Tímarit hjúkrunarfræðinga


Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.2005, Qupperneq 39

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.2005, Qupperneq 39
Fréttamolar... Menn eru síbreytilegir í síbreytilegum heimi Desmond segir ekki gert ráð fyrir öðru nú á tímum en fólk fari annað veifið í gegnum líf sitt, ígrundi það og geri viðeigandi breytingar. „Hin nýja endurbót vex upp af þessari ígrundun. Við lifum á tímum þar sem vísindi og trúarbrögð sem áður voru á öndverðum meiði eiga nú mun meira sameiginlegt en áður, þar sem þau halda að þau hafi öil svör við spurningum sem leitast við að finna sannleikann. Samfélagið hefur þróast út úr þessum hefðbundna hugsunargangi og segir: „Það er ekki til neinn endanlegur sannleikur." Við erum alltaf að endurskapa okkur í nýjum aðstæðum og erum ekki þau sömu frá einni stund til annarrar. Ungt fólk er búið að tileinka sér þessa nýju endurbót. Það grípur hugmyndir við ólíkar aðstæður og breytist. Það lítur gjarnan á eldri kynslóðina sem staðnaða, kynslóð sem heldur á lofti gildum um að stöðugleiki sé dyggð og ef þú breytir hugmyndum þinum og viðhorfum sé ekki hægt að treysta á þig og það sé merki um vanþroska. Tiltekin stöðnun er einnig í heilbrigðiskerfinu, flestir sjúklinganna eru gamlir en starfsfólkið yngra." Hann er í lokin spurður hvort hann hafi ígrundað hver sé rauði þráðurinn í rannsóknum hans, sem fljótt á litið virðast vera ólíkar innbyrðis. ,Ætli það sé ekki persónulegur vöxtur, fullnægja í því sem ég hefst að, áhugi á að gera stofnanir betri og manneskjulegri. Mér finnst samfélög áhugaverð þar sem fólk hefur tök á að rækta hæfileika sína eins og t.d. á Kúbu en stjórnvöld stuðla að því að fólk rækti persónulega hæfileika sína, hvort sem þeir eru á því sviði að viðkomandi verður ballettdansari eða hafnaboltaspilari," svarar hann og brosir. Hægt aö nálgast lífsskrá á heimasíöu Landlæknis- embættisins, sjúkrahúsum og heilsugæslustöövum Nefnd á vegum Landlæknisembættisins, sem unniö hefur aö gerð lífsskrár og leiðbeininga meö lífsskrá, hefur lokiö störfum og er lífsskráin nú orðin aögengileg almenningi. Tilgangur lífsskrár er aö einstaklingar fái aö deyja með reisn og að aðstandendur séu eins sáttir við ákvaröanir sem teknar eru viö lífslok og kostur er. í lífsskránni eru óskir um meðferö viö lok lífs og tilnefning umboösmanns sem hefur umboö til að koma fram fyrir hönd viökomandi, taka þátt í umræðum um óskir varðandi meöferö viö lífslok, hvort heldur þaö er aö þiggja, hafna eöa draga til baka meðferö. Einnig erfólki gefinn kostur á aö taka afstööu til hvort þaö vill gefa vefi eða líffæri. Ýtarlegar leiöbeiningar til höfunda greina í tímaritinu á heimasíðu „/ meginatriðum á góð frœðslugrein að hafa: Fyrirsögn sem vekur forvitni og áhuga. Inngang sem setur lesandann vel inn í efni greinarinnar og viöheldur áhuga hans. Meginmál með dœmum og/eða rökstuðningi. Sömuleiðis verðurað huga að þvíaö textinn „renni vel"og það „lofti" vel um efniö en það er best tryggt meö millifyrirsögnum. Lokaorðin eiga að draga fram niðurstöður eða a.m.k. það markverðasta úr meginmálinu. Þau eiga lika að haldast í hendur við fyrirsögn og inngang. Töflur og myndir eiga að vero á viöeigandi stöðum og vera i góðu samhengi við textann. Þœr eru ekki til skrauts heldur til að styðja eða auka innihald greinarinnar." Textinn hér aö ofan er tekinn úr leiðbeiningatexta til höfunda fræöslugreina fyrir Tímarit hjúkrunarfræðinga sem settur hefur verið á heimasíðuna www.hjukrun.is. Ritnefnd og fræðiritnefnd hafa undanfarið unnið ötullega aö því aö aðstoöa höfunda viö ritun fræöi- og fræðslugreina til aö auðvelda skriftir fyrir tímaritiö. Ritstjórnarstefnan hefur einnig veriö uppfærö og búnar til starfsreglur ritnefndanna sem er einnig aö finna á heimasíöunni. Tímarit hjúkrunarfræöinga 3. tbl. 81. árg. 2005

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.