Morgunblaðið - 15.09.2016, Page 78
78 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. SEPTEMBER 2016
Ég hef alltaf haldið upp á afmælið frá því ég var fertugur en ætlaað sleppa því núna. Það er svolítið nýtt fyrir mig að halda ekkiupp á það með pompi og prakt en geri örugglega eitthvað með
fjölskyldunni,“ segir Sigurður Jónsson, sem er 75 ára í dag.
Sigurður fæddist á Dalvík og hefur alla tíð búið þar. Hann starfrækti
Steypustöð Dalvíkur 1970-86, var með Ásvídeó 1986-2009 og hefur
starfrækt tjaldvagnaleigu á Dalvík frá 1989. „Við hjónin höfum rekið
hana saman og gengur vel en þetta eru bara tveir og hálfur mánuður
sem eitthvað er að gera, ferðatíminn er það stuttur hjá okkur. Svo vinn
ég mikið við smíðar og er þá að smíða fyrir fjölskylduna og kunn-
ingjana.“
Sigurður var slökkviliðsstjóri á Dalvík frá 1974 til 2011, og hann fer
enn á sýningar erlendis ásamt öðrum slökkviliðsstjórum. „Já, nokkrir
slökkviliðsstjórar hér og þar á landinu hafa farið árlega á sýningar er-
lendis og eftir hálfan mánuð förum við til Birmingham og síðan til
London. Þetta eru mínar skemmtiferðir.“
Sigurður hefur tekið virkan þátt í ýmsu félagslífi á Dalvík, var með-
limur í Kiwanisklúbbi Dalvíkur um árabil meðan hann var starfræktur
og sat í stjórn klúbbsins. Hann er fæddur framsóknarmaður og sat í
stjórn Framsóknarfélags Dalvíkur um skeið og hefur alla tíð verið mik-
ill áhugamaður um hestamennsku. Hann á nokkra hesta en heldur auk
þess nokkrar ær og fiðurfé. Eiginkona Sigurðar er Alda Eygló Krist-
jánsdóttir og börn þeirra eru Jón Sigurðsson, f. 1960, d. 1976, Hólm-
fríður M. Sigurðardóttir, f. 1962, og Jóna Sigurðardóttir, f. 1978. Sig-
urður og Alda eiga fjögur barnabörn og þrjú barnabarnabörn.
Slökkviliðsstjórinn Sigurður þegar hann lét af störfum, 70 ára gamall.
Fer enn á slökkvi-
liðssýningar erlendis
Sigurður Jónsson er 75 ára í dag
G
uðfinna fæddist í Hafn-
arfirði 15.9. 1956 og ólst
upp í Kleppsholtinu og í
Álftamýri um skeið.
Hún var í Austurbæj-
arskóla, Álftamýrarskóla, Lang-
holtsskóla, tók gagnfræðapróf frá
Vogaskóla og var í sveit eitt sumar í
Þykkvabæ í Landbroti. Hún lauk
prófum frá Húsmæðraskólanum á
Laugum 1974 þar sem hún hitti lífs-
förunautinn.
Guiðfinna sinnti síðan búi og börn-
um en lauk jafnframt námi frá Póst-
og Símaskólanum 1988, sálarnámi í
Bréfaskólanum 1991, söngnámi í
Tónlistarskóla Húsavíkur 1993, var í
námi í Framhaldsskólanum á Laug-
um 1992-95, lauk meiraprófi 1996 og
var aðstoðarskólabílstjóri í nokkur
ár og fór í bókhaldsnámskeið 1999.
Guðfinna vann hjá Lyfjaverslun
ríkisins, Kaupfélagi Þingeyinga,
Pósti og síma, var bóndi 1989-98,
vann við blómabúðina Akur á Ak-
ureyri 1998-2002 og kenndi við Síðu-
skóla í níu ár. Hún söng í kirkju-
kórnum í Einarsstaðakirkju og síðar
með Kór Akureyrarkirkju.
Guðfinna og Einir bjuggu fyrst í
Reykjavík 1975 en fluttu í Reykjadal
í Þingeyjarsveit 1977 og byggðu sér
hús á Laugum 1982. Árið 1989 hófu
þau búskap á Einarsstöðum. Þegar
eldri börnin fóru að heiman fluttu
hjónin til Akureyrar. Guðfinna fór
þá í kennaranám við HA og lauk
B.Ed.-gráðu 2005 en árið 2014 lauk
hún leiðsögunámi við HA.
Árið 2007 stofnuðu þau einka-
hlutafélag um Ferðaþjónustuna Ein-
ishús. Fyrstu tvö húsin voru tekin í
notkun haustið 2012 og tveimur ár-
um seinna voru komin þar fimm hús.
Guðfinna Sverrisdóttir ferðaþjónustubóndi – 60 ára
Með börnunum Guðfinna og Einir Viðar með Katrínu Elísu, Sverri Kristni, Birni Friðrik og Sigríði Ingu.
Með rómaða og verð-
launaða ferðaþjónustu
Einishús Hin fimm glæsilegu gistihús í landi Einarsstaða II í Þingeyjarsveit.
Reykjavík Agla Líney
Hafliðadóttir fæddist
22.júlí 2015 kl. 14.36
og var 48 cm löng og
3.040 grömm. For-
eldrar hennar eru
Andrea Ingvarsdóttir
og Hafliði Guð-
jónsson.
Nýir borgarar
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson,Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is