Morgunblaðið - 15.09.2016, Side 82
82 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. SEPTEMBER 2016
www.veislulist.is
Pinnaborð eru afgreidd í öskjum þar s
em kaupandi sér sjálfur um að raða þe
im á föt eða tilbúnir á á borð á einnota
veislufötum. Sé veislan 150manna eð
ameira eru allar veitingar afhentar á
einnota veislufötum.
Hólshraun 3 · 220Hafnarjörður · Símar: 555-1810, 565-1810
Fax: 565-2367 · Netfang: veislulist@veislulist.is · www.veislulist.isSkútan
PINNAMATUR
FYRIRÖLLTÆKIFÆRI
Þú getur lesið allt um
pinnamat og aðra rétti
á heimasíðu okkar
PINNAMATUR
Við val á veitingum þarf að hafa í hug
a á hvaða tíma
dagsmóttakan er og hversu lengi hún
á að standa.
Í “standandi” veislum er vinsælt að bjó
ða upp á t.d
fimm til sjö rétta pinnaborð.
Skoðið verðin á heimasíðu okkar
VIÐTAL
Ásdís Ásgeirsdóttir
asdis@mbl.is
Heimildarkvikmynd um Baskavígin
verður frumsýnd á San Sebastian-
kvikmyndahátíðinni og á RIFF á
næstu vikum. Þar segir frá örlög-
um baskneskra sjómanna sem
myrtir voru af mikilli grimmd að
undirlagi Ara í Ögri árið 1615. Tal-
að er um að þetta séu einu fjölda-
morðin sem Íslendingar hafa fram-
ið en atburðanna var minnst í fyrra
þegar 400 ár voru liðin frá voða-
verkunum. Kvikmyndin Baskavígin
er unnin í samvinnu Spánverja og
Íslendinga og hefur RÚV keypt
sýningarrétt að henni.
„Þetta reddast“-viðhorfið
„Myndin er stórgóð, ég er
reyndar ekki búinn að sjá loka-
útgáfuna,“ segir Hjálmtýr Heiðdal
hjá kvikmyndagerðinni Seylunni
sem framleiddi myndina í samstarfi
við baskneska kvikmyndafyrirtækið
Old Port Films sem hóf undirbún-
ing að gerð heimildarmyndar um
þessa atburði. „Þau komu með
skömmum fyrirvara og voru að
leita að meðframleiðanda og ég
hafði áhuga á því. Þetta var keyrt
áfram af mikilli bjartsýni, það var
Íslendingabragur á þessu, að þetta
myndi reddast. Og það hefur allt
reddast,“ segir Hjálmtýr en hann
sá m.a. um að afla fjár. Myndin er
að stærstum hluta tekin hér á landi
og því þurfti einhvern staðkunn-
ugan þannig að ég sló til,“ segir
hann um tildrög aðkomu sinnar að
myndinni. „Þetta var gert á miklu
skemmri tíma en maður hefði hald-
ið að væri mögulegt“ segir Hjálm-
týr en myndin var kvikmynduð
bæði á Spáni og Íslandi.
Leikur, viðtöl og tölvutækni
Heimildarmyndin, sem er sjötíu
mínútna löng, er viðamikil með
mörgum leiknum atriðum ásamt
viðtölum við sérfræðinga af ýmsu
þjóðerni, þ.á.m. íslenska. Hjálmtýr
segir að tölvu-
tæknin hafi mik-
ið komið við sögu
við gerð mynd-
arinnar. „Það er
alls konar tölvu-
fiff í myndinni.
Það er notað til
að fjölga fólki og
svo voru skipin
teiknuð inn í eft-
ir á,“ en öll
tölvuvinnsla fór fram á Spáni. „Og
þegar verið er að skera hval er
enginn hvalur, en hann er kominn í
myndina,“ segir Hjálmtýr og bætir
við að þessi mynd sé ein sú stærsta
af íslenskum heimildarmyndum
hvað varðar umfang, leik og tölvu-
vinnslu. „Eftir því sem ég best veit
er þessi mynd eitt viðamesta heim-
ildamyndaverkefni sem hefur verið
ráðist í hérlendis,“ segir hann.
Ótrúleg hjálpsemi úti á landi
Í myndinni eru mörg sviðsett at-
riði sem tekin eru upp á sögustöð-
um á Vestfjörðum auk atriða sem
eru tekin í öðrum landshlutum.
Hingað komu 25 Spánverjar og
þurfti Hjálmtýr að safna saman um
120 aukaleikurum og þremur ís-
lenskum aðalleikurum ásamt
tækniliði. Farið var á ellefu staði á
landinu og tóku tökurnar hálfan
mánuð. Hjálmtýr segir að það hafi
verið að mörgu að huga þegar allt
að fjörutíu manna lið var á töku-
stað í einu. Sjá þurfti fyrir gist-
ingu, bílaleigubílum og mat.
„Það væri gaman að það kæmi
fram, þessi rosalega hjálpsemi
fólks úti á landi. Við erum mjög
þakklát, það var alveg sama hvar
við komum, það var hægt að redda
öllu og alls staðar opnar dyr. Í
Borgarnesi voru kvikmyndaðar
nætursenur og fengum við endur-
gjaldslaust aðstöðu í tveimur ein-
býlishúsum rétt hjá tökustaðnum.
Bílskúr fengum við á öðrum staðn-
um fyrir búningaaðstöðu og smink-
aðstöðu í eldhúsinu. Og í næsta
húsi höfðu húsráðendur opið í tvær
nætur fyrir leikara og starfsfólk.
Það var skítakuldi allan tímann
sem tökurnar stóðu og var ég bú-
inn að vara Spánverjanna við þann-
ig að þeir voru ágætlega klæddir,“
segir hann og hlær.
„Eins og með aðalleikarann, það
þurfti að bleyta hann þegar hann
var drepinn við sjó og setja á hann
blóð. Það var heilmikið mál að
passa að hann ofkældist ekki,“ seg-
ir Hjálmtýr.
Alltaf fjárhagsleg áhætta
Viðamikil mynd sem þessi kostar
sitt og forvitnast blaðamaður um
kostnaðarhliðina. „Hún ætti að
kosta hundrað milljónir en af því
að þeir peningar voru ekki til þá
kostaði hún um fimmtíu. Til að
draga úr áhættunni verður að fjár-
magna myndina að mestu áður en
tökur hefjast. Maður tekur þó allt-
af vissa áhættu, ég enda kannski
með fimm hundruð krónur á tím-
ann, ég veit það ekki enn. Myndin
er aðallega fjármögnuð á Spáni en
að hluta til hér. Þetta er átakasaga
og flott kvikmynd og gæti því selst
víða,“ segir Hjálmtýr. „Ég fékk
styrk frá Kvikmyndasjóði og sel
Sjónvarpinu myndina,“ segir hann
en myndin uppfyllir einnig skilyrði
um endurgreiðslu frá atvinnuvega-
og nýsköpunarráðuneytinu. „Hilm-
ar Örn Hilmarsson semur tónlist-
ina og gerir það listavel. Það er
líka skilyrði að það sé íslenskt list-
Æstur múgur myrti Baskana
Ný leikin heimildarmynd um Baskavígin 1615 unnin af Íslendingum og Spánverjum Eitt viða-
mesta heimildarmyndaverkefni sem hefur verið ráðist í hérlendis Sýnd á RIFF og San Sebastian
Á skipbrotsstað Myndin var tekin upp víða um land en einnig á Spáni. Hjálmtýr þurfti að útvega 120 íslenska aukaleikara til að leika í senunum hérlendis
en tökur stóðu yfir í hálfan mánuð. Vel gekk að kvikmynda þrátt fyrir kulda en heimamenn í sveitum landsins voru mjög hjálpsamir.
Hjálmtýr
Heiðdal
Systkinin Christian og Tanja Tetz-
laff leika einleik í Konsert fyrir
fiðlu og selló eftir Johannes
Brahms á tónleikum Sinfóníu-
hljómsveitar Íslands í Eldborg
Hörpu í kvöld kl. 19.30.
„Christian og Tanja Tetzlaff eru
meðal fremstu tónlistarmanna
Þýskalands. Þau hafa áður leikið
hvort í sínu lagi með Sinfóníu-
hljómsveit Íslands auk þess sem
þau komu fram á Listahátíð í
Reykjavík ásamt píanistanum Leif
Ove Andsnes. Nú snúa þau aftur
með tilfinningaþrunginn tvíkonsert
Brahms í farteskinu, síðasta hljóm-
sveitarverk meistarans. Stjórnandi
tónleikanna er Osmo Vänskä sem
er jafnframt aðalgestahljómsveit-
arstjóri Sinfóníuhljómsveitar Ís-
lands,“ segir í tilkynningu frá Sin-
fóníunni.
Tvö önnur verk eru á efnisskrá
kvöldins, þ.e. Lýrísk svíta eftir Pál
Ísólfsson og Sinfónía nr. 2, Skap-
gerðirnar fjórar, eftir Carl Nielsen.
„Carl Nielsen var eitt mesta sin-
fóníutónskáld Norðurlanda og með-
al tímamótaverka á ferli hans var
sinfónían nr. 2, sem var flutt af
sjálfri Berlínarfílharmóníunni
skömmu eftir frumflutninginn árið
1901. Kenningin um skapgerðirnar
fjórar, sem liggur til grundvallar
verkinu, nær aftur til gríska heim-
spekingsins Hippókratesar og er á
þá leið að í hverjum einstaklingi sé
ein skapgerð meira eða minna ráð-
andi: glaðlyndi, bráðlyndi, dauf-
lyndi eða melankólía,“ segir í til-
kynningu og á það bent að Osmo
Vänskä þykir frábær túlkandi
verka Nielsen.
Dúó Christian og Tanja Tetzlaff.
Tetzlaff-systkinin
leika einleik í kvöld
Verk eftir Brahms, Nielsen og Pál