Morgunblaðið - 15.09.2016, Síða 64
64
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. SEPTEMBER 2016
Bergljót Friðriksdóttir
beggo@mbl.is
„Hugmyndin að vörumerkinu kvikn-
aði kvöld eitt rigningarsumarið 2013;
þá sátum við saman tvenn vinahjón,
innandyra því það stytti ekki upp, og
veltum því fyrir okkur hvar hægt
væri að finna góðar, flottar regnkáp-
ur á Íslandi,“ segir Grímkell Sig-
urþórsson, margmiðlunarhönnuður
og einn eigenda Reykjavik Raincoats.
„Umræðan var nostalgísk, okkur
langaði mest í „vintage“-regnkápu,
klassíska, endingargóða flík, svona
eins og allir áttu hér á árum áður.
Þessar vangaveltur urðu kveikjan að
stofnun fyrirtækisins Reykjavik Ra-
incoats ári síðar. Okkur fannst svo lít-
ið spennandi í boði hér þegar kom að
regnjökkum fyrir konur og karla og
ákváðum því að skapa okkar eigin
vörulínu.“
Að baki fyrirtækinu standa auk
Grímkels eiginkona hans, Hildur
María Gunnarsdóttir hótelstýra, Sig-
urður Gilbertsson úrsmiður og hans
kona, Heiða Þorsteinsdóttir sölumað-
ur. „Hugmyndin var að hanna „uni-
sex“-regnkápu fyrir bæði kynin, sem
væri smart, þægileg, tímalaus og
hefði umfram allt mikið notagildi. Við
sáum fyrir okkur að eigandinn tæki
rigningardögum fagnandi, enda gæf-
ist þá gott tækifæri til að klæðast
nýju regnkápunni. Reyndar eru flík-
urnar þannig að þær eru flottar
hvernig sem viðrar og okkar við-
skiptavinir og við sjálf notum þær
sem skjólflíkur, jafnvel þótt hann
hangi þurr. Í rauninni er það þannig
að þegar maður hefur eignast góða
regnkápu frá Reykjavik Raincoats
verður rigningin algjört aukaatriði.“
Yfir kjólinn
Nánar um regnkápuhugmyndina –
hvernig varð hún að veruleika?
„Við fjórmenningarnir lögðumst í
heilmikla rannsóknar- og undirbún-
ingsvinnu; stúderuðum hvernig regn-
kápur voru framleiddar hér áður fyrr
og hvernig sniðin voru. Við einsettum
okkur að hanna hina fullkomnu regn-
kápu, sem myndi henta bæði fyrir
dömur og herra og yrði framleidd í
stærðum samkvæmt því.
Kápan átti að vera einföld í sniðum,
en umfram allt þurfti hún að vera
endingargóð og 100% vatnsheld. Við
vildum búa til regnflík sem myndi
henta sem yfirhöfn alla daga, hvers-
dags en líka yfir betri klæðnað, bæði
jakkaföt og kjól. Það tók okkur sex
mánuði að finna rétta framleiðand-
ann, við vildum að hann yrði í Evrópu
í ekki of mikilli fjarlægð og gæti
handsaumað regnkápur í hæsta
gæðaflokki eftir okkar hugmyndum.“
Vörulínan – litir og stærðir?
„Við framleiðum kápurnar núna í
sex litum, þær fást gular, rauðar,
grænar, bláar, svartar og hvítar, í
stærðunum XXXS og upp í XL.
Regnkápurnar eru framleiddar úr
hágæðablöndu af bómull og PVC-
vínylgúmmíi, en það er sýruþolið og
einkar slitsterkt efni sem harðnar
ekki eða springur með árunum. Káp-
urnar eru í klassískum stíl með hettu,
smellluhnöppum, tvöföldum saumi og
sérstakri þéttivörn að innanverðu til
að auka vatnsvörnina.“
Hittu í mark
Hvernig skiptið þið fjögur með
ykkur verkum hjá Reykjavik Rain-
coats?
„Ég sé um alla hönnunarvinnu og
teikningu, en þau hin koma að sjálf-
sögðu með hugmyndir sem ég vinn út
frá. Í sameiningu sjáum við svo um
daglegan rekstur, bókhald og sam-
skipti við framleiðsluaðila. Heiða,
kona Sigurðar, sér ein um allt ut-
anumhald, birgðabókhald og sam-
skipti við þær verslanir sem selja vör-
urnar okkar – Epal í Hörpu og við
Laugaveg, Kraum í Bankastræti og
Bláa lónið.“
Hittu regnkápunar ykkar beint í
mark?
„Regnkápur duttu einhvern veginn
alveg úr tísku hér fyrir allmörgum ár-
um, maður skilur það auðvitað ekki al-
veg því á Íslandi rignir oft ansi hressi-
lega. En nú er regnkápan búin að
stimpla sig aftur inn og ég held að
flestir átti sig á því að hún er ómiss-
andi, líka fyrir fullorðna. Það er ekki
hægt að búa á Íslandi nema eiga góða
regnkápu, það er bara staðreynd.
Við kynntum fyrstu Reykjavik
Raincoats-kápurnar sumarið 2014 og
fengum frábærar viðtökur. Við fórum
varlega af stað, byrjuðum á að fram-
leiða kápurnar í litlu magni og því
voru þær oft uppseldar fyrstu mán-
uðina. Við höfum svo smátt og smátt
aukið framleiðsluna og vöruúrvalið, en
salan hefur vaxið jafnt og þétt allt frá
byrjun.“
Nýtt í þróun
Viðskiptavinahópurinn – bæði Ís-
lendingar og erlendir ferðamenn?
„Íslendingar hafa verið mjög dug-
legir að kaupa regnkápurnar frá okk-
ur, en líka erlendir ferðamenn. Oft
panta útlendingar sér flík í gegnum
vefsíðuna okkar eftir að þeir eru
komnir aftur heim til sín, en við send-
um vöruna um allan heim.“
Er von á nýjungum frá Reykjavik
Raincoats?
„Við erum að sjálfsögðu alltaf að
spá og spekúlera í nýjum hlutum og
vonumst til að kynna bæði ný snið og
efni á næsta ári.
Því má bæta við að ég og Sigurður
rekum jafnframt fyrirtækið JS Watch
Company Reykjavik, þar sem við bæði
hönnum og framleiðum íslensku úrin
vinsælu á úrsmíðaverkstæði Gilberts
úrsmiðs, föður Sigurðar. Við fé-
lagarnir erum því sískapandi og kast-
andi hugmyndum á milli – stundum
tölum við bara um úr, en aðra daga
kemst ekkert annað að en regnkápur.“
www.reykjavikraincoats.com
Rigningin algjört aukaatriði
Vörumerkið „Okkur fannst svo lítið spennandi í boði hér á landi þegar kom
að regnjökkum fyrir konur og karla og ákváðum við því að skapa okkar eig-
in vörulínu,“ segir Grímkell Sigurþórsson, margmiðlunarhönnuður og einn
af eigendum hins litríka regnfatamerkis Reykjavik Raincoats.
Ljósmynd/Sigurður Gilbertsson
Sniðið Regnkápurnar frá Reykjavik Raincoats eru „unisex“ í sniðinu og
henta því jafnt konum sem körlum, eins og glöggt má sjá.
Hönnunin Tvöfaldur saumur og smelluhnappar eru meðal þess sem ein-
kennir hönnunina frá Reykjavik Raincoats. Áhersla er lögð á gæðin.
Regnkápurnar frá Reykjavik Raincoats hafa fengið mjög góðar
viðtökur Jafnt Íslendingar sem erlendir ferðamenn spenntir
Skjólflíkurnar eru sígildar og vandaðar, hannaðar með það fyrir
augum að endast Henta vel í öllum veðrum
HAUSTFATNAÐUR