Morgunblaðið - 09.02.2017, Blaðsíða 63
63
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. FEBRÚAR 2017
Betra start fyrir þig og þína
TUDOR
TUDOR er hannaður til þess að þola
það álag sem kaldar nætur skapa.
Forðastu óvæntar uppákomur.
Bíldshöfða 12 • 110 Rvk • 577 1515 • skorri.is
Mikið úrval - Traust og fagleg þjónusta
TUDOR
Veldu
öruggt
start me
ð
TUDOR
inber gögn sýna fram á hið gagn-
stæða,“ bætir hún við. „Þetta er í
besta falli misskilningur og í versta
falli hreinar rangfærslur.“
Reynt að skapa þrýsting
Hún segir erfitt að kyngja því að
útgerðir beiti sér fyrir því á þann
hátt sem raun beri vitni fyrir því að
skapa samfélagslegan þrýsting á
sjómenn svo þeir haldi aftur til hafs
og hætti þessu kvabbi.
„Samninganefndir sjómanna
komu sér saman um nokkrar kröf-
ur til að ná fram að einhverju leyti
í samningum sínum við útgerðirnar
og þær eru virkilega hófstilltar og
sanngjarnar. Til að liðka fyrir
samningum samþykktu þeir meira
að segja nýsmíðaálagið í nokkur ár
í viðbót, en það eitt og sér sýnir
mikla fórnfýsi af þeirra hálfu. Að
hugsa sér að sjómenn eigi að
greiða fyrir ný skip sem þeir eign-
ast svo ekki er jafn galið og að ætla
sér að strætóbílstjórar greiði fyrir
nýja strætóa, með þeim rökstuðn-
ingi að það fari betur um þá í þeim
og því sé sanngjarnt að þeir taki
þátt í slíkri fjárfestingu. Það er
þess vegna dapurlegt að sjá þegar
SFS flíkar staðreyndavillum varð-
andi meðallaun sjómanna og launa-
hlutfall þeirra, og útgerðir nota
þann styrk sem þær hafa til að
reyna að sýna samfélaginu fram á
það að sjómenn séu vanþakklát of-
urlaunastétt sem hafi ekki yfir
neinu að kvarta,“ segir Heiðveig.
Sjómenn eiga skilið
stuðning og klapp á bakið
„Sjómenn eru ekki bara bakbein-
ið í íslenskum sjávarútvegi, sem
hefur skapað þá velsæld í sam-
félaginu sem við öll þekkjum og
tökum sem sjálfsagðri, heldur vinn-
andi stétt sem í gegnum tíðina hef-
ur þurft að sæta stigvaxandi kjara-
skerðingum og rakalausum
frádrætti af launum sínum á grund-
velli löngu brostinna lagalegra for-
sendna – á meðan útgerðir landsins
upplifa mesta fjárhagslega blóma-
skeið í sögu greinarinnar. Auk þess
er það ekki flókið reikningsdæmi
að skatttekjur í formi tekjuskatts
og tryggingagjalds af launum sjó-
manna skila mun meira til sam-
félagsins en fjármagnstekjur af
arði,“ segir Heiðveig.
„Manni finnst að það ætti að
vera á hinn veginn, að sjómönnum
væri þakkað sitt framlag því það
sést berlega nú þegar verkfallið er
orðið svona langt að það geta ekki
margir stigið inn í störf þeirra.
Hvað þá eru tilbúnir til að leggja
það á sjálfa sig og fjölskyldur sínar
að vera alltaf fjarverandi til að
standa undir hinum svokallaða
efnahagslega stöðugleika. Við skul-
um heldur ekki gleyma því að nán-
ast helmingur af tekjum sjómanna
skilar sér í ríkiskassann í formi
skatta og er okkur öllum til hags-
bóta. Þetta er ekki einkamál sjó-
manna, þetta er hagsmunamál fyrir
alla þjóðina. Hvað ætli við séum
búin að kasta mörgum landspítöl-
um eða þyrlum í vasa útgerð-
armanna með þessu tómlæti stjórn-
valda?“ segir Heiðveig María
Einarsdóttir.
thorvaldur@mbl.is
Ljósmynd/Hlynur Ágústsson
Forsendubrestur Heiðveig María: „Ríkið að sjá sóma sinn í því að leiðrétta þá kjaraskerðingu sem fólst í afnámi sjómannaafsláttarins. Stjórnvöld þurfa einfaldlega að vinna heimavinnuna sína.“