Morgunblaðið - 09.02.2017, Blaðsíða 73
HÚSGÖGN OG GAFAVARA
Ármúla 7 | 108-Reykjavík | Sími 568-0708
þeim stafræna ljósmynd og fengið
hana prentaða á veggfóður í hvaða
stærð sem er.“
Sterkara veggfóður
Elías segir rétt að sumir haldi að
veggfóður sé viðkvæmt efni sem
kalli á mikla nærgætni við þrif og
frágang. „Hér áður fyrr var vegg-
fóður oft prentað á þunnan pappír
og var ekki slitsterkt, en í dag er
notast við vínilefni og útkoman
sterkt veggfóður sem nota má hvar
sem er.“
Íslendingar virðast einkum nota
veggfóðrið til að brjóta upp rýmin á
heimilinu, s.s. með því að hylja einn
vegg í stofunni eða lífga upp á
veggstubb í eldhúsinu. „Það þarf
ekki mikið til að veggfóðrið hafi
heilmikil áhrif á yfirbragð heimilis-
ins,“ segir Elías og bætir við að
ekki sé hægt að greina einhverja
sérstaka tísku í veggfóðurskaupum
landans. „Stundum höldum við að
tískan sé að fara í ákveðna átt þeg-
ar viðskiptavinur kemur inn í búð-
ina og biður um eitthvað allt annað.
Sumir vilja fá sterk mynstur og
sterka liti en aðrir milda og hlut-
lausari tóna, með litlu eða engu
mynstri.“
Elías segir veggfóður geta hent-
að í öllum herbergjum heimilisins
og ekki síst þar sem umgangur er
mikilli. „Hótel og gistiheimili velja
oft að veggfóðra, bæði vegna þess
að vínilveggfóðrið er slitsterkt, en
líka vegna þess að ef gestur skyldi
reka tösku harkalega utan í vegg
og rispa eða rista veggfóðrið, þá er
létt verk að skipta skemmda vegg-
fóðursrenningnum út fyrir nýjan
svo að skemmdin sést ekki lengur
og veggurinn verður eins og nýr.“
ai@mbl.is
73
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. FEBRÚAR 2017
Stórhöfða 21 | sími 545 5500 | flis.is
Glæsileiki, smáatriði, hlýleiki, ánægja
Hágæða flísar frá Ítalíu
Það geri
st
ekki flot
tara
60 x 120 cm
30 x 30 cm
Styrkur Svart og hvítt er ómótstæðilegt í rétta mynstrinu.
Blúndur Fegurðin getur legið í smáatriðunum og minniháttar blæbrigðum í litavalinu.
Tíglar Kopar í bland við mattan lit. Gefur sterkan svip.Óðal Karlmannlegir litir sem ætti að hitta í mark hjá mörgum.
Breidd Tískan er fjölbreytt. Sumir vilja djarft en aðrir lágstemmt vegfóður.