Morgunblaðið - 09.02.2017, Blaðsíða 64
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. FEBRÚAR 2017
Leðursófi á frábæru verði
Italia
Dado Model 2822
L214 cm leður ct.10
299.000,-
L174 cm leður ct.10
259.000,-
Italia
Framleiðsla Natuzzi Italia fer fram
í ítölskum verksmiðjum.
Leður, viður og áklæði eru unnin af
handverksmönnum sem eru
sérfræðingar á sínu sviði á Ítalíu.
Skeifunni 8 | Sími 588 0640
Marta María
martamaria@mbl.is
Það hefur ekki farið framhjá neinum að það er komin ný forsetafrú
í Hvíta húsið. Hún hefur reyndar neitað að hún ætli að flytja þang-
að inn, en hún tilheyrir engu að síður húsinu sem eiginkona Do-
nalds Trumps, forseta Bandaríkjanna. Þessi forsetahjón eru nátt-
úrlega engin Guðni Th. og Eliza Reid hvað gæði varðar, en eitt
má frú Trump eiga – hún er ansi lekker í tauinu.
Það hafa aldrei birst myndir af frú Trump án þess að hárið hafi
verið vandlega blásið, andlitið farðað eftir kúnstarinnar reglum
og að kroppurinn hafi verið sæmilega hirtur. Það leynir sér held-
ur ekki, miðað við val á fatnaði, að hún hugsar út í hvert smáat-
riði. Það leynir sér heldur ekki að hún hefur greinilega lengi haft
efni á að klæða sig og getað valið sér fínustu hönnunarflíkurnar.
Hún veit líka hvernig hún á að klæða sig til þess að vera gild í heimi
hinna ríku og frægu. Það er ákveðin kúnst. Peningar geta nefnilega ekki
keypt stíl eins og lesendur Smartlands vita.
Það hefur ekki farið neitt sérlega lítið fyrir henni, þannig séð, síðan hún
varð „first“ og fylgist heimsbyggðin með hverju fótmáli hennar. Auðvitað
vakna margar spurningar eins og hvers vegna hún hafi valið þennan skað-
ræðisgrip sem eiginmann, hvernig fjölskyldulíf þeirra sé og hvað drífi hana
raunverulega áfram í lífinu, fyrir hvað hjarta hennar slái og hvaða 100 atriði
séu á Bucket-listanum hennar. Mögulega á þetta allt
eftir að koma í ljós en þangað til er hægt að rýna
í klæðaburð hennar og svipbrigði.
Eitt er þó víst að hún þekkir styrkleika
sína þegar kemur að klæðaburði. Hún legg-
ur áherslu á mittislínuna og svo má sjá
glitta í bera handleggi og fótleggi. Það
sést samt miklu minna í bera leggi og
annað hold eftir að hún varð „first“.
Litapallettan er líka mildari og það
sem vekur athygli er að oftar en
ekki er allt í stíl. Rauður kjóll
við rautt veski, hvít dragt
við hvíta skó og bleikur
kjóll við bleika skó og þar
fram eftir götunum.
Rándýrt útlit
Melaniu Trump
AFP
Allt blátt Kjóll og jakki frá Ralph Lauren.
AFP
Glæsileg Bleikur kjóll við
bleika skó.
Hvítt við hvítt
Melania Trump
í hvítum buxum,
hvítum bol við
hvíta kápu.
Heimsbyggðin fylgist grannt með nýrri forsetafrú
Bandaríkjanna, Melaniu Trump. Hún á mögulega
einn dýrasta fataskáp landsins enda gengur hún
helst ekki í öðru en merkjavöru.
Allt í stíl Rauður
kjóll frá Gi-
vency, skór frá
Manolo Blahnik
og taska frá
Chanel.
Hvítt púff Skýr mittislína.
Pallíettuskreytt
Í glitrandi kjól
frá Reema Acra.
Elegant Kjóll frá Herve Pierre.