Morgunblaðið - 09.02.2017, Blaðsíða 76
Drottningablár Litur augnabliksins hjá Slippfélaginu.
„Drottningablár og Blágrýti eru nýir,
dökkbláir litir frá okkur sem hafa notið
mikilla vinsælda frá því að við settum
þá á markað í lok nóvember síðastlið-
ins, þannig að það er óhætt að segja að
þeir séu mest í tísku nú í upphafi árs-
ins,“ segir Guðjón Finnur Drengsson,
sölufulltrúi hjá Slippfélaginu. „Tískan í
innanhússmálun gengur í hringi eins
og svo margt annað. Í mörg ár vildu
flestir helst mála allt hvítt, eða nota
ljósa liti, en fyrir um það bil fimm ár-
um varð breyting á og nú er fólk orðið
óhrætt við að mála heimili sín í dekkri
litum, sem er mjög skemmtileg
þróun.“
Guðjón segir mikið spurt um bláa
litatóna hjá Slippfélaginu og þó að Blá-
grýti og Drottningablár séu lang-
vinsælastir kjósi sumir viðskiptavinir
frekar að láta sérblanda fyrir sig bláan
lit, sem fellur enn betur að þeirra
smekk og passar vel inn í húsakynnin.
„Stundum ákveður fólk að mála vegg á
milli eldhúsinnréttingar í bláum lit,
aðrir þekja einn vegg í stofu með
bláum, sumir mála heilt herbergi í
nýja litnum og svo eru þeir sem fara
alla leið og mála alla veggi í fallegum
bláum tón.“
Sandur og Gauragrár
Aðspurður segist Guðjón ekki geta
sagt til um hvað beinlínis hratt af stað
bláu bylgjunni í innanhússmálun, en
sumir vilji meina að nýjasta tískubylgj-
an tengist Evrópumeistaramótinu í
knattspyrnu í Frakklandi síðastliðið
sumar. „Það eru tilgátur á lofti um að
blátt hafi komist í tísku í kringum EM
og vinsælustu litirnir okkar séu
sprottnir út frá flottum jakkafötum ís-
lenska landsliðsins. Þó að blár sjáist
reyndar líka í erlendum fagtímaritum
þá er ég ekki frá því að EM sé áhrifa-
valdur hér heima.“
Guðjón bendir á að fyrir nokkrum
árum hafi Sandur, nýr litur Slipp-
félagsins, slegið í gegn og hann sé enn
mjög vinsæll. „Ljósgrábrúnir litir, eins
og til dæmis Sandur, eru klassískir og
hlýlegir og margir velja þá litatóna inn
á sitt heimili eða vinnustað. Svo hafa
litirnir í litakortinu Skreytum hús ver-
ið vinsælir og þá sérstaklega Gauragr-
ár og Dömugrár. Núna má segja að
Kozýgrár sé mest seldur af því lita-
korti, þetta er aðeins dekkri litur með
gráum og grænum undirtón.“
Unnið með hönnuðum
Guðjón leggur áherslu á gæði máln-
ingarinnar frá Slippfélaginu. „Innan-
hússmálningin okkar er 100% akrýl-
málning, hún er einstaklega slitsterk
og endingargóð, heldur gljáa, er mjög
auðveld í notkun, þekur vel og það er
gott að þrífa hana. Hjá Slippfélaginu
starfar fólk með mikla sérþekkingu í
faginu, sem hefur einlægan áhuga á
öllu sem snýr að málningu og litum.
Hér er góður starfsandi og hár starfs-
aldur, ég hef til dæmis unnið hjá fyr-
irtækinu í 20 ár og aðrir hafa unnið
enn lengur.
Við reynum að vera alltaf með putt-
ann á púlsinum þegar kemur að litum
og erum framsækin á því sviði. Und-
anfarin ár höfum við lagt mikla áherslu
á að vinna með ungum hönnuðum og
fólki úr hönnunargeiranum þegar
kemur að því að blanda og hanna nýja
liti. Nokkrum sinnum á ári ári velur
hönnunarteymi Slippfélagsins nýja liti
eða „trend“, þar sem við leggjum
áherslu á einn lit sem leggur línurnar.
Við köllum hann lit augnabliksins, sem
er Drottningablár núna.“
Myndir í símanum
Hann bætir við: „Oft kemur fólk til
okkar með mynd í símanum og er að
leita að „nákvæmlega svona tón“. Við
leggjum okkur fram um að finna út
hvaða litur það er og blöndum hann af
nákvæmni, allt eftir óskum hvers og
eins. Það er auðvitað ekkert skemmti-
legra en að mála heimilið í „sínum lit-
um“. Svo hjálpum við viðskiptavinum
að finna liti sem passa vel með nýja
litnum. Bendum þeim til dæmis á að
Ektahvítur fellur vel að tískulitnum
Drottningabláum, þar sem hann er
kaldur og örlítið grátóna. Öldugrár er
ljósgrár litur sem tónar svo vel við þá
báða.“
Þó að dökkir litir verði æ fyrirferð-
armeiri hjá Slippfélaginu eru margir
sem velja áfram hvíta litinn eða aðra
ljósa liti innanhúss og vilja jafnvel
meina að dökkir litir, til dæmis á heilu
herbergi, hafi þau áhrif að rýmið virð-
ist minna og þrengra en raunin er.
Guðjón er ekki á sama máli. „Mín til-
finning og upplifun er allt önnur og
margir eru mér sammála. Dökkur lit-
ur er meira umvefjandi en hvítur eða
ljós og gefur rýminu bæði mýkt og
hlýju.“
Það er freistandi að spyrja Guðjón í
lokin út í hans persónulega smekk og
heimilið, hvort þar sé allt blátt?
„Reyndar er ég ekkert í bláu litunum
heima hjá mér, bara í vinnunni. Ég
valdi Baulu fyrir sjálfan mig, það er
fallegur brúnn tónn og ég er með hann
á allri stofunni og líka í miðrými íbúð-
arinnar. Þetta er mjög flottur litur og
ég hef selt mikið af honum til við-
skiptavina, enda hef ég sjálfur góða
reynslu af honum og get svo sann-
arlega mælt með honum.“
beggo@mbl.is
Bláa
bylgjan
Drottningablár og Blágrýti, nýjustu
innanhússlitir Slippfélagins, njóta mikilla
vinsælda og þekja veggi æ fleiri heimila
Blágrýti Vinsæll nýr litur Slippfélagsins sem passar vel með gráu og hvítu.
Blátt áfram „Stundum ákveður fólk að mála vegg á milli eldhúsinnréttingar í bláum lit, aðrir þekja einn vegg í
stofu með bláum, sumir mála heilt herbergi í nýja litnum og svo eru þeir sem fara alla leið og mála alla veggi í fal-
legum bláum tón,“ segir Guðjón Finnur Drengsson, sölufulltrúi hjá Slippfélaginu í Hafnarfirði.
76
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. FEBRÚAR 2017
HEIMILIÐ
freelancer collection
Reykjavík: GÞ - skartgripir & úr, Bankastræti 12 s: 551-4007, Meba,
Kringlunni s: 553-1199, Meba - Rhodium, Smáralind s: 555-7711
Kópavogur: Klukkan, Hamraborg 10 s: 554 4320 Hafnarfjörður: Úr &
Gull, Firði-Miðbæ Hafnarfjarðar s: 565-4666 Keflavík: Georg V. Hannah,
úrsmiður, Hafnargötu 49 s: 421-575 Akureyri: Halldór Ólafsson úrsmiður,
Glerártorgi s: 462-2509
RAYMOND WEIL söluaðilar