Morgunblaðið - 09.02.2017, Blaðsíða 52
52 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. FEBRÚAR 2017
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Fylgi Sósíaldemókrata (SPD) í
Þýskalandi hefur aukist eftir að
Martin Schulz, fyrrverandi forseti
Evrópuþingsins, var valinn kansl-
araefni flokksins í þingkosningum
sem gert er ráð fyrir að fari fram 24.
september. Schulz er talinn eiga
möguleika á að sigra Angelu Merkel
sem hefur verið kanslari Þýskalands
frá nóvember 2005 og stefnir nú að
því að gegna embættinu fjórða kjör-
tímabilið í röð.
Ef marka má könnun, sem Bild
birti á mánudaginn var, eru Sósíal-
demókratar núna með meira fylgi en
flokkur Merkel og systurflokkur
hans í fyrsta skipti í rúm fimm ár.
Munurinn er þó mjög lítill, því að
31% kvaðst styðja Sósíaldemókrata
en 30% Kristilega demókrata, CDU,
eða systurflokkinn CSU í Bæjara-
landi.
Þýski stjórnmálaskýrandinn Osk-
ar Niedermayer segir að ekki sé víst
að Sósíaldemókratar haldi foryst-
unni lengi vegna þess að Schulz hafi
verið hampað mjög í þýskum fjöl-
miðlum að undanförnu og hann hafi
ekki enn útlistað stefnu sína í ýmsum
málum.
Trump miðjuflokkum
til framdráttar?
Könnunin bendir einnig til þess að
þjóðernisflokkurinn Annar kostur
fyrir Þýskaland (AfD) hafi misst
fylgi síðustu vikur. Um 12% sögðust
styðja hann, þremur prósentustigum
færri en í byrjun janúar.
Anton Troianovski, fréttaskýrandi
The Wall Street Journal, segir að
sigur Donalds Trumps í forsetakosn-
ingunum í Bandaríkjunum í nóvem-
ber hafi gefið þjóðernissinnum í Evr-
ópu byr í seglin en aukið fylgi
Sósíaldemókrata í Þýskalandi eftir
að Schulz var valinn til forystu sýni
að sigur Trumps geti einnig stuðlað
að auknu fylgi miðjuflokka sem
gagnrýna stefnu hans.
Könnun Bild bendir til þess að
rúm 75% Þjóðverja séu óánægð með
framgöngu Donalds Trumps í for-
setaembættinu til þessa. Önnur
könnun sýnir að hlutfall þeirra Þjóð-
verja sem telja að Bandaríkin séu
samstarfsríki, sem hægt sé að
treysta, hefur lækkað úr 59% í að-
eins 22% frá því að Trump var kjör-
inn forseti. Schulz hefur gagnrýnt
Trump hart, ólíkt Merkel sem hefur
forðast að svara gagnrýni forsetans
á stefnu hennar.
Nýleg könnun bendir til þess að
41% Þjóðverja myndi kjósa Schulz
og jafnmargir Merkel ef kanslari
Þýskalands væri kosinn í beinum
kosningum. Sósíaldemókratar hafa
verið í ríkisstjórn Merkel frá desem-
ber 2013 og leiðtogar þeirra telja að
Schulz verði næsti kanslari ef
flokkurinn fái a.m.k. 30% at-
kvæðanna. Hann gæti þá annaðhvort
myndað nýja stjórn með Kristilegum
demókrötum eða gengið til sam-
starfs við Græningja og Vinstri-
flokkinn.
Gert hafði verið ráð fyrir því að
Sigmar Gabriel varakanslari yrði
kanslaraefni Sósíaldemókrata en
hann ákvað að víkja fyrir Schulz í lok
janúar til að auka sigurlíkur flokks-
ins í kosningunum í september.
Meðferðin breytti lífi hans
Martin Schulz fæddist 20. desem-
ber 1955 í þorpinu Hehlrath, nálægt
landamærunum að Belgíu og Hol-
landi. Faðir hans var lögreglumaður
og fjölskyldan bjó í íbúð fyrir ofan
lögreglustöð þorpsins.
Þegar hann var ungur átti Schulz
sér þann draum að verða atvinnu-
maður í fótbolta. Hann gekk í
menntaskóla um tíma en lauk ekki
námi vegna þess að hann vildi frekar
vera úti og leika fótbolta en lesa til
prófs. Meiðsli á hnjám urðu til þess
að hann varð að gefa drauminn um
frama í fótboltanum upp á bátinn.
Ungi maðurinn lagðist þá í
drykkju og tók að safna skuldum
vegna þess að hann eyddi meiri pen-
ingum í áfengi en hann vann sér inn.
Hann átti það jafnvel til að drekka
sig fullan á kvöldin vegna þess að
hann skammaðist sín svo mikið fyrir
að geta ekki hætt að drekka, að því
er fram kemur í grein Der Spiegel
um ævi Schulz. Blaðið segir að hann
hafi ætlað að fyrirfara sér 26. júní
1980 en bróðir hans hafi bjargað lífi
hans og fengið hann til að fara í
áfengismeðferð. Fjögurra mánaða
dvöl á meðferðarstofnun breytti lífi
hans og að henni lokinni ákvað hann
að opna bókaverslun í bænum
Würselen í Nordrhein-Westfalen.
Schulz var kjörinn bæjarstjóri
Würselen árið 1987, 31 árs að aldri.
Sjö árum síðar var hann kjörinn á
Evrópuþingið og sat þar næstu 22
árin. Hann varð forseti Evrópu-
þingsins árið 2012 og lét af því emb-
ætti í síðasta mánuði.
Martin Schulz veitir
Merkel harða keppni
Sósíaldemókratar í sókn eftir að Schulz varð kanslaraefni
AFP
Næsti kanslari? Martin Schulz á blaðamannafundi í höfuðstöðvum Sósíal-
demókrata í Berlín eftir að hann var valinn kanslaraefni flokksins.
Eykur sigurlíkurnar
» Sósíaldemókratar telja að
með Martin Schulz sem kansl-
araefni aukist sigurlíkur
flokksins í þingkosningunum í
Þýskalandi í september.
» Þegar Schulz var ungur ætl-
aði hann að verða atvinnumað-
ur í fótbolta en lagðist í
drykkju eftir að sá draumur
varð að engu. Hann gerðist
bókakaupmaður eftir að hafa
gengist undir áfengismeðferð.
» Seinna sat hann á Evr-
ópuþinginu í 22 ár og var for-
seti þess í fjögur ár.
Vetrarólympíuleikarnir verða haldnir í borginni
Pyeongchang í Suður-Kóreu á næsta ári og flest
íþróttamannvirkjanna sem notuð verða á leikunum eru
nú tilbúin, meðal annars þessi skíðastökkpallur. Suður-
Kóreumenn hafa hafið auglýsingaherferð úti um allan
heim til að kynna leikana.
AFP
Tilbúin fyrir Vetrarólympíuleikana
Neðri deild breska þingsins sam-
þykkti í gærkvöldi lagafrumvarp sem
heimilar ríkisstjórn Íhaldsflokksins
að virkja grein 50 í Lissabon-sáttmál-
anum um úrsögn úr Evrópusamband-
inu. 494 þingmenn greiddu atkvæði
með frumvarpinu og 122 á móti.
Lávarðadeild þingsins þarf nú að
samþykkja lagafrumvarpið til að
stjórn Theresu May forsætisráðherra
geti hafið samningaviðræður um úr-
sögnina ekki síðar en í lok næsta mán-
aðar eins og hún stefnir að.
Tveir þriðju þingmanna neðri
deildarinnar voru andvígir úrsögn
Bretlands úr ESB, Brexit, fyrir
þjóðaratkvæðagreiðsluna í júní sl.
þegar úrsögnin var samþykkt með
52% atkvæða. Þegar niðurstaðan lá
fyrir vildu flestir þingmenn deildar-
innar virða niðurstöðu þjóðarat-
kvæðisins en lagafrumvarpið mætti
þó andstöðu Skoska þjóðarflokksins
og Frjálslyndra demókrata auk tuga
þingmanna Verkamannaflokksins.
Jeremy Corbyn, leiðtogi Verka-
mannaflokksins, hafði fyrirskipað
þingmönnum hans að greiða atkvæði
með frumvarpinu og virða þar með
niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunn-
ar. U.þ.b. 50 þingmenn Verkamanna-
flokksins hlýddu ekki þeim fyrirmæl-
um og greiddu atkvæði gegn
frumvarpinu.
Ráðherrar í stjórn May sögðu í
fyrradag að ef samkomulag næðist
við ESB um skilmála úrsagnarinnar
þyrfti þingið að samþykkja samning-
inn. Ef þingið hafnaði niðurstöðunni
yrði ekki gengið til nýrra samninga-
viðræðna og úrsögnin tæki gildi án
samnings við ESB.
AFP
Forsætisráðherrann Theresa May stefnir að því að viðræður hefjist ekki
síðar en í lok næsta mánaðar um úrsögn Bretlands úr Evrópusambandinu.
Neðri deildin
samþykkti Brexit
Álfheimar 74, Glæsibær | 104 Reykjavík | ynja.is
á 15 ára afmæli
20% afsláttur
af öllum vörum
föstud. 10. feb
Sendum frítt
um land allt
Íshúsið ehf ∑ Smiðjuvegur 4a, græn gata, 200 Kópavogur
35%
afsláttur
ífebrúar
Svissnesku rakatækin+
Rétt rakastig hefur áhrif á heilsu og vellíðan
viftur.is
-andaðuléttar
∑Þurrkur í koki, augum - nefi?
∑Þurr húð?
∑Ryk og stöðurafmagn?