Tímarit hjúkrunarfræðinga


Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.2005, Page 50

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.2005, Page 50
sem væri öruggt umhverfi fyrir sjúklinginn væri einnig öruggt umhverfi fyrir hjúkrunarfræðinginn". ■ Fulltrúar ICN bentu á að það hefðu verið gefnar út leiðbeiningar á alþjóðavettvangi af ICN um hvaða þjálfun þyrfti til að starfa á hverju sviði fyrir sig. Einnig um hlutfall hjúkrunarfræðinga og sjúklinga á hinum mismunandi sviðum. Því hefði verið unnin töluverðvinnaaf hálfu ICN íþessum málaflokkum. Þákomfram að mörg lönd myndu ekki geta uppfyllt þessar leiðbeiningar, því var einnig kallað eftir leiðbeiningum um hvort og þá hvar mætti draga úr kröfunum, hverjar væru lágmarkskröfurnar. Af þessum umræðum var Ijóst að nokkuð langt er í land í þessum málum og að alþjóðasamfélag hjúkrunarfræðinga á eftir að vinna verulega í öryggismálum sjúklinga og hjúkrunarfræðinga á næstu árum. Nánari samantekt frá vinnuhópunum verður send frá ICN til aðildarfélaganna þegar búið er að vinna úr fundargögnum. Að lokinni vinnu í umræðuhópunum héldu áfram hefðbundin fundarstörf. Mikill tími og umræður höfðu farið í skýrslu formanns ICN og því varð lítill tími fyrir skýrslu framkvæmdastjóra samtakanna en hún er mjög ýtarleg og fjallar um starfsemi skrifstofu ICN. Einnig var farið yfir reikninga ICN og lá fyrir fundinum tillaga frá stjórn um að hækka árgjald aðildarfélaganna til ICN og var hún samþykkt. Það er hefðbundið að stjórn ICN kynni fyrir fulltrúum aðildarfélaganna þau málefni sem hafa haft mikil áhrif á störf hjúkrunarfræðinga og félög þeirra undanfarið. I ár voru það Bernard Ascher, fyrrverandi framkvæmdastjóri Service Industry Affairs of the Office of the U.S. Trade Representative, en hann fjallaði um frjálsan flutning heilbrigðisstarfsfólks milli landa samkvæmt alþjóðasamningum GATS; og síðan prófessor James Buchan frá Queen Margaret University College í Edinborg sem fjallaði um fólksflutninga og reglugerðir, stöðuna í dag. Flutningur hjúkrunarfólks milli landa hefur haft mikil áhrif á stöðu heilbrigðisþjónustunnar í þeim löndum sem fólkið flytur frá til hins verra en leysir ekki allan vanda í þeim löndum sem það kemur til. Voru þetta mjög fróðlegir fyrirlestrar sem góður rómur var gerður að. Síðast en ekki sfst voru kynningar frá tveimur hjúkrunarfélögum í Asíu sem sögðu frá reynslu sinni vegna „tsunami“- jarðskjálftans þar. Voru það formaður hjúkrunarfélagsins í Indónesíu og formaður hjúkrunarfélagsins í Srí Lanka. Kom það fram f málflutningi þeirra hversu erfitt þetta hefði verið, en heimamenn voru nokkuð fljótir að ná tökum á aðstæðum og að besta aðstoðin utan frá hefði verið fjárframlög beint til hjúkrunarfélaganna sjálfra. í Hualien, Taívan (http://www.tccn.edu.tw/). Var þetta hin fróðlegasta heimsókn. Okkur var sýndur háskólinn, umhverfi hans og kennslu- og námsaðstaða. Einnig nokkrar rannsóknar- og sjúkradeildir sjúkrahússins. Sjúkrahússamfélag þetta byggðist upp á kærleiksboðskap búddanunnunnar Cheng Yen sem stofnaði sjúkrahúsið og samtökin sem eru því téngd. Var öll umgjörð sjúkrahússins hin fallegasta og heimsóknin mjög ánægjuleg. Samtök þessi starfa um allan heim með það að markmiði að koma þeim til hjálpar sem þess þurfa. Þessi samtök byrjuðu 1966 með aðeins 30 meðlimum en hafa vaxið og telja nú um fjórar milljónir meðlima í dag. Markmiðið er að hjálpa þeim fátækari og mennta þá betur settu til að deila hvorir með öðrum auðlegð hvorra um sig. Þessi samtök hafa lcomið til aðstoðar þegar náttúruhamfarir hafa átt sér stað víða um heim. Þau hafa einnig komið til hjálpar og veitt þeim læknishjálp sem ekki hafa sökum fjárskorts getað leitað sér aðstoðar og læknishjálpin í heimalandinu ekki þess megnug að veita aðstoðina. Næsti fundur og ráðstefna ICN verða haldin 27. maí til 1. júní 2007 í Yokohama í Japan. Erlín Oskarsdóttir júlí 2005 Að lokinni aðalráðstefnu ICN hinn 28. maí fórum við í fagheimsókn til Buddhist Tzu Chi-háskólasjúkrahússins Timarit hjúkrunarfræöinga 3. tbl. 81. árg. 2005

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.