Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.2005, Blaðsíða 54
Doktorsvörn Sóleyjar Sesselju Bender:
Þunganir unglingsstúlkna
Föstudaginn 26. ágúst fór fram doktorsvörn viö
læknadeild Háskóla íslands. Sóley Sesselja Bender
dósent varöi doktorsritgerö sína Adolescent
pregnaney. Andmælendur voru dr. Gunta Lazdane,
prófessor viö læknadeild háskólans í Riga,
Lettlandi og ráögjafi á sviöi frjósemisheilbrigðis og
rannsókna við Alþjóðaheilbrigðismálastofnunina
í Kaupmannahöfn, og dr. Þórólfur Þórlindsson,
prófessor viö félagsvisindadeild Háskóla íslands. Dr.
Stefán B. Sigurösson, deildarforseti læknadeildar, stjórnaöi athöfninni
sem fór fram í hátíöarsal, Háskóla íslands. Vörnin fór fram á ensku.
Meginmarkmiö doktorsverkefnisins var að skoöa tiöni þungana
unglingsstúlkna hér á landi miöaö viö önnur Norðurlönd, kanna
sjónarmið ungs fólks gagnvart kynheilbrigöisþjónustu og notkun
getnaöarvarna ásamt upplifun unglingsstúlkna af því aö taka ákvöröun
um barneign. Jafnframt voru metin áhrif ráðgjafar um getnaöarvarnir
meöal kvenna sem fóru í fóstureyðingu. Niðurstööurnar sýndu m.a. aö
tíöni þungana meöal unglingsstúlkna var á timabilinu 1976-2002 hæst
hér á landi, miðað viö Danmörku, Finnland, Noreg og Svíþjóö, þrátt fyrir
aö hún hafi farið lækkandi á rannsóknartímabilinu. Fram kom að flest
ungt fólk hefur ekki ætlaö sér aö standa frammi fyrir þungun á þessum
tíma lífsins og kýs fremur forvarnir. Ungt fólk vildi í flestum tilvikum
geta notið sérhæfðrar, víötækrar hágæöa kynheilbrigöisþjónustu.
Olík viðhorf ungs fólks til kynheilbrigðisþjónustu tengdust búsetu þess,
kyni og fyrri notkun þess á þjónustunni. Notkun getnaðarvarna var
líklegri meöal stúlkna og pilta sem litu þungun alvarlegum augum og
fannst þaö lítiö mál aö gera ráðstafanir varöandi notkun getnaöarvarna.
Ótímabær þungun unglingsstúlkna og ákvöröun í kjölfar hennar skapaöi
töluverða togstreitu. Þegar kom aö lokaákvöröun gátu þær ekki hugsað
sér aö fara í fóstureyðingu, voru samt ekki reiðubúnar aö eignast
barn, en sættu sig við ákvöröunina sem tekin var. Meirihluti kvenna
sem fengu sérhæfða ráögjöf um getnaðarvarnir fyrir fóstureyöingu
byrjaöi aö nota getnaðarvarnir eftir aögeröina en þaö sama átti einnig
viö um samanburðarhóp kvenna sem ekki fengu slíka
ráðgjöf. Þær sem voru líklegri að nota getnaðarvarnin
eftir fóstureyöingu voru yngri konur og þær sem|
voru í sambúð/giftar. Niðurstööur benda til þess að!
mikilvægt sé aö stuðla aö kynheilbrigði ungs fólks og
þróa kynheilbrigöisþjónustu sem tekur miö af sérþörfum
þess.
Aðalleiöbeinendur voru dr. Reynir Tómas Geirsson,
prófessor viö læknadeild Háskóla íslands, og dr. Elise
Kosunen, prófessor viö háskólann í Tampere, Finnlandi.
Auk þeirra sátu í doktorsnefndinni dr. Auöna Ágústsdóttir,
verkefnastjóri á Landspítala - háskólasjúkrahúsi, dr.
Sigrún Aöalbjarnardóttir, prófessorviö félagsvísindadeild
Háskóla íslands, og dr. Vilhjálmur Rafnsson, prófessor
við læknadeild Háskóla íslands.
Sóley S. Bender fæddist í Reykjavík hinn 26. júli
1953. Hún lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum
í Reykjavík 1973, BS-prófi i hjúkrunarfræði frá
Háskóla íslands 1977 og MS-prófi í Family Planning
Administration frá University of Minnesota <
1983. Aö loknu hjúkrunarfræöinámi kenndi Sóley
l fjölskylduáætlun í Nepal í eitt ár. Hún stóð aö stofnun
Fræðslusamtaka um kynlíf og barneignir (FKB) árið
1992, sem er aðildarfélag innan Alþjóöasamtaka um
fjölskylduáætlun, og var formaður þeirra fyrstu átta
árin. Hún hefur staöiö aö þróun móttöku fyrir ungt fólk
í Hinu húsinu á vegum FKB og móttöku á Landspítala -
háskólasjúkrahúsi varöandi ráðgjöf um getnaðarvarnir
og er verkefnisstjóri hennar. í tvo áratugi hefur Sóley
kennt viö hjúkrunarfræöideild Háskóla Islands og
verið dósent frá árinu 2000. Sóley er gift Friðriki Kr.
Guöbrandssyni lækni og eiga þau þrjú börn.
Sóley Bender
Nám í fjölskyldumeöferö og fjölskylduráðgjöf.
I febrúar 2006 hefst þriggja ára eftirmenntun ífjölskylduráögjöf
og fjölskyldumeðferð, en upplagt er aö stunda námiö meö
vinnu. Þátttakendur munu mæta 6 sinnum á ári á námskeið;
2x4 daga og 4 x 5 daga, alls 28 daga á ári.
Námiö er samstarfsverkefni Ara Bergsteinssonar sálfræöings og The
Kempler Institute of Seandinavia A/S.
Kennararfrá Kempler-stofnuninni munu sjá um kennslu.
Frestur til aö tilkynna þátttöku er til 15. nóvember.
Upplýsingar veitir Ari Bergsteinsson
í síma 864 2105 og 482 2105 eða
sendið fyrirspurn á netfang;
arib@simnet.is
Einnig er tekið við fyrirspurnum hjá
Reyni ráðgjafarstofu í síma 460 9500
virka daga nema fimmtudaga milli
kl. 12 og 14.
52
Tímarit hjúkrunarfræðinga 3. tbl. 81. árg. 2005