Morgunblaðið - 09.02.2017, Blaðsíða 80
80
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. FEBRÚAR 2017
HEIMILIÐ
„Sérstaða Kvik felst að mestu leyti í
því að þar ræður einfaldleikinn ríkj-
um,“ útskýrir Egill Jóhann Ingvason,
framkvæmdastjóri Rafha. „Innrétt-
ingarnar eru seldar í flötum pakkn-
ingum til að lágmarka kostnaðinn en
aðdráttaraflið felst engu að síður í
hönnuninni. Kvik innréttingar eru
dönsk hönnun og skandinavísk hönn-
un á einfaldlega upp á pallborðið hjá
fólki um þessar mundir enda þekkt
um allan heim.“
Það sem flestir vilja
Einfaldleikinn felst svo að sögn
Egils í því að Kvik býður hverju sinni
upp á 20 línur af innréttingum en nær
engu að síður til meirihlutans. „Hjá
keppinautunum eru kannski hundruð
valkosta í boði hverju sinni en Kvik
einbeitir sér að því sem flestir vilja.
Þannig nær það með sínu vöruvali til
90% af markaðnum, sem finnst það
flott sem er í boði hjá Kvik á til-
teknum tíma. Hin 10% eru svo ef til
vill með sértækari smekk, en lang-
flestir finna eitthvað við sitt hæfi hjá
Kvik. Með því að fylgjast vel með tíð-
arandanum, nýjustu straumum og
stefnum, og takmarka um leið úrvalið
við það sem efst er á baugi, næst
fram mikil hagræðing og lágmörkun
kostnaðar, sem skilar sér í lægra
vöruverði til neytenda. Nýjar innrétt-
ingar koma inn og þær sem minna
seljast detta út í staðinn. Ætli það séu
ekki tvær til fjórar nýjar gerðir
kynntar til sögunnar á ári. En svo eru
vinsælar gerðir sem halda sér ár frá
ári og sem dæmi um það er Mano,
vinsælasta innrétting Kvik frá upp-
hafi, en hún hefur verið í sölu núna í
fimmtán ár.“
Egill bendir á að áhersla sé lögð á
að hafa verð gegnsætt svo hvergi
komi síðar fram kostnaður sem við-
skiptavinurinn hafði ekki tök á að sjá
fyrir. „Það er engin hætta á því að sjá
eitt verð á útstillingu hjá okkur í búð-
inni eða í bæklingi en fá svo annað
þegar þar að kemur af því að eitthvað
hefur bæst við í millitíðinni.“
Þrjú mismunandi þjónustustig
Að fá innréttingar afhentar í flöt-
um pakkningum hentar flestum enda
hagkvæmt og ódýrt. Það á þó ekki við
alla að standa í því að setja fyrst sam-
an og setja svo upp. Egill samsinnir
þessu. „Því er það svo að við bjóðum í
rauninni upp á þrjú mismunandi
þjónustustig þegar kemur að innrétt-
ingunum.
„Það er hægt að fá þær flatpakk-
aðar á brettum, gera allt sjálfur og
spara þannig. Einnig er hægt að fá
skápana samsetta og þá sér fólk sjálft
um uppsetninguna. Loks er hægt að
fá bæði samsetningu á einingunum
og uppsetningu á innréttingunum á
sínum stað, gegn vægu gjaldi. Með
því að bjóða upp á þessi þrjú mismun-
andi þjónustustig getum við komið til
móts við viðskiptavinina, sama
hversu mikið þeir kjósa að gera
sjálfir.“
Teiknitímar með kúnnanum
Flest fyrirtæki sem selja innrétt-
ingar bjóða viðskiptavinum sínum
upp á ráðgjöf hvað varðar uppröðun á
einingunum með hliðsjón af teikn-
ingum af húsinu. Egill segir Rafha
hafa valið að fara nýja leið í þessum
efnum. „Við höfum þann háttinn á að
viðskiptavinir panta einfaldlega tíma
hjá hönnuðum okkar og gefa sér svo
góðan tíma til að finna bestu lausnina
í sameiningu, í stað þess að fólk komi
með teikningar, skilji þær eftir og fái
svo að einhverjum tíma liðnum tillögu
að útfærslu sem sett er fram einhliða
frá okkar hendi. Með þessu móti sam-
tvinnum við óskir viðskiptavinanna
við kunnáttu og reynslu hönnuðanna
og þannig verður til lausn sem við-
skiptavinurinn er ánægðastur með.
Biðtíminn eftir svona teiknitíma er
yfirleitt ekki langur og þessi þjónusta
hefur fallið vel í kramið enda gefur
þetta viðskiptavinum góðan tíma til
að fara yfir alla þá möguleika sem eru
í boði og útfæra allt eftir óskum
þeirra í kjölfarið, bæði skápa og inn-
volsið, hurðir og handföng, sökkul og
borðplötur, vaska, heimilistæki og
svo framvegis. Eldhúsið er einfald-
lega teiknað upp þangað til viðskipta-
vinurinn er sáttur. Um leið er farið
vel og vandlega yfir allan kostnað svo
viðskiptavinir séu vel upplýstir um
gang mála meðfram því sem drauma-
eldhúsið verður til. Með þessu móti
komum við mun betur til móts við
óskir kúnnanna og þeir eru fyrir
bragðið þeim mun ánægðari.“
Draumaeldhúsið þolir enga bið!
Það þekkja það sjálfsagt margir að
hafa þurft að bíða óralengi eftir inn-
réttingunum í draumaeldhúsið eða
baðherbergið, þegar lausnin loks var
fundin, og Egill segir að með það í
huga leggi Rafha áherslu á skjótan
afhendingartíma.
„Kvik heitir ekki að ástæðulausu
Kvik,“ segir Egill og hlær við. „Þar
sem við erum hluti af stórri keðju
sem telur 140 verslanir um alla Evr-
ópu fylgjum við ákveðnum þjón-
ustustöðlum sem það setur. Það þýðir
að við þurfum að hafa ákveðinn
grunnlager af innréttingum til stað-
ar, nema hurðir og borðplötur. Það er
alltaf pantað að utan. Við getum feng-
ið innréttinguna til landsins á um
tveim vikum frá pöntun, og borð-
platan kemur eftir fimm til sex vikur,
því hún er alltaf sérsmíðuð í Dan-
mörku. Þá er hægt að hefja uppsetn-
ingu á innréttingunni strax og ljúka
svo með borðplötunni þegar hún
berst til landsins. Afhendingar-
fresturinn er sem sagt ekki svo lang-
ur, enda vitum við sem er að þegar
viðskiptavinurinn hefur ákveðið
draumaeldhúsið þolir það enga bið.“
Einfaldleikinn ræður ríkjum
Teiknitímar með viðskiptavinum eru vinsæl
leið til að setja saman draumaeldhúsið
Afhendingarfresturinn skammur og úrval-
ið miðast við vinsælasta útlitið hverju sinni
Dökkt Innréttingalínan Mano kemur ekki síður fallega út í dökkri útfærslu, eins og hér sést.Vinsælast Hinar sívinsælu Mano-innréttingar frá Kvik hafa verið í framleiðslu í 15 ár.
Morgunblaðið/Eggert
Gæði „Innréttingarnar eru seldar í flötum pakkningum til að lágmarka
kostnaðinn en aðdráttaraflið felst engu að síður í hönnuninni.“
Hreinleiki Hvít Modu innrétting fyrir þá sem vilja einfalt og stílhreint útlit.
LAUGAVEGI 24 - 101 REYKJAVÍK
SÍMI: 552 0800
SKIPAGÖTU 7 - 600 AKUREYRI
SÍMI: 462 4646
Pilot
síðan 1937
Skoðaðu litríkt úrval á bros.is
Bros auglýsingavörur,
Norðlingabraut 14.
Bros auglýsingavörurmeð þínu merki