Morgunblaðið - 06.04.2017, Side 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. APRÍL 2017
Bókaðu núna á baendaferdir.is
Sími 570 2790 | bokun@baendaferdir.is | Síðumúla 2, 108 RVK
Portofino&CinqueTerre
Hér er á ferðinni spennandi gönguferð um tvær af fallegustu
gönguleiðunum við Miðjarðarhafið, Portofino skagann
og Cinque Terre ströndina. Náttúrufegurðin er ólýsanleg.
Brattir klettar og höfðar, þaktir ilmandi og litríkum
miðjarðarhafsgróðri sem speglar sig í túrkisbláum sjónum.
Göngurnar eru við allra hæfi.
Verð: 234.900 kr. á mann í tvíbýli.
Mjög mikið innifalið!
sp
ör
eh
f.
3. - 10. júní
Fararstjóri: Jóhanna Marín Jónsdóttir
AUKA BROTTFÖR
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
Á föstudaginn langa verður venju
samkvæmt sameiginleg guðsþjón-
usta Ás- og Laugarnessafnaðar í
Áskirkju fyrir hádegi. Einnig verð-
ur guðsþjónusta í Hátúni klukkan
13 og Sóltúni um klukkustund síð-
ar. Klukkan 15 hefst hins vegar
maraþonsýning í safnaðarheimili
Laugarneskirkju
þar sem þrjár
kvikmyndir um
Tortímandann
verða sýndar,
þ.e. Terminator
(1984), Term-
inator: Judge-
ment Day (1991)
og Terminator:
Salvation (2009).
Davíð Þór
Jónsson, sóknar-
prestur í Laugarneskirkju, segir
uppátækið vera spennandi tilraun,
en hann mun fyrir sýningu hverr-
ar myndar flytja stutt erindi um
trúar- og biblíustef í kvikmynd-
unum.
„En er ekki allt í lagi að vera
aðeins öðruvísi?“ segir Davíð Þór
spurður út í sýningarnar. „Sumum
finnst þetta e.t.v. óviðeigandi, en
það eru fjölmargar kirkjur í
Reykjavík og mér finnst hálf-
óskynsamlegt að vera með sömu
dagskrána í þeim öllum. Það er
ekki verið að eyðileggja neitt fyrir
þeim sem vilja fá sér sæti og
hlusta á Passíusálmana – þeir geta
farið þangað sem það er í boði,“
segir Davíð Þór og bætir við að
trúar- og biblíustef séu býsna áber-
andi í kvikmyndunum þremur.
„Þetta er mikið fórnarþema í
þessum myndum og aðalsöguhetjan
er getin af handanveru, hefur upp-
hafsstafina J.C. og þarf að ganga
út í opinn dauðann til að forða
mannkyni frá illum örlögum,“ segir
hann, en öllum er frjálst að mæta á
viðburðinn í Laugarneskirkju.
Snýr aftur – í kirkju
Félagar „Ég sný aftur,“ rumdi í Arnold Schwarzenegger líkt og frægt er
orðið, en myndirnar um Tortímandann munu gleðja kirkjugesti á næstunni.
Tortímandinn sýndur í Laugarneskirkju á föstudaginn
langa Sóknarprestur segir trúarstef víða í myndunum
Davíð Þór
Jónsson
Landvernd er að fara yfir niðurstöðu
úrskurðarnefndar umhverfis- og
auðlindamála vegna Kröflulínu 4.
Guðmundur Ingi Guðbrandsson
framkvæmdastjóri segir að ekki sé
hægt að svara því nú hvort farið
verði með málið fyrir dómstóla.
Niðurstaða úrskurðarnefndarinn-
ar þýðir að Landsnet hefur gilt fram-
kvæmdaleyfi sveitarfélaganna fyrir
lagningu háspennulína frá Þeista-
reykjavirkjun til Kröflu annars veg-
ar og til iðnaðarsvæðisins á Bakka
hins vegar. Stefnir fyrirtækið að því
að halda áfram framkvæmdum strax
eftir páska. Ákveði Landvernd að
höfða mál vegna línunnar verður
framkvæmdum væntanlega lokið
áður en niðurstaða dómstóla liggur
fyrir.
Þorsteinn Gunnarsson, sveitar-
stjóri Skútustaðahrepps, segir fagn-
aðarefni að úrskurðarnefndin hafi
talið seinna framkvæmdaleyfið vel
rökstutt. Sú vegferð sem farið hafi
verið í þegar nefndin ógilti fyrra
framkvæmdaleyfi til handa Lands-
neti virðist hafa tekist vel. Málið sé
nú úr höndum sveitarfélagsins, að
minnsta kosti í bili. helgi@mbl.is
Bakki
Þeistareykir
MÝVATN
HÚSAVÍK
Þeistareykjalína 1
Krafla
Heimild: Landsnet
Háspennulínur út
frá Þeistareykjavirkjun
Loftmyndir ehf.
Undirstöður
tilbúnar að mestu
Framkvæmdir
ekki hafnar
Búið að gera
slóða að hluta
Búið að reisa möstur
Kröflulína 4
Málshöfðun skoðuð
Andri Steinn Hilmarsson
ash@mbl.is
Með fjármálastefnu ríkisstjórn-
arinnar er boðuð „sveltistefna í vel-
ferð og menntun, sem og öðrum
mikilvægum málaflokkum“. Þetta
segja stjórnarandstöðuflokkarnir í
sameiginlegri yfirlýsingu þar sem
ríkisstjórnin er m.a. gagnrýnd fyrir
að ætla ekki að nýta svigrúmið sem
myndast hefur frá hruni til að gera
betur í innviðauppbyggingu en gert
verður skv. áætluninni.
Allir stjórnarandstöðuflokkarnir
fjórir standa að yfirlýsingunni þar
sem m.a. segir að ríkisstjórnin setji
skattlagningu „upp sem andstöðu
frelsis sem lýsir þeim anda nýfrjáls-
hyggju sem fjármálaáætlunin end-
urspeglar“. Enn fremur gagnrýna
flokkarnir ríkisstjórnina fyrir að
nýta ekki skattkerfið og arð af auð-
lindum til að í senn auka jöfnuð og
tryggja öflugt samfélag.
Aukning vegna framkvæmda
Í yfirlýsingu stjórnarandstöð-
unnar eru fimm stórir málaflokkar
teknir sérstaklega fyrir. Um heil-
brigðismálin segir: „Aukning til heil-
brigðismála er fyrst og fremst í
byggingu nýs Landspítala, sem þeg-
ar hafði verið ákveðið að ráðast í, þar
er því ekki verið að leysa viðvarandi
og aðsteðjandi vanda heilbrigðis-
þjónustunnar.“
Stefnuna sem birtist í samgöngu-
málum gagnrýna stjórnarand-
stöðuflokkarnir einnig: „Framlög
hækka um fimm milljarða á föstu
verðlagi og verður það að teljast hlá-
leg upphæð í ljósi þess að við af-
greiðslu síðustu fjárlaga kom í ljós
að 12-15 milljarða vantaði til að fjár-
magna þegar samþykkta samgöngu-
áætlun.“
Stjórnarandstaðan segir aukn-
ingu framlaga til menntamála „fyrst
og síðast mega skýra með byggingu
Húss íslenskra fræða“ en há-
skólastig sé undirfjármagnað og
framlög til framhaldsskóla dragist
saman. Þá gagnrýna flokkarnir tíu
milljarða aukningu til aldraðra og
öryrkja og segja það ekki nóg: „Erf-
itt er að sjá að tíu milljarða aukning
á tímabilinu dugi til þess að örorku-
lífeyrir dugi til framfærslu,“ segir
m.a. í yfirlýsingu flokkanna.
Ætti að nýta svigrúmið
Stjórnarandstaðan segir fjármálaáætlunina í anda ný-
frjálshyggju og skattkerfið eigi að nota til að auka jöfnuð
Snarpt hret gengur nú yfir landið og kuldaboli gerir
fólki lífið leitt. Við slíkar aðstæður er mikilvægt að
klæða sig vel eins og þessar konur sem voru á gangi um
Bröttugötu í Grjótaþorpinu í Reykjavík í gær gerðu.
Spáð er rysjóttu veðri víða um land næstu daga og
kaldir straumar úr norðri og austri sækja að. Þess er
þó ekki langt að bíða að vorið komi og órækt merki
þess er að sólargangurinn lengist sífellt.
Morgunblaðið/Eggert
Á gangi í kuldanum í Grjótaþorpinu