Morgunblaðið - 15.09.2016, Side 76
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. SEPTEMBER 2016
Smáauglýsingar
Gisting
Geymslur
Ferðavagnageymsla
Borgarfirði
Geymum tjaldvagna, fellihýsi, hjól-
hýsi, báta og fleira í upphituðu rými.
Gott verð. Sími 499-3070.
Sólbakki.
Byggingavörur
Harðviður til húsabygginga
Sjá nánar á www.vidur.is
Vatnsklæðning, panill, pallaefni,
parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu
verði. Nýkomnar Eurotec A2 harð-
viðarskrúfur. Penofin harðviðarolía.
Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf.
Upplýsingar hjá Magnúsi í símum
6600230 og 5611122.
Ýmislegt
Sundbolir • Tankini
Bikini • Strandfatnaður
Undirföt • Náttföt
Sloppar • Undirkjólar
Inniskór • Aðhaldsföt
Frú Sigurlaug
Fylgstu með á facebook
Mjódd s. 774-7377
10.5
00.
-
11.9
00.
-
11.9
00.
-
11.9
00.
-
Vandaðir herraskór úr leðri frá
JOMOS
Teg: 208204 Herraskór úr leðri,
skinnfóðraðir með góðum sóla. Litir:
cognac, mokka og svart. Stærðir: 40
- 48. Verð 15.500
Teg: 420408 Einstaklega mjúkir og
góðir herraskór úr leðri,
skinnfóðraðir og með góðum sóla.
Stærðir: 40 - 48. Verð 19.885.-
Laugavegi 178
Sími 551 2070.
Opið mán.-fös. 10–18,
opið 10-14 laugardaga.
Sendum um allt land
Erum á Facebook.
Uppí 70% afmælisafsláttur
í nokkra daga. Vönduð armbandsúr á
ótrúlegu verði eða frá 5.000 kr. Pierre
Lannier Paris, frönsk hönnun og
smíði. 2ja ára alþ. ábyrgð.
ERNA Skipholti 3,
s. 552 0775,
www.erna.is
Bílaþjónusta
GÆÐABÓN
Ármúla 17a
Opið mán.-fös. 8-18. S. 568 4310
Það besta fyrir bílinn þinn
Alþrif, djúphreinsun, mössun, teflon,
blettun, bryngljái, leðurhreinsun.
Ökukennsla
Vönduð, vel búin kennslubifreið
Subaru XV 4WD .
Akstursmat og endurtökupróf.
Gylfi Guðjónsson,
sími 6960042,
Húsviðhald
Ríf ryð af þökum
og ryðbletta
Hreinsa þakrennur
fyrir veturinn o.fl.
Uppl. í síma 847 8704
manninn@hotmail.com
Laugavegi 82,
á horni Barónsstígs
sími 551 4473
www.lifstykkjabudin.is
Kíktu á heimasíðuna
lifstykkjabudin.is
Mikið úrval
Póstsendum
Hlýtt í
ferðalagið
Ullar- og
silki-
nærfatnaður
Bókhald
NP Þjónusta
Tek að mér bókhald, endurútreikning
og vsk.
Hafið samband í síma: 861-6164.
Ásta systir er far-
in frá okkur.
Mínar fyrstu
minningarnar um
hana eru þegar litla systir, ég, var
að hefja skólagöngu í Langholts-
skóla. Stolt með stílabók og
reikningsbók sýndi ég systur
bækurnar mínar.
Ég átti að skrifa og reikna.
Systir mín sat hjá mér og sagði
engin asnaeyru á bókunum.
Hún sat alltaf yfir mér þegar ég
var með heimanám. Engin asna-
eyru. Reikningsdæmin áttu að
vera með tveimur beinum strikum
undir svarinu. Eftir þennan vetur
kom kennarinn til mín og spurði
hvort hún mætti eiga bækurnar
mínar. Já, systir, þú kenndir mér
snemma að fara vel með. Kenn-
arinn fékk bækurnar.
Ég varð fyrir því óláni að vera
lögð í einelti, tvær stúlkur og tveir
drengir. Í dag er ég 67 ára og man
ég ennþá nöfnin á þeim. Þegar ég
slapp frá þeim fór ég beint til syst-
ur í Álfheimunum, hún stappaði í
mig stálinu og sagði: „Það er ekk-
ert athugavert við þig.“
Síðar kynntist Ásta Erlingi
mági, sem ég varð þegar hrifin af.
Dag einn lá ég í rúminu með
flensu. Þá komu þau til mín með
nammi og dúkkulísur.
Þau voru svo flott, í eins gráum
peysum á leið í útilegu. Ég gat
ekki farið með þeim, enda veik.
Eins gott því Erlingur hefði ekki
getað neitað mér að koma með.
Seinna þegar Jónas Pétur kom
í heiminn fór ég að sjálfsögðu í vist
hjá systur um sumarið. Jónas Pét-
ur var í flottum gráum vagni. Ári
Ásta Tryggvadóttir
✝ Ásta Tryggva-dóttir fæddist
30. september 1939.
Hún andaðist 5.
ágúst 2016.
Útför Ástu fór
fram 15. ágúst
2016.
seinna kom Einar í
heiminn, áfram var
ég í vist, núna með
tvo gaura, Einar í
vagninum og Jónas
sat ofan á. Gaman
var að passa þá þessi
tvö sumur.
Árið 2000 fluttum
við Árni heim til Ís-
lands eftir 23 ára
dvöl í Noregi. Við
vorum búin að festa
kaup á íbúð í Lækjarsmáranum.
Ekki var hún nú tilbúin þegar
heim kom svo heiðurshjónin Ásta
og Erlingur tóku við okkur,
bjuggum við í íbúð í kjallaranum
hjá þeim í níu mánuði. Meðgöngu-
tíminn göntuðumst við Ásta með.
Ekki má gleyma golfinu, sem
við áttum sameiginlegt. Við förum
saman til Portúgals, Spánar og
ekki má gleyma öllum góðu dög-
unum í sumarbústaðnum ykkar.
Þá spiluðum við á Kiðjabergi, í
Öndverðarnesi og fleiri stöðum.
Þér auðnaðist á Korpunni að fara
holu í höggi, vel gert. Saman vor-
um við í Rauða krossinum og
Hringnum.
Þar störfuðum við saman í
mörg ár eða á meðan heilsan
leyfði. Lóa systir gekk í Rauða
krossinn, ekki var það nú verra.
Við vorum samrýndar systur,
takk fyrir það.
Síðustu dagana þína varst þú á
líknardeildinni, að eigin ósk. Ég
heimsótti þig tvisvar og þrisvar á
dag og sátum við úti, skemmtum
okkur saman. Takk fyrir þessa
daga, systir.
Þú áttir góða að, börnin þín,
barnabörn og að öðrum ólöstuðum
stóð Dunna þín með þér í einu og
öllu. Það er ekki öllum unnt, syst-
ir, að eiga góð börn.
Með þessum fátæklegu orðum
kveð ég þig að sinni. Hlakka til að
hitta þig hinum megin. Knús, þín
systir,
Guðrún Steinunn.
Með djúpri virð-
ingu og þakklæti,
kveðjum við frænd-
ur Hönnu Sigurðar-
dóttur. Kynni okkar hófust fyrir
fyrir ríflega áratug þegar Hanna
hóf störf hjá sýslumanninum í
Reykjavík. Strax á fyrsta degi
varð okkur vel til vina þrátt fyrir
að sökum starfa okkar værum við
í raun ekki samherjar og eðli
málsins samkvæmt þyrftum að
takast á um einstök mál.
Okkur frændum og fjölskyld-
um okkar sýndi Hanna einlægan
áhuga og samgladdist þegar vel
gekk og var reiðubúin að aðstoða
þegar svo bar undir. Er óhætt að
segja að með okkur hafi stofnast
einstök vinátta byggð á gagn-
kvæmri virðingu sem ekki var
einungis tengd störfum okkar.
Hanna tók starf sitt alvarlega
og sinnti því af alúð. Ávallt sýndi
hún viðeigandi nærgætni við með-
ferð þeirra erfiðu mála sem
fylgdu hennar starfi. Oft gekk
Hanna lengra en starfsskyldan
bauð henni til að gæta hagmuna
þeirra sem í hlut áttu ef hún taldi
að viðkomandi ætti undir högg að
sækja af einhverjum ástæðum.
Að sama skapi gat hún verið föst
fyrir og leið engum yfirgang. Þá
hikaði hún ekki við að segja fólki
til syndanna ef hún upplifði að það
færi ekki með rétt mál. Ósjaldan
mátti sjá einhvern hrokagikkinn
Hanna
Sigurðardóttir
✝ Hanna Sigurð-ardóttir fædd-
ist 27. mars 1952.
Hún lést 24. ágúst
2016.
Úför Hönnu fór
fram 1. september
2016.
ganga út af skrif-
stofu Hönnu með
skottið á milli lapp-
anna eftir að hún
hafði lagt honum
lífsreglurnar.
Þrátt fyrir að lífið
hafi ekki alltaf farið
mjúkum höndum
um Hönnu var hún
aldrei bitur heldur
þvert á móti glað-
lynd og gat jafnan
séð spaugilegri hliðarnar á tilver-
unni. Þá var hún ætíð reiðubúin
að aðstoða aðra þó á stundum
hefði hún fremur þurft á stuðn-
ingi að halda. Má segja að viðhorf
hennar til lífsins hafi verið það að
þótt á móti blési hjá henni væru
alltaf einhverjir sem væru enn
verr staddir og henni væri skylt
að aðstoða þá eftir föngum.
Það er sárt til þess að hugsa að
glettnar athugasemdir og blik-
andi stríðnisblik í augum þessarar
smávöxnu, harðgerðu konu með
stóra hjartað munu aldrei aftur
mæta okkur í morgunsárið þegar
við mætum í fyrirtökur hjá sýslu-
mannsembættinu. Minning um
einstæða konu og vin lifir þó og er
huggun harmi gegn.
Þú áttir auð er aldrei brást,
þú áttir eld í hjarta,
sá auður þinn er heilög ást til alls hins
góða og bjarta.
Til meiri starfa guðs um geim
þú gengur ljóssins vegi.
Þitt hlutverk er að hjálpa þeim er heilsa
nýjum degi.
(H.T.)
Megi Guð styrkja þá sem
syrgja.
Bragi Björnsson,
Börkur Hrafnsson.