Tímarit hjúkrunarfræðinga


Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.2005, Síða 25

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.2005, Síða 25
GREIN Geta þeir meötekiö fræöslu? færiband. Það kom henni mest á óvart hvað allir tóku vel á móti henni, hve viðbrögðin voru góð og að þjónustan var ekki eins og færibandavinna. Onnur kona sagði að hugsað hefði verið vel um sig og allt gert fyrir hana sem hægt var. Þriðju konunni fannst allir reynast henni mjög vel í veikindum hennar. Einn karlmaður talaði um hvað þjónustan á bráðamóttökunni hefði verið einstaklega góð og viðbrögð og framkoma fagmannleg. Annar karlmaður sagðist vera ánægður almennt með undirbúninginn á bráðamóttökunni og taldi hann að nauðsynlegt væri að undirbúa sjúklinga vel fyrir skurðaðgerð. Geta sjúklingar, sem gangast undir skurð- aðgerð frá bráðamóttöku, hlustað á fræðslu? Misjafnt var hvaða fræðslu þátttakendur fengu fyrir skurðaðgerð. Algengasta fræðslan var um greiningu sjúkdómsins en 24 þátttakendur af 31 fengu þá fræðslu. Fast á eftir fylgdi fræðsla um skurðaðgerðina sjálfa en þá fræðslu fengu 22 þátttakendur. Geta sjúklingar, sem gangast undir skurð- aðgerð frá bráðamóttöku, meðtekið fræðslu? þar sem þeir koma gjarnan í grænu skurðstofuvinnufötunum og tala við sjúklingana og þekkjast því betur úr hópi hjúkrunarfræðinga og annarra lækna sem eru almennt í hvítum vinnufötum. Þær Þórgunnur og Margrét Marín telja að niðurstöður sýni að bráðveikir sjúklingar, sem þurfa að gangast undir skurðaðgerð frá bráðamóttöku, hafi ekki forsendur til að hlusta mjög vel og séu þar af Ieiðandi ekki tilbúnir til að fá mikla fræðslu fyrir skurðaðgerð. Þeir eru hins vegar mjög misjafnlega í staklc búnir og nauðsynlegt er að fræða þá svo framarlega sem aðstæður leyfa. Það er mat Þórgunnar og Margrétar Marínar að heilbrigðisstarfsfólk þurfi að vera meira vakandi fyrir sjúklingafræðslu, m.a. er mikilvægt að hafa í huga hvað einstaklingurinn vill vita og hvað hann þarf nauðsynlega að vita fyrir aðgerð. Þær telja niðurstöðurnar geta aukið þekkingu og innsæi hjúkrunarfræðinga varðandi fræðsluþarfir og það geti orðið til að bæta þjónustuna sem hjúkrunarfræðingar veita sjúklingum sem gangast undir skurðaðgerð. Heimildir: Margrét Marin Arnardóttir og Þórgunnur Jóhannsdóttir. Geta þeir hlustaö? Fræðsla til sjúklinga sem farið hafa í skurðaðgerð frá bráðamóttöku Landspítala - háskóla- sjúkrahúss við Hringbraut. Óbirt BS-ritgerð við Háskóla íslands 2002. Þórgunni Jóhannsdóttur (2003). Geta þeir hlustað? Fræðsla til sjúklinga sem farið hafa í skurðaðgerð frá bráðamóttöku Landspitala - háskólasjúkrahúss við Hringbraut. Óbirt grein. Rannsakendur spurðu ekki beint að þessu, en í símaviðtölum gáfu sjúklingarnir oft til kynna að þeir hefðu enga fræðslu fengið. Þegar þeir voru svo spurðir nánar kom í ljós að þeir höfðu fengið fræðslu án þess að átta sig á því, til dæmis vegna þess að sjúklingafræðsla er oft óformleg og fléttast inn í almenna hjúkrun sjúklinga. I sumum tilfellum getur verið að sjúklingar muni einfaldlega ekki eftir að hafa fengið fræðslu þar sem athygli og orka fór í annað. Orkan, sem mjög veikir sjúklingar hafa, er gjarnan notuð til að ráða við líkamleg og andleg einkenni veikindanna. Þess vegna er vilji bráðveikra sjúklinga til að læra oft mjög takmarkaður. Hugsanlegt er að sjúklingar á bráðamóttökunni hafi haft takmarkaða getu til að meðtaka fræðsluna þar sem ýmsir innri og ytri þættir geta hafa haft áhrif, einnig að miklar annir hafi verið á bráðamóttökunni eða sjúklingarnir farið mjög brátt í skurðaðgerð. Þátttakendur virtust helst hafa tekið eftir því að þeir fengu fræðslu frá svæfingalæknum fremur en öðrum læknum og hjúkrunarfræðingum. Rannsakendur telja einfalda skýringu hugsanlega á þessu: Svæfingalæknar eru tiltölulega auðþekkjanlegir Tímarit hjúkrunarfræöinga 3. tbl. 81. árg. 2005 23

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.