Morgunblaðið - 09.02.2017, Blaðsíða 96

Morgunblaðið - 09.02.2017, Blaðsíða 96
96 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. FEBRÚAR 2017 Mest seldu ofnar á Norðurlöndum VIÐTAL Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is Auður Ava Ólafsdóttir, Ragnar Axelsson og Hildur Knútsdóttir hlutu í gær Íslensku bókmennta- verðlaunin 2016 er þau voru afhent við hátíðlega athöfn á Bessastöðum í 28. sinn, en það var forseti Ís- lands, Guðni Th. Jóhannesson, sem afhenti verðlaunin. Auður Ava hlaut verðlaunin í flokki fagurbókmennta fyrir skáldsöguna Ör, Ragnar í flokki fræðirita og bóka almenns efnis fyrir ljósmyndabókina Andlit norðursins og Hildur í flokki barna- og ungmennabóka fyrir hrollvekj- una Vetrarhörkur. Hver höfundur hlýtur eina milljón króna í verð- launafé. Í samtali við Morgunblaðið ræddu verðlaunahöfundarnir að- steðjandi ógnir samtímans sem birtast í loftslagsbreytingum af mannavöldum, stríðum og flótta- fólki sem er umfjöllunarefni bóka þeirra. Eins og klapp á bakið „Ég er mjög ánægð og þakklát fyrir að hljóta þessi verðlaun. Þau virka eins og klapp á bakið og eru mikilvægur stuðningur að heiman út í heim,“ segir Auður Ava Ólafs- dóttir, höfundur skáldsögunnar Ör. „Mér finnst óneitanlega gaman að vera komin í hóp með hinum strák- unum og nokkrum flottum kvenrit- höfundum sem hlotið hafa verðlaun- in,“ segir Auður Ava sem er áttunda konan sem hlýtur Íslensku bókmenntaverðlaunin í flokki fag- urbókmennta, en alls hafa 19 karl- menn hlotið verðlaunin í sama flokki, en sé horft til allra flokkanna þriggja hafa 15 konur hlotið verð- launin en á fimmta tug karla. Auður Ava hefur notið velgengni erlendis og bækur hennar ratað víða. Spurð hvort Íslensku bók- menntaverðlaunin muni hjálpa bók- um hennar erlendis telur Auður Ava að þau gætu skipt máli á Norð- urlöndunum þar sem vel er fylgst með verðlaunum á borð við þessi. „Ég vona að ég fái tækifæri til að tala um Ör erlendis og ekki síður þau brýnu mál sem tengjast bók- inni, þ.e. stríð og þjáningu, bæði til- vistarlega þjáningu og þjáningu heimsins. Ég held ég hafi þar eitt- hvað að segja.“ Innt eftir því hvort Ör sé besta skáldsaga hennar til þessar segist Auður Ava líta svo á að þetta sé mikilvæg bók á annan hátt en hin- ar. „Mér þykir að minnsta kosti mjög vænt um að hafa fengið verð- launin fyrir þessa bók,“ segir Auður Ava og tekur fram að sér hafi fund- ist erfiðara að skrifa Ör en fyrri bækurnar. „Í fyrsta skiptið á ferl- inum skrifaði ég nokkuð mörg upp- köst. Ég var mjög lengi að fá bók- ina til að vera eins og ég vildi hafa hana,“ segir Auður Ava og bendir á að bókin sé afrakstur þess að hún hafi hugsað um þjáningu mannsins í mörg ár. Fór fram af hengifluginu „Í bókinni er ég í raun að skoða karlmennskuna í tengslum við mennskuna,“ segir Auður Ava og bendir á að manneskja, mennskan, þráin, ástin og þjáningin séu ávallt þrástef í skrifum hennar. „Okkur Íslendingum finnst réttlæti og upp- gjör svo sjálfsagt, en það er ekki þannig í heiminum. Nær und- antekningarlaust er uppgjör ekki í boði heldur aðeins samið vopnahlé. Í stríði er enginn góður.“ Í upphafi árs 2015 fékk Auður Ava úthlutað starfslaunum rithöf- unda til 24 mánaða og Ör er að stórum hluta skrifuð á þeim laun- um. Spurð hvaða þýðingu starfs- launin hafi haft fyrir hana segir Auður Ava þau hafa gert sér kleift að sinna skrifum í fullu starfi. „Starfslaunin gáfu mér sjálfstraust til að segja upp kennarastöðu við Háskóla Íslands, fara fram af hengifluginu og einbeita mér alfarið að skrifum. Fram að því hafði ég skrifað á kvöldin og um helgar sam- hliða fullu starfi, sem var þreytandi til lengdar,“ segir Auður Ava og tekur fram að dapurlegt sé að heyra árlegar úrtöluraddir um starfslaun listamanna þegar allar rannsóknir sýni fram á hversu gríð- arleg jákvæð hagræn áhrif stuðn- ingur við listir hafi. „Í sambandi við starfslaunin þá myndi ég vilja sjá fleiri litla styrki eftir fyrstu bók. Því þriggja mánaða laun geta nýst vel fyrir unga höfunda sem hafa minna umleikis en þeir sem eldri eru,“ segir Auður Ava og fagnar því að fleiri ungir höfundar hafi fengið litla styrki við seinustu úthlutun. Spurð hvort hún sé búin að ákveða í hvað hún hyggist nýta verðlaunaféð svarar Auður Ava neitandi. „Ég er ekki komin svo langt, en ætli maður reyni ekki að láta fleiri njóta – að minnsta kosti ekki að láta það hverfa í heim- ilisrekstur.“ Bráðnandi blaðsíður „Ég er auðvitað bæði glaður og stoltur,“ segir Ragnar Axelsson, höfundur ljósmyndabókarinnar Andlit norðursins, þegar hann er inntur eftir viðbrögðum. „Þessi verðlaun eru ákveðin viðurkenning á ljósmyndinni sem skráningartæki og hluta af sagnfræði nútímans,“ segir Ragnar sem á umliðnum árum hefur unnið ötult starf við að skrá- setja lífshætti íbúa á norðurslóðum og tileinkaði þeim bókina í þakk- arræðu sinni í gærkvöldi. „Lífshættir íbúanna taka nú hröðum breytingum vegna hlýn- unar loftslagsins. Oft á tíðum hefur mér liðið eins og Palla sem var einn í heiminum þegar ég hef verið að skrásetja breytingarnar á norð- urhveli jarðar,“ segir Ragnar og bendir á að slík skrásetning sé ekki sjálfsögð og gerist ekki af sjálfu sér. „Það þarf að fara á staðina, ávinna sér traust íbúa og leggja mikið á sig til að ná rétta augna- blikinu. Loftslagsbreytingar af mannavöldum eru stærsta málið á jörðinni nú um stundir. Ég hef vitað það lengi, því ég hef gengið á þess- um bráðnandi blaðsíðum sem haf- ísinn er árum og áratugum saman,“ segir Ragnar og bendir á að heim- skautin séu eins og ísskápur jarð- arinnar. „Heimskautin eru hitastillir sem hjálpar til við að gera hitastigið á jörðinni bærilegt. Við erum að glata þessum ísskáp, sem mun hafa gríð- arlega alvarlegar afleiðingar fyrir okkur – því ísskápurinn er lykillinn að lífi hér á jörð. Tími afneitunar er liðinn,“ segir Ragnar og tekur fram að sorglegt hafi verið að fylgjast með afneitunarsinnum. „Og því miður eru enn ótrúlega margir í heiminum sem vita lítið sem ekkert um ógnina sem starfar af loftslags- breytingum af mannavöldum. Þess vegna er svo mikilvægt að skrásetja „Mjög ánægð og þakklát“  Auður Ava Ólafsdóttir, Ragnar Axelsson og Hildur Knútsdóttir hlutu Íslensku bókmenntaverð- launin 2016  Loftslagsmálin, stríðsátök, þjáning og flóttafólk er verðlaunahöfundum hugleikið Morgunblaðið/Golli Gleði Ragnar Axelsson, Rún Knútsdóttir, sem tók við verðlaununum fyrir hönd Hildar systur sinnar, og Auður Ava Ólafsdóttir ásamt forseta Íslands.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.