Tímarit hjúkrunarfræðinga


Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.2005, Síða 53

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.2005, Síða 53
Fréttamolar... Mérvarfaliðinnan stjórnar ICN að efla tengslanet þeirra hjúkrunarfræðinga sem eru í stjórnmálum, en nokkur sambærileg tengslanet eru nú starfandi innan samtakanna, t.d. meðal hjúkrunarfræðinga sem eru í rannsóknarstörfum og þeirra sem starfa einir í strjálbýli. Slík tengslanet eru mikilvæg, ekki bara fyrir hjúkrunarfræðingana sjálfa, heldur einnig mikilvæg fyrir ICN, því þar er hópur fólks í tengslum við ICN, sem samtökin geta leitað upplýsinga og ráða hjá.“ Tilkynning frá sóttvarnalækni DiTekiBooster í staö DiTeKik Frá og meö 1. september 2005 mun sölu DiTeKik - bóluefnis hér á landi veröa hætt þar sem þaö er ekki lengur framleitt. í þess staö veröur notað diTekiBooster við bólusetningu 5 ára barna en þaö inniheldur einnig mótefnavaka gegn barnaveiki, stífkrampa og frumulausri kikhóstabakteriu. Munurinn á DiTeKik og diTekiBooster er sá að diTekiBooster inniheldur minna magn ofangreindra mótefnavaka (sérstaklega barnaveiki) og má því nota hjá einstaklingum 5 ára og eldri. Erlendur stuðningur getur verið mikilvægur — Er þeim peningum vel varið sem fara til ICN af launareikningum hjúkrunarfræðinga? „Já. Þetta er reyndar mjög lág upphæð sem ísland leggur til samtakanna á ári hverju, um tvö til þrjú hundruð krónur á hvern hjúkrunarfræðing á ári. Eg tel hins vegar að stór hópur hjúkrunarfræðinga átti sig ekki alveg á gagnsemi þeirrar þátttöku, ekkert frekar en ég þar til ég átti þess kost að kynnast starfi þeirra. Samtökin eru mjög mikilvæg sem talsmenn og rödd hjúkrunar á alþjóðavettvangi og þau geta stutt við ákveðna þróun til hagsbóta fyrir stéttina og heilbrigði í heiminum. Félög hjúkrunarfræðinga hafa mikið gagn af því að bera saman bækur sínar og læra hvert af öðru, en á vettvangi ICN gefast ýmis tækifæri til þess, t.d. í formlegu samstarfi félaganna á sviði kjaramála. Framgangskerfi hjúkrunarfræðinga sem innleitt var eftir kjarasamningana 1997 má m.a. rekja til hugmynda sem ég kynntist á slíkum vettvangi og skrifaði síðar um í Tímarit hjúkrunarfræðinga. Einstakir hjúkrunarfræðingar geta einnig haft gagn af starfi samtakanna, en mikið efni hefur verið gefið út sem styður hjúkrun og hjúkrunarfræðinga í daglegum viðfangsefnum. Þess efnis er m.a. hægt að afla gegnum heimasíðu samtakanna www.icn.ch." Búast má viö vægari staöbundnum aukaverkunum af völdum diTekiBoosters en DiTeKiks. Tilkynning frá sóttvarnalækni Bólusetning gegn inflúenzu, Alþjóðaheilbrigöismálastofnunin ráöleggur aö inflúenzubóluefni á norðurhveli fyrir tímabiliö 2004-2005 innihaldi eftirtalda veirustofna (WH0 Weekly Epidemiological Record, 2004, 79, 85-92): • A/Nýju Caledoniu/20/99 (H1N1) - lík veira • A/Fujian/411/2002 (H3N2) - lík veira* • B/Shanghai/361 /2002 - lík veira** • Veiran sem notuö er um þessar mundir tii bóluefnisgerðar er A/ Wyoming/3/2003. A/Kumamoto/102/2002 er einnig tiltæk sem bóluefnisveira. ** Þeir bóluefnisstofnar sem hægt er að nota til bóluefnisgeröar eru B/ Shanghai/361 /2002 og B/Jiin/20/2003 (sem er B/Shanghai/361/2002 - líkveira). Hverja á aö bólusetja? • Alla einstaklinga eldri en 60 ára. • Öll börn og fullorðna sem þjást af langvinnum hjarta-, lungna-, nýrna- og lifrarsjúkdómum, sykursýki, illkynja sjúkdómum og öörum ónæmisbælandi sjúkdómum. • Starfsfólk heilbrigðisþjónustu og aðra þá sem daglega annast fólk meö aukna áhættu. Heilsugæslustöðvarnar eru hvattar til aö kalla sem fyrst inn aö hausti til bólusetninga ofannefnda áhættuhópa. Hvatt er til þess aö heilbrigðisstofnanir bjóði starfsfólki sínu bólusetningar. Bólusetning gegn pneumókokkasýkingum Sóttvarnalæknir vill einnig minna á bólusetningar gegn pneumókokka- sýkingum á 10 ára fresti til handa öllum þeim sem eru eldri en 60 ára og á 5 ára fresti fyrir einstaklinga sem eru i sérstökum áhættuhópum. Timarit hjúkrunarfræðinga 3. tbl. 81. árg. 2005

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.