Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.2005, Blaðsíða 46
Erlín Óskarsdóttir
Aðalfundur CNR og ráðstefna ICN
í Tapei í Taívan dagana 21.-27. maí 2005
Rúmlega 3000 þátttakendur voru viö opnun ráöstefnunar
Ráðstefna Alþjóðasambands hjúkrunarfræðinga, ICN, og
aðalfundur fulltrúaráðs aðildarhjúkrunarfélaganna - CNR,
voru haldin í Tapei dagana 21.-27. maí 2005. Af hálfu
Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga sátu Erlín Óskarsdóttir,
fráfarandi 1. varaformaður félagsins, og Halla Grétarsdóttir,
1. varaformaður, ráðstefnuna og fundinn.
Félag taívanskra hjúkrunarfræðinga hafði undirbúið ráð-
stefnuna ásamt ICN og heimaaðilum. Fulltrúar heilbrigðis-
yfirvalda í Taívan tóku þátt í opnunarhátíðum ráðstefnanna og
fluttu ávörp. 011 umgjörð og móttökur voru hinar glæsilegustu
og heppnuðust í alla staði vel. Var öll skipulagning og
fyrirkomulag einstaklega vel heppnað. Höfuðborgin Tapei í
Taívan er mjög falleg og má minnast þess að eyjan gekk einnig
undir nafninu Formósa sem er portúgalska og þýðir „falleg
eyja“ og er það réttnefni. Fólkið er einstaklega hlýlegt og
reyndi að aðstoða eftir fremsta megni.
Tvær ráðstefnur í tengslum við aðalfund CNR
Fyrir aðalfundinn var haldin ráðstefna um alþjóðlega samninga
er snerta heilbrigðisþjónustu, flutning heilbrigðisfagfólks milli
landa og starfsréttindi heilbrigðisstarfsfólks eða reglugerðir og
alþjóðavæðingu. A þessari ráðstefnu voru þrír aðalfyrirlesarar,
44 Timarit hjúkrunarfræöinga 3. tbl. 81. árg. 2005
þeir Gilles Dessauit frá alþjóðabankanum er
fjallaði um „Reglur í alþjóðlegu umhverfi“,
Bernard Ascher, fyrrverandi framkvæmdastjóri
Service Industry Affairs-skrifstofunnar Trade
Representative í Bandaríkjunum, hann fjallaði
um áhrif GATS - samkomulags um verslun með
þjónustu, þ.e. reglugerðir landanna varðandi
gagnkvæmt samkomulag um viðurkenningar
á starfsréttindum milli landa. Síðan fjallaði
prófessor James Buchan frá Queen Margaret
University College í Edinborg um „Fólksflutninga
og reglugerðir". Til frekari upplýsinga og fróðleiks
er vísað á heimasíðu ICN (http://www.icn.ch/
regulation.htm).
Alþjóöaráðstefna ICN, 23nd Quadrennial
Congress
Seinni ráðstefnan var aðalráðstefna ICN og
hófst hún 21. maí og stóð til 27. maí. Yfirskrift
hennar var: „Otrás hjúkrunar: þekking, nýbreytni
og styrkur“. Þetta var fjölmenn og yfirgripsmikil
ráðstefna.
Við opnunarhátíðina, sem var hin glæsilegasta,
voru þau dr. Margretta M. Styles og Stephen
Lewis heiðruð. Dr. Styles var heiðruð með æðstu
alþjóðlegu viðurkenningu innan ICN, Christiane
Reimann-orðunni. Hún er skilgreind sem ímynd