Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.2005, Blaðsíða 21
Fréttamolar...
Að fá að vera þátttakandi í að hlúa að von um að
lækning sé á næstu grösum eða annars konar von
af sama meiði, voninni um friðsælan dauðdaga,
verður að höndla sem dýrmæta en jafnframt
brothætta gjöf. Það getur enginn gert þá kröfu að
fólk sætti sig við að vera með sjúkdóm. En unnt
er að stuðla að því að hver og einn taki ábyrgð
á eigin heilsu og umberi sjúkdóminn. Það gefur
manneskjunni færi á að flétta sjúkdóminn inn
í líf sitt á uppbyggilegan hátt. Við það þroskast
hann fram á við, öðlast æðruieysi og reisn. Með
því móti er það sett á oddinn að einstaklingurinn
er fyrst manneskja, þar á eftir sjúklingur.
Heimildaskrá
Alþingi (1997). Lög um réttindi sjúklinga nr. 74. Sótt 10. mars 2004 af
http://www.althingi.is/lags/129/1997074.html
Andersen, S. (2003). Heilbrigði býr i huganum. Reykjavík: Parkinson-
samtökin á íslandi.
Cobb, M. (1998). Assessing spiritual needs: An examination of
practice. i M. Cobb og V. Robshaw (ritstj.), The spiritual ehaiienge
of health care (bls. 105-118). London: Churchill Livingstone.
Frankl, V. E. (1996). Leitin að tilgangi lifsins. Reykjavik: Siöfræöi-
stofnun.
Garðar Gíslason (1991). Eru lög nauðsynieg? Reykjavik: Bókaútgáfa
Orators.
Gentile, M. og Fello, M. (1995). Hospice care for the 1990s: A concept
coming of age. í J.B. Williamson og E.S. Shneidman (ritstj.), Death
eurrent perspectives (bls. 147 -160). U.S.A.: Mayfield.
Landlæknisembættiö (1996, mars). Leiðbeiningar um takmörkun á
meðferð við lok lifs. Reykjavík: Landlæknisembættið og Siöaráö
Landlæknis. Sótt 10. mars 2004 af http://www.landlaeknir.is/tem-
plate1.asp?PagelD=478
Landlæknisembættiö (2003). Liffœragjafi. Reykjavík: Höfundur.
Landlæknisembættiö (2005). Lífsskrá. Yfirlýsing vegna meöferöar
viö lífslok. Og Leiðbeiningar um lífsskrá og útfyllingu eyöublaðs.
Sótt 7. ágúst 2005 af http://www.landlaeknir.is/template1.
asp?pageid=628Etnid=734
Neuberger, J. (1998). Spiritual care, health care: What's the differ-
ence? I M. Cobb og V. Robshaw (ritstj.), Thespiritual ehallenge of
health care (bls. 7-20). London: Churchill Livingstone.
Sheehan, D.K. og Schrim, V. (2003). End of life care of older adults.
American Journal ofNursing, 103 (11), 48 - 59.
Sigfinnur Þorleifsson (2001). I nœrveru. Reykjavík: Skálholtsútgáfan.
Sigriður Halldórsdóttir (2003). Eflandi og niðurbrjótandi samskipta-
hættir og samfélög. Timarit hjúkrunarfrœðinga, 79 (4), 6-12.
Vilhjálmur Árnason (2003). Siðfrœði lifs og dauða. Reykjavlk: Háskóli
íslands, Siöfræðistofnun og Háskólaútgáfan.
Nýtt vefsvæöi á vegum ICN
Alþjóðleg miðstöð hjúkrunarfræðinga sem starfa erlendis hefur
verið opnuð á vegum Alþjóðasamtaka hjúkrunarfræðinga, ICN, og
Alþjóðasamtaka erlendra hjúkrunarskóla (The Commission on Graduates
of Foreign Nursing Sehools, CGFNS). Miðstöðin hefur opnað vefsvæði,
www.intlnursemigration.org. Fulltrúar CGFNS og ICN segja mikla
þörf fyrir að miðla þekkingu meðal
hjúkrunarfræðinga um heim allan þar
sem erlendum hjúkrunarfræðingum
fjölgar stöðugt í flestum löndum og
við lifum í síbreytilegum heimi og fólk
á í sífellt meiri samskiptum heimshorna
á milli vegna breyttrar tækni.
Ný lækningalind opnuö í Bláa lóninu íjúní
Grímur Sæmundsen framkvæmdastjóri ávarpaði gesti og lagði
áherslu á þann mikilvæga áfanga í starfsemi Bláa lónsins sem opnun
nýrrar lækningalindar er. Lækningalindin, samvinnuverkefni íslenskra
stjórnvalda og Bláa lónsins hf., stórbætir þjónustu við psoriasissjúklinga
og er eitt stærsta verkefni í heilsutengdri ferðaþjónustu á íslandi.
í ávarpi Jóns Kristjánssonar heilbrigðisráðherra kom fram að Bláa
lónið hefur hlotið viðurkenningu heilbrigðisyfirvalda í Færeyjum og
Danmörku, sem hafa greitt fyrir psoriasismeöferð sjúklinga frá þessum
löndum sem leitað hafa læknishjálpar og komið í meðferð í Bláa lóninu.
Meðferðargestir hafa komið víða að eöa alls frá 18 þjóðlöndum.
I ávarpi Eðvarðs Júlíussonar, stjórnarformanns Bláa lónsins, kom fram
aö meginmarkmiðið með stofnun Bláa lónsins hf. árið 1992 heföi verið
að rannsaka lækningamátt lónsins og byggja varanlega aöstöðu fyrir
meðferöarþjónustu við íslenska og erlenda húösjúklinga. Það væri því
stór stund að sjá glæsilega lækningalind tekna í notkun og markmiö
verða aö veruleika. Þeir Jón Kristjánsson heilbrigðisráðherra og Eðvarð
Júlíusson, stjórnarformaður Bláa lónsins, afhjúpuðu hraunhelluna sem
markaði upphaf framkvæmda við nýja lækningalind og séra Björn
Sveinn Björnsson, sóknarprestur á Útskálum i Garöi, flutti blessun.
Jón Þrándur Steinsson húðlæknir er yfirlæknir lækningalindar og
Ragnheiður Alfreðsdóttir er hjúkrunarforstjóri.
Tímarit hjúkrunarfræðinga 3. tbl. 81. árg. 2005
19