Tímarit hjúkrunarfræðinga


Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.2005, Qupperneq 47

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.2005, Qupperneq 47
FRA FELAGINU Aöalfundur CNR og ráöstefna ICN í Tapei í Taívan Nýr formaður kjörinr, dr. Hiroko Minami frá Japan fyrir þau gildi sem ICN velur til að heiðra þau sem eru og hafa verið leiðtogar í hjúkrun á aðþjóðavísu. Stephen Lewis var heiðraður með viðurkenningunni Health and Human Rights Award. Hvor tveggja þessi viðurkenning er veitt á fjögurra ára fresti. Fjölmargir áhugaverðir fyrirlestrar voru á ráðstefnunni. Þar voru í boði meira en 1.500 kynningar, sem skiptust í aðalfyrirlestra, málþing, vinnusmiðjur, sérsvið og veggspjaldakynningar. Tveir af aðalfyrirlestrunum voru fluttir af þeim Stephen Lewis, sem verið var að heiðra, en hann er sendifulltrúi Sameinuðu þjóðanna v. HIV/ AIDS í Afríku og fjallaði um AIDS í Afríku með yfirskriftinni „Heilbrigði og mannréttindi". Síðan rökræddi Pelanetete Stowers frá Samóaeyjum í Kyrrahafinu um kenningar Virginiu Henderson; hvort þær ættu við í dag og þá helst í hennar umhverfi, Samóa - eyjaklasanum. er hægt að nálgast fyrirlestrana, annaðhvort í heild sinni eða skyggnurnar. Aðalfundur CNR Samhliða þessum ráðstefnum var haldinn aðalfundur CNR, dagana 21.-23. maí. Á þeim fundi fóru fram hefðbundin stjórnarstörf þar sem byrjað var á að kynna nýtt aðildarfélag, sem boðið var velkomið í hópinn. Að þessu sinni var það hjúkrunarfélag Sameinuðu arabísku furstadæmanna. Þrjú önnur hjúkrunarfélög höfðu sótt um aðild að ICN en niðurstaða samþykktar annarra aðildarfélaga lá ekki íy'rir áður en fundurinn byrjaði. Voru það hjúkrunarfélög frá Rússlandi, Georgíu og Serbíu-Svartfjallalandi. Á fundinum var kallað eftir að þau aðildarfélög sem samþykktu að þessi lönd gengju í ICN gæfu samþykki sitt áður en fundinum lyki og var það gert og hafa því þessi fjögur félög fengið fulla aðild að ICN frá og með þessum fundi. Fjögur málefni höfðu verið undirbúin af stjórn ICN sem umræðuefni í vinnuhópum. Málefnin voru: Ásta Möller var eini fslendingurinn sem hélt fyrirlestur á ráðstefnunni, hún fjallaði um mikilvægi þess að hjúkrunarfræðingar hefðu áhrif í stjórnmálum. Ásta Möller stjórnaði einnig málstofu á ráðstefnunni. Til frekari upplýsinga er bent á heimasíðu ICN http://www.icn.ch/. Þar 1. Geðheilbrigði 2. Hlutverk stjórnvaida við reglugerðasetningar varðandi réttindi fagfólks. 13. Oryggi sjúklinga og tengsl þess við mönnun og endurbætur f hjúkrun. 4. Alnæmi, HIV/AIDS. Tímarit hjúkrunarfræöinga 3. tbl. 81. árg. 2005

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.