Morgunblaðið - 09.02.2017, Blaðsíða 21
lögbundnar reglugerðir sem skýrt
hefðu getað hlutverk og starfsemi
Kópavogshælis og aðbúnað barna á
hverjum tíma. „Þá hafi ráðuneytið
ekki uppfyllt það eftirlitshlutverk
sitt að tryggja að starfsemi Kópa-
vogshælis uppfyllti skilyrði laga og
reglugerða sem um hælið giltu á
hverjum tíma,“ segir í skýrslunni.
Hrefna tekur undir þetta. „Það
sem mér finnst umhugsunarvert er
hversu lítið eftirlit var með starf-
seminni. Þetta var skilgreint sem
sjúkrahús og samkvæmt lögum
áttu landlæknir og Landspítali að
hafa þetta eftirlit“
Hugsarðu stundum um aðstæður
barnanna sem voru á Kópavogs-
hæli þegar þú starfaðir þar? „Já.
Ég hef oft hugsað um þetta tíma-
bil. Ég vann í þessum málaflokki í
um 50 ár og hef séð ýmislegt. En
þetta hefur lifað með mér allan
þennan tíma.“
21
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. FEBRÚAR 2017
Ekki eru fleiri verkefni á borði vistheimilanefndar
nú þegar skýrslu um Kópavogshælið er lokið. Sú
nefnd var sérstaklega skipuð 2012 til að rannsaka
vistun og aðbúnað barna með fötlun á opinberum
stofnunum. Fyrri vistheimilanefnd starfaði frá
2007 til 2011 og skilaði skýrslum, m.a. um Breiða-
vík, Heyrnleysingjaskólann og Unglingaheimili
ríkisins.
Hrefna Friðriksdóttir, formaður vistheimila-
nefndar, segir að nefndin leggi til í skýrslunni að
skoðað verði til hlítar að reynt verði að finna ein-
faldari, viðaminni og fljótvirkari leið til að vinna
slík mál. En með þeim skýrslum sem þegar hafa
verið unnar hafi skapast grundvöllur til að taka
með aðgengilegri og einfaldari hætti en áður af-
stöðu til erinda frá þeim einstaklingum sem telja
sig hafa orðið fyrir illri meðferð og ofbeldi.
„Þá er hugsunin að búið verði
að fá nokkuð glögga mynd af
því hvaða reglur giltu og hvað
var mest áberandi í rekstri
svona stofnana þá sé óhætt að
beina athyglinni frekar að ein-
hvers konar uppgjöri við þetta
fólk sem varð fyrir þessu,“ segir
Hrefna, en fyrri vistheim-
ilanefnd var einnig með svip-
aðar tillögur. „Dómsmálaráðu-
neytið þarf að taka þessa tillögu
til skoðunar; á að fara þessa sömu leið aftur og fela
vistheimilanefnd að taka málið eða fara einfaldari
leið? Við erum komin langt á veg í þessu fortíð-
aruppgjöri og við þurfum að klára það, a.m.k.
gagnvart börnum sem voru vistuð á sam-
bærulegum tíma á sambærilegum stofnunum – það
er auðvitað mjög eðlileg að það sé gert upp við það
fólk með einhverjum hætti,“ segir Hrefna.
Í skýrslunni eru nefndar nokkrar stofnanir sem
voru reknar fyrir fólk með þroskahömlum á sama
tíma og Kópavogshælið sem mætti taka til skoð-
unar. Eru það m.a. Sólheimar í Grímsnesi, Klepp-
járnsreykir í Borgarfirði, Tjaldanes í Mosfellsbæ og
Sólborg á Akureyri. Þykir nefndinni þær eiga
margt sammerkt með Kópavogshæli. „Þegar gögn
um viðhorf til fatlaðs fólks og stöðu málaflokksins
eru metin heildstætt verður nefndin að telja að
sannfærandi rök standi til þess að gera það með ein-
hverju móti kleift að kanna og taka afstöðu til þess
hvort og í hvaða mæli börn á öðrum stofnunum en
Kópavogshæli hafi sætt illri meðferð og ofbeldi,“
segir í tillögukafla skýrslunnar. ingveldur@mbl.is
Nefndin ekki með fleiri mál til skoðunar
Hrefna
Friðriksdóttir
rúmlega 7,2 milljónir króna. Með-
albæturnar sem hver um sig hef-
ur fengið eru 2,5 milljónir en það
er mun lægra en meðalbætur
vegna sumra stofnana en mun
hærra en meðalbætur vegna ann-
arra. Ákvörðun um upphæð bóta
til hvers og eins fer m.a eftir
gerð stofnana og hvað starfstími
þeirra var langur. Bætur til
þeirra sem dvöldu á Breiðavík, í
Heyrnleysingjaskólanum og á
Landakoti hafa verið hæstar
vegna langs dvalartíma margra
og mjög margra tilvika um illa
meðferð, að sögn Halldórs Þor-
mars. ingveldur@mbl.is
Landakotsskóli Verið er að vinna í
að greiða út bætur til fyrrv. nema.
Askalind 3 • 201 Kópavogur • Sími: 562 1500 • friform.is
Við hönnumog teiknum fyrir þig
Komdumeð eða sendu okkur málin af eldhúsinu, baðinu,
þvottahúsinu, anddyrinu eða svefnherberginu - og við hönnum,
teiknum og gerum þér hagstætt tilboð í glæsilega danska innréttingu
í hæsta gæðaflokki og vönduð raftæki á vægu verði.
þitt er Valið
Þú velur að kaupa innréttinguna í ósamsettum einingum,
eða lætur okkur um samsetninguna. Að sjálfsögðu
önnumst við líka uppsetningu og endanlegan frágang fyrir
þá sem þess óska – fullkomin þjónusta, eigið verkstæði.
kr
ea
ti
V
fjölbreyttúrValafhurðum,framhliðum,
klæðningumogeiningum
ELDHÚSINNRÉTTINGAR
styrkur - ending - gæði
HÁGÆÐADANSKAR
Opið:
Mán. til föstudaga kl. 09 til 18
Laugardaga kl. 11 til 15