Morgunblaðið - 09.02.2017, Blaðsíða 66
66
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. FEBRÚAR 2017
LISTHÚSINU
Fallegar
gjafavörur
Listhúsinu við Engjateig, 105 Reykjavík, sími 551 2050 Opið virka daga kl. 11.00-18.00 og laugardaga frá kl. 11.00 til 16.00
Ananas vasi
kr. 5.500 og 3.500
Vasar
kr. 4.500 og 8.700
Kertastjakar
kr. 6.700
Laugavegi 103 við Hlemm | 105 Reykjavík | Sími 551 5814 | www.th.is
Ferðatöskudagar
20% afsláttur af öllum ferðatöskum
Marta María
martamaria@mbl.is
Hátíðin Stockholm Furniture &
Light Fair er stærsti hönnunar-
viðburður á Norðurlöndum og laðar
að 30 þúsund gesti. Íslenskir hönn-
uðir eru kynntir á básnum en líka
hönnunarhátíðin HönnunarMars
sem er haldin í Reykjavík í mars á
hverju ári.
„Við settum upp níu metra langan
bárujárnsvegg í fimm litum en hver
litur hefur eitt orð sem þar sem við
lýsum hvað HönnunarMars stendur
fyrir: Come, see, talk, enjoy og unite
eru orðin. Fyrir hvert orð létum við
framleiða gamaldags myndavél sem
kallast retro viewer. Þar erum við
með myndir sem gefa innsýn í hátíð-
ina og svo á þessum litríka grunni er-
um við búin að velja húsgögn og hluti
sem eru lýsandi fyrir hvað er að ger-
ast í íslenskri hönnun,“ segir Haf-
steinn.
Á básnum eru hönnun frá Vík
Prjónsdóttur, Dögg Guðmunds-
dóttur, 1+1+1, OR Type, Þórunni
Árnadóttur, Erlu Sólveigu, Einari
Guðmunds, Scintilla, Angan, Katrínu
Ólínu og 66°Norður svo einhverjir
séu nefndir.
Greipur Gíslason, stjórnarfor-
maður HönnunarMars, segir að bás-
inn sé sérlega vel heppnaður.
„Innsetningin er sérlega íslensk
þar sem vörur hannaðar af Íslend-
ingum leika aðalhlutverk auk þess
sem gamla góða bárujárnið fær að
njóta sín. Gestir hátíðarinnar fá einn-
ig nasasjón af því sem Hönn-
unarMars hefur upp á að bjóða á ljós-
myndasýningu sem skoðuð er í
gegnum sérhannaðar View-Master
vélar. 1+1+1 hópurinn tekur einnig
þátt í hátíðinni í ár og sýnir kerti og
veggfóður á kaffihúsinu II Caffé
Söder. 1+1+1 er samstarfshópur
hönnuða frá Svíþjóð, Íslandi og Finn-
landi (Petra Lilja frá Svíþjóð, Hug-
detta frá Íslandi og Aalto+Aalto frá
Finn-
landi).
Að-
ferðafræði
þeirra er
mjög sérstök
og áhugaverð,
en hver hönn-
uður hannar hluta
hverrar vöru í sínu landi.
Svo þegar hönnuðirnir
koma saman púsla þeir
hlutunum saman og úr verð-
ur ein heildarvara. Þeir fá
ekki að sjá vörur hinna fyrr en þeir
hittast,“ segir Greipur.
Fimm tónar af bleiku fyrir íslenska hönnun
Hönnuðirnir Hafsteinn
Júlíusson og Karitas
Sveinsdóttir hjá HAF
studio hönnuðu sýningar-
bás fyrir Hönnunarmið-
stöð Íslands á Stockholm
Furniture & Light Fair
2017 sem nú fer fram í
Svíþjóð.
HönnunarMars
Hægt er að skoða
fleiri myndir inni á
Smartland.is
Hönnunarveisla F.v.: Greipur
Gíslason, Sara Jónsdóttir,
Hafsteinn Júlíusson, Karitas
Sveinsdóttir og Halla Helgadóttir.
Þessi peysa frá Gucci sást fyrst á
tískupöllunum í Lundúnum síðasta
haust og er nú komin í verslanir í út-
löndum. Hún er
hvít, úr bómull og
næloni með 1%
teygju. Eins og
sést smell-
passar hún yf-
ir þröngar
buxur og er
nokkuð
klæðileg. Það
góða við að
kreppan sé
búin er að
nú má
kaupa eina
og eina
gæðaflík.
Þessi peysa
fæst á Net-
a-porter og
kostar
382.000 á
gengi dags-
ins í dag.
Góðærispeysa