Morgunblaðið - 09.02.2017, Blaðsíða 97
MENNING 97
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. FEBRÚAR 2017
breytingarnar og upplýsa almenn-
ing. Mér finnst lykilatriði að mynda
ekki bara eyðilega náttúru heldur
einnig fólkið sem byggir þessi
svæði, því lífsbaráttan á þessum
svæðum er hörð. Þannig sýna
myndirnar jafnt mannlífið, dýralífið,
náttúruna og veðrið.“
Í kapphlaupi við tímann
Sögurnar á bak við myndirnar
hafa alltaf verið stór þáttur í bókum
Ragnars. „Margir ljósmyndarar
hafa verið í stríði við textann, en
fyrir mér er textinn alveg jafn mik-
ilvægur og myndin. Textinn bætir
myndina og skapar tengingu við
viðfangsefnið. Ljósmyndabækur án
texta eru fyrir mér eins og mynda-
albúm af fjölskyldu sem ég þekki
ekki. Mér finnst svo mikilvægt að
segja sögurnar að baki hverri
mynd, setja nöfn á fólkið og lýsa að-
stæðunum þegar myndirnar voru
teknar,“ segir Ragnar og fer fögr-
um orðum um samstarfið við Einar
Geir Ingvarsson, sem hannar bók-
ina, og Kristján B. Jónasson, útgef-
anda og eiganda Crymogeu sem
gefur bókina út.
Aðspurður segist Ragnar ekki í
vafa um að Íslensku bókmennta-
verðlaunin muni koma honum til
góða í þeim verkefnum sem eru
framundan. „Andlit norðursins er
aðeins eitt þrep í mun stærra verk-
efni sem ég er að vinna með Einari
Geir og Kristjáni. Á morgun
[fimmtudag] held ég til Scoresby-
sund á Grænlandi til að leggja loka-
hönd á bók um grænlenska hund-
inn, sem haldið hefur lífi í íbúa
landsins í 4.500 ár, sem við Einar
Geir erum að vinna. Samhliða því
erum við einnig að vinna að bók um
jöklana,“ segir Ragnar og bætir við
að íslensku jöklarnir muni halda
áfram að bráðna vegna þeirrar
hlýnunar sem þegar hefur átt sér
stað og því miður virðist ekki vera
hægt að bjarga þeim úr þessu.
„Stærsta verkefnið framundan er
hins vegar umfangsmikil heim-
skautabók með myndum frá öllum
heimskautalöndunum átta,“ segir
Ragnar og vísar þar til Íslands,
Grænlands, Noregs, Finnlands, Sví-
þjóðar, Kanada, Alaska og Rúss-
lands. Lesendur Morgunblaðsins
gátu á síðasta ári séð hluta þeirra
mynda sem Ragnar tók af íbúum á
sléttum Síberíu þar sem sífrerinn
er að hverfa úr jörðu með þeim af-
leiðingum að miltisbrandur leysist
úr jörðu og verður hreindýrum á
svæðin að aldurtila. Myndir úr ferð-
um Ragnars til Síberíu eru meðal
þeirra sem rata munu inn í heim-
skautabókina væntanlegu.
„Sem stendur er verið að vinna í
fjármögnun bókarinnar, en draum-
urinn er að ég geti einbeitt mér al-
farið að bókinni í tvö til þrjú ár.
Hingað til hef ég unnið bækur mín-
ar í frítímanum meðfram fullri
vinnu og þá tekur svo langan tíma
að vinna þær. En vegna þeirra
breytinga sem orðið hafa í heim-
inum og framundan eru erum við
komin í kapphlaup við tímann,“ seg-
ir Ragnar og bendir á að mikils
metnir vísindamenn og heimþekktir
einstaklingar séu meðal þeirra sem
munu skrifa í heimskautabókina.
„Ég er sannfærður um að þessi
verðlaun muni hjálpa heim-
skautabókinni minni að fara á meira
flug. Ég get því ekki annað en verið
þakklátur dómnefndinni og fram-
sýni hennar.“
Getum tekið á móti fleiri
„Ég neita því ekki að þetta kom
mér á óvart, en vissulega mætti
segja að ég hafi aukið líkur mínar
með því að vera með tvær bækur í
pottinum,“ segir Hildur Knútsdóttir
höfundur hrollvekjunnar Vetrar-
hörkur, sem er seinni hluti Vetrar-
frís sem út kom í fyrra og var líka
tilnefnd til Íslensku bókmennta-
verðlaunanna. Hildur var í ár ásamt
Þórdísi Gísladóttur einnig tilnefnd
fyrir Dodda: bók sannleikans!
Hildur var stödd í Bandaríkj-
unum í boði þarlendra stjórnvalda
þegar blaðamaður náði tali af henni
í gær og missti þar af leiðandi af
verðlaunaafhendingunni. „Mér
bauðst ásamt 22 öðrum þátttak-
endum víðs vegar að úr heiminum
að taka þátt í þriggja vikna pró-
grammi um loftslagsbreytingar og
endurnýjanlega orku,“ segir Hildur
sem væntanleg er til landsins á
morgun. „Ég hef verið mjög virk í
loftslagsmálum heima á Íslandi og
var að vinna í þessum málum fyrir
Náttúruverndarsamtök Íslands áð-
ur en ég fór í framboð fyrir Vinstri
græn,“ segir Hildur sem gerði lofts-
lagsmál og flóttamannavandann að
umtalsefni í þakkarræðu sinni. „Í
bókunum tveimur gera geimverur
árás á Ísland sem leiðir til þess að
Bragi og Bergljót verða flóttamenn
í eigin landi,“ segir Hildur, sem í
þakkarræðu sinni hvatti Íslendinga
til að leggja sitt af mörkum í mála-
flokknum og hjálpa. „Við getum
tekið á móti miklu fleiri flóttamönn-
um auk þess sem við getum reynt
að fyrirbyggja að fólk fari á flótta.“
Frábær viðurkenning
Spurð hvaða áhrif verðlaunin hafi
segir Hildur þau sér mikla hvatn-
ingu. „Það er auðvitað frábært að fá
viðurkenningu. Það var orðið löngu
tímabært að verðlauna í flokki
barna- og ungmennabóka, því allt
hangir saman,“ segir Hildur og
bendir á að eitt af því sem launa-
sjóður rithöfunda horfi til við út-
hlutanir starfslauna sé hvort bækur
höfunda hafi hlotið tilnefningar og
verðlaun. „Verðlaunin sem slík hafa
þannig bæði praktísk og táknræn
gildi,“ segir Hildur sem í ár og í
fyrra hlaut sex mánaða starfslaun
rithöfunda og þrjá mánuði árið
2015. „Ég á tvö lítil börn og þarf að
borga reikninga, þannig að ég hefði
ekki getað sinnt skrifunum ef ég
hefði ekki fengið starfslaun. Ef við
ætlum að eiga atvinnurithöfunda
verðum við að hafa launasjóð,“ seg-
ir Hildur.
Innt eftir því hvað sé framundan
hjá henni segir Hildur að til standi
að gefa Vetrarfrí og Vetrarhörkur
út bæði í Frakklandi og Sádi-
Arabíu. „Við Þórdís munum skrifa
aðra bók um Dodda sem væntanleg
er fyrir jólin. Síðan er ég að byrja á
nýjum þríleik sem gerist á Íslandi.
Aðalpersónan er 16 ára stelpa sem
er að byrja í menntaskóla. Ég hafði
ekki einsett mér að skrifa aðra ung-
lingabók, en það er greinilega eitt-
hvað við þennan aldur sem heillar
mig. Unglingsárin eru átakatími í
lífi fólks og þess vegna spennandi.“
Spurð hvort hún sé búin að ráð-
stafa verðlaunafénu svarar Hildur
því neitandi. „En ég ætla að reyna
að gera eitthvað gott við féð sem
gagnast fleirum en mér.“
Fjögurra manna lokadómnefnd
valdi vinningsverkin úr hópi fimm-
tán bóka sem tilnefndar voru til
verðlaunanna í desember þegar
fimm bækur voru tilnefndar í hverj-
um flokki. Lokadómnefnd skipuðu
Knútur Hafsteinsson, Árni Árna-
son, Aðalsteinn Ingólfsson og Árni
Sigurjónsson, sem jafnframt var
formaður nefndarinnar.
Auk verðlaunaverksins Ör eftir
Auði Övu Ólafsdóttur sem Bene-
dikt bókaútgáfa gaf út voru í flokki
fagurbókmennta tilnefndar í staf-
rófsröð höfunda: Skegg Raspútíns
eftir Guðrúnu Evu Mínervudóttur
sem Bjartur gaf út; Ljóð muna rödd
eftir Sigurð Pálsson sem JPV út-
gáfa gaf út; Ég er sofandi hurð (Co
Dex 1962) eftir Sjón sem JPV út-
gáfa gaf út og Allt fer eftir Steinar
Braga sem Mál og menning gaf út.
Auk verðlaunaverksins Andlit
norðursins eftir Ragnar Axelsson
sem Crymogea gaf út voru til-
nefndar til verðlaunanna í flokki
fræðirita og bóka almenns efnis:
Saga tónlistarinnar eftir Árna
Heimi Ingólfsson sem Forlagið gaf
út; Leitin að svarta víkingnum eftir
Bergsvein Birgisson sem Bjartur
gaf út; Á hverju liggja ekki vorar
göfugu kellíngar eftir Guðrúnu Ing-
ólfsdóttur sem Háskólaútgáfan gaf
út og Jón lærði og náttúrur náttúr-
unnar eftir Viðar Hreinsson sem
Lesstofan gaf út.
Auk verðlaunabókarinnar
Vetrarhörkur eftir Hildi Knúts-
dóttur sem JPV útgáfa gaf út voru
tilnefndar til verðlauna í flokki
barna- og ungmennabóka: Doddi:
bók sannleikans! eftir Hildi Knúts-
dóttur og Þórdísi Gísladóttur sem
Bókabeitan gaf út; Íslandsbók
barnanna eftir Margréti Tryggva-
dóttur og Lindu Ólafsdóttur sem
Iðunn gaf út; Vargöld – fyrsta bók
eftir Þórhall Arnórsson og Jón Pál
Halldórsson sem Iðunn gaf út og
Vélmennaárásin eftir Ævar Þór
Benediktsson sem Mál og menning
gaf út.
Íslensku bókmenntaverðlaunin
nema einni milljón króna fyrir
hvert verðlaunaverk og eru kostuð
af Félagi íslenskra bókaútgefenda.
Auk þess er verðlaunahöfum af-
hent skrautrituð verðlaunaskjöl og
verðlaunagripir, hannaðir af Jóni
Snorra Sigurðssyni á gullsmíða-
verkstæði Jens; opin bók á gran-
ítstöpli með nafni verðlaunahöf-
undar og bókar hans.
Íslensku bókmenntaverðlaun-
unum var komið á fót árið 1989 í
tilefni af 100 ára afmæli Félags ís-
lenskra bókaútgefenda sem stofn-
að var í Reykjavík í janúar 1889.
Fyrsta árið var verðlaununum ekki
skipt í flokka en tilnefndar alls 10
bækur. Árið eftir var tilhögun verð-
launanna breytt þannig að til-
nefndar bækur skiptust í tvo
flokka, fagurbækur annars vegar
og fræðibækur og rit almenns efn-
is hins vegar. Þannig hafa verð-
launin haldist óbreytt þar til ársins
2013 að við bætist flokkur barna-
og ungmennabóka.
Alls voru 15 bækur tilnefndar
FJÖGURRA MANNA LOKADÓMNEFND VALDI VERÐLAUNAVERKIN
Ert þú á leið í leikhús? Pantaðu ljúffengar veitingar til
að njóta fyrir sýningu eða í hléi á borgarleikhus.is
Úti að aka (Stóra svið)
Lau 4/3 kl. 20:00 Frums. Sun 12/3 kl. 20:00 5. sýn Fös 24/3 kl. 20:00 aukas.
Sun 5/3 kl. 20:00 2. sýn Fös 17/3 kl. 20:00 6. sýn Lau 25/3 kl. 20:00 9. sýn
Fim 9/3 kl. 20:00 3. sýn Lau 18/3 kl. 20:00 aukas. Sun 26/3 kl. 20:00 10. sýn.
Fös 10/3 kl. 20:00 aukas. Sun 19/3 kl. 20:00 7. sýn Fim 30/3 kl. 20:00 aukas.
Lau 11/3 kl. 20:00 4. sýn Mið 22/3 kl. 20:00 8. sýn Fös 31/3 kl. 20:00 aukas.
Sprenghlægilegur farsi eins og þeir gerast bestir.
MAMMA MIA! (Stóra sviðið)
Fös 10/2 kl. 20:00 150. s Sun 19/2 kl. 20:00 154. s Lau 8/4 kl. 20:00 158. s
Lau 11/2 kl. 20:00 151. s Fim 23/2 kl. 20:00 155. s Þri 11/4 kl. 20:00 159. s
Fös 17/2 kl. 20:00 152. s Fös 24/2 kl. 20:00 156. s Mið 19/4 kl. 20:00 160. s
Lau 18/2 kl. 20:00 153. s Lau 25/2 kl. 20:00 157. s Lau 22/4 kl. 20:00 161. s
Glimmerbomban heldur áfram!
Blái hnötturinn (Stóra sviðið)
Lau 11/2 kl. 13:00 32. s Sun 5/3 kl. 13:00 35. s Sun 26/3 kl. 13:00 38. s
Sun 19/2 kl. 13:00 33. s Sun 12/3 kl. 13:00 36. s Lau 1/4 kl. 13:00 39. s
Lau 25/2 kl. 13:00 34. s Sun 19/3 kl. 13:00 37. s Lau 8/4 kl. 13:00 40. s
Nýr fjölskyldusöngleikur byggður á verðlaunasögu Andra Snæs Magnasonar
Ræman (Nýja sviðið)
Fim 9/2 kl. 20:00 12.sýn
Nýtt verk sem hlaut Pulitzer-verðlaunin 2014! Síðasta sýning!
Hún Pabbi (Litla svið )
Fim 9/2 kl. 20:00 11.sýn Fös 10/2 kl. 20:00 12.sýn
Í samstarfi við leikhópinn Trigger Warning. Síðustu sýningar!
Illska (Litla sviðið)
Fim 2/3 kl. 20:00 Fös 10/3 kl. 20:00
Fös 3/3 kl. 20:00 Lau 11/3 kl. 20:00
Samstarfsverkefni við Óskabörn ógæfunnar
Vísindasýning Villa (Litla svið )
Lau 11/2 kl. 13:00 3. sýn Lau 18/2 kl. 13:00 5. sýn Sun 19/3 kl. 13:00 Táknmáls.
Sun 12/2 kl. 13:00 4. sýn Sun 19/2 kl. 13:00 6. sýn
Ferðalag fyrir börn um töfraheim vísindanna.
Salka Valka (Stóra svið)
Fim 9/2 kl. 20:00 15 sýn Fim 16/2 kl. 20:00 17.sýn
Sun 12/2 kl. 20:00 16.sýn Sun 26/2 kl. 20:00 18.sýn
Ein ástsælasta saga þjóðarinnar í leikstjórn verðlaunaleikstjórans Yönu Ross
leikhusid.is | midasala@leikhusid.is | 551 1200
Djöflaeyjan (Stóra sviðið)
Lau 11/2 kl. 19:30 38.sýn Lau 18/2 kl. 19:30 39.sýn Fös 24/2 kl. 19:30 40.sýn
Síðustu sýningar!
Maður sem heitir Ove (Kassinn)
Fös 10/2 kl. 19:30 38.sýn Lau 18/2 kl. 19:30 41.sýn Fös 24/2 kl. 19:30 44.sýn
Lau 11/2 kl. 19:30 39.sýn Sun 19/2 kl. 19:30 42.sýn
Fös 17/2 kl. 19:30 aukasýn Fim 23/2 kl. 19:30 43.sýn
Siggi Sigurjóns og Bjarni Haukur sameina krafta sína í bráðfyndnum einleik!
Óþelló (Stóra sviðið)
Fim 9/2 kl. 19:30 10.sýn Fim 16/2 kl. 19:30 aukasýn Lau 25/2 kl. 19:30 12.sýn
Fös 10/2 kl. 19:30 aukasýn Fös 17/2 kl. 19:30 11.sýn
Vesturport tekst á nýjan leik á við Shakespeare!
Gott fólk (Kassinn)
Sun 12/2 kl. 19:30 10.sýn Fim 16/2 kl. 19:30 11.sýn Lau 25/2 kl. 19:30 12.sýn
Síðustu sýningar!
Fjarskaland (Stóra sviðið)
Sun 12/2 kl. 13:00 4.sýn Sun 26/2 kl. 16:00 7.sýn Sun 19/3 kl. 13:00 aukasýn
Sun 12/2 kl. 16:00 aukasýn Sun 5/3 kl. 13:00 10.sýn Sun 19/3 kl. 16:00 15.sýn
Sun 19/2 kl. 13:00 6.sýn Sun 5/3 kl. 16:00 11.sýn Sun 26/3 kl. 13:00 aukasýn
Sun 19/2 kl. 16:00 aukasýn Sun 12/3 kl. 13:00 12.sýn Sun 26/3 kl. 16:00 17.sýn
Sun 26/2 kl. 13:00 5.sýn Sun 12/3 kl. 16:00 13.sýn
Nýtt íslenskt barnaleikrit eftir Góa!
Gísli á Uppsölum (Kúlan)
Fim 9/2 kl. 19:30 Lau 11/2 kl. 14:00 Sun 12/2 kl. 14:00
Einstakt leikverk um einstakan mann í uppfærslu Kómedíuleikhússins.
Mið-Ísland að eilífu (Þjóðleikhúskjallarinn)
Fim 9/2 kl. 20:00 21.sýn Lau 18/2 kl. 20:00 29.sýn Fim 2/3 kl. 20:00 36.sýn
Fös 10/2 kl. 20:30 22.sýn Lau 18/2 kl. 22:30 30.sýn Fös 3/3 kl. 20:00 37.sýn
Fös 10/2 kl. 23:00 23.sýn Sun 19/2 kl. 21:00 aukasýn Fös 3/3 kl. 22:30 38.sýn
Lau 11/2 kl. 20:00 24.sýn Fim 23/2 kl. 20:00 31.sýn Lau 4/3 kl. 20:00 39.sýn
Lau 11/2 kl. 22:30 25.sýn Fös 24/2 kl. 20:00 32.sýn Lau 4/3 kl. 22:30 40.sýn
Fim 16/2 kl. 20:00 26.sýn Fös 24/2 kl. 22:30 33.sýn Fim 9/3 kl. 20:00 41.sýn
Fös 17/2 kl. 20:00 27.sýn Lau 25/2 kl. 20:00 34.sýn
Fös 17/2 kl. 22:30 28.sýn Lau 25/2 kl. 22:30 35.sýn
Ef hláturinn lengir lífið stefnir Mið-Ísland á ódauðleika!
Húsið (Stóra sviðið)
Lau 11/3 kl. 19:30 Frums Lau 18/3 kl. 19:30 3.sýn Lau 25/3 kl. 19:30 5.sýn
Fim 16/3 kl. 19:30 2.sýn Fös 24/3 kl. 19:30 4.sýn
Frumuppfærsla á áður ósýndu verki eins helsta leikskálds Íslendinga.
Tímaþjófurinn (Kassinn)
Fös 24/3 kl. 19:30 Frums Fös 31/3 kl. 19:30 5.sýn Sun 9/4 kl. 19:30 9.sýn
Lau 25/3 kl. 19:30 2.sýn Þri 4/4 kl. 19:30 6.sýn Mið 19/4 kl. 19:30 10.sýn
Mið 29/3 kl. 19:30 3.sýn Fim 6/4 kl. 19:30 7.sýn Fös 21/4 kl. 19:30 11.sýn
Fim 30/3 kl. 19:30 4.sýn Fös 7/4 kl. 19:30 8.sýn
Einstakt verk um ástina ■ um óslökkvandi þrá, höfnun og missi
Improv Ísland (Þjóðleikhúskjallari)
Mið 15/2 kl. 20:00 Mið 8/3 kl. 20:00 Mið 29/3 kl. 20:00
Mið 22/2 kl. 20:00 Mið 15/3 kl. 20:00
Mið 1/3 kl. 20:00 Mið 22/3 kl. 20:00
Spunasýningarnar vinsælu snúa aftur - engin sýning eins!
Íslenski fíllinn (Brúðuloftið)
Lau 11/2 kl. 13:00 Lau 18/2 kl. 13:00
Lau 11/2 kl. 15:00 Lau 18/2 kl. 15:00
Aukasýningar - aðeins þessar sýningar
#islenskaoperan · Miðasala: opera.is
HRÍFANDI UPPLIFUN
ÓPERA / LEIKRIT EFTIR POULENC & COCTEAU
FRUMSÝNING 9. FEBRÚAR 2017 Í HÖRPU
LEIKGERÐ OG LEIKSTJÓRN:
BRYNHILDUR GUÐJÓNSDÓTTIR
FLYTJENDUR AUÐUR GUNNARSDÓTTIR,
ELVA ÓSK ÓLAFSDÓTTIR OG
EVA ÞYRI HILMARSDÓTTIR