugstöðinni Keflavík, Samkaup, Sunnubúðin.
• Í forréttinn
• Á veisluborðið
• Í smáréttinn
Alltaf við hæfi