Morgunblaðið - 06.04.2017, Qupperneq 38
38 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. APRÍL 2017
Á pálmasunnudag, 9. apríl, kl. 11
verður hátíðarmessa í tilefni 60 ára
vígsluafmælis Neskirkju. Þar verður
frumflutt messa eftir Steingrím Þór-
hallsson, organista kirkjunnar. Kór
Neskirkju, barnakór Neskirkju og
Drengjakór Reykjavíkur syngja.
„Ég samdi kórverk fyrir þrjá af
messuþáttunum og bætti þar inn
Drengjakór Reykjavíkur sem ég er
að stjórna líka. Svo samdi ég útspil
og er sálmurinn sem er notaður síð-
ast í messunni uppbygging að org-
elstykkinu,“ segir Steingrímur um
verkið sem hann segir mjög að-
gengilegt, „dansryþmi“ og „poppað“
eru orð sem hann notar til lýsingar á
því. Steingrímur hefur verið org-
anisti í Neskirkju í 14 ár og langaði
til að gera eitthvað í tilefni afmæl-
isins. „Það er ekki mikið samið af
nýjum verkum í kirkjunum þessa
dagana en það er þá helst fyrir
svona viðburði,“ segir Steingrímur.
Í hátíðarmessunni munu prestar
kirkjunnar þjóna og fyrrverandi
prestar flytja bænir. Fermingarbarn
úr fyrsta fermingarárgangi kirkj-
unnar les ritningarlestur sem og
fermingarbarn í ár. Hátíðarkaffi
verður að messu lokinni. Þá fer
sunnudagaskólinn fram á sama tíma
og þar verður líka afmælishátíð.
Morgunblaðið/Kristinn Magnúss
Messuverk Steingrímur Þórhalls-
son, organisti Neskirkju.
Ný messa flutt
á pálmasunnudag
Samin af organista Neskirkju
SVIÐSLJÓS
Ingveldur Geirsdóttir
ingveldur@mbl.is
Sextíu ára vígsluafmæli Neskirkju er
fagnað með veglegum hætti í ár. Nes-
kirkja stendur við Hagatorg í Vest-
urbæ Reykjavíkur og var vígð á
pálmasunnudag 1957. En sóknin varð
til árið 1940 þegar Reykjavík var
skipt upp í fjórar sóknir; Dómkirkju-,
Hallgríms-, Laugarnes- og Nessókn.
Guðjón Samúelsson húsameistari var
fenginn til að teikna Hallgrímskirkju
og Lauganeskirkju en í Vest-
urbænum var ákveðið að fara aðrar
leiðir og efna til samkeppni um hönn-
un kirkjunnar. Tillaga Ágústs Páls-
sonar arkitekts var valin úr og kynnt
almenningi árið 1943. Þá varð uppi
fótur og fit en útlit kirkjunnar þótti
óhefðbundið og ýmsir sem fundu því
allt til foráttu, m.a. sagði Jónas frá
Hriflu teikningarnar sýna þyrpingu
af kofaræksnum og tóku margir undir
þau orð.
Leituðu álits erlendis
Sr. Skúli Sigurður Ólafsson, sókn-
arprestur í Neskirkju, hefur gaman af
því að segja blaðamanni þessa sögu.
„Alexander Jóhannesson, háskóla-
rektor og formaður bygging-
arnefndar, tók þessa neikvæðu um-
ræðu svo nærri sér að ákveðið var að
senda teikningarnar til útlanda til
hins þekkta finnska arkitekts, Elíel
Saarinen, og óska eftir áliti hans. Sa-
arinen fannst teikningarnar frábærar
og þegar sú upphefð kom að utan
sljákkaði í neikvæðninni,“ segir Skúli.
„Neskirkja var fyrsta kirkjan á Ís-
landi teiknuð út frá hugmyndum
módernismans. Hún var ekki með
hefðbundnu kirkjusniði, langskips,
forkirkju og turns. Ágúst hannaði
kirkju sem er hugsuð fyrir mikið safn-
aðarstarf, með kjallara undir öllu og
hliðarskipi fyrir ýmiskonar starf-
semi.“
Árið 1947 er farið af stað með bygg-
inguna og tíu árum síðar er kirkjan
vígð. Skúli segir að það hafi tekið fólk
langan tíma að venjast kirkjusniðinu.
„Það sem mér finnst skemmtilegt er
að það sem var á sínum tíma fram-
úrstefnulegt og byltingakennt er í
dag friðað samkvæmt lögum,“ segir
Skúli en ytra útlit Neskirkju var frið-
að árið 1990. „Þessi kirkja stendur
fyrir tímamót í kirkjubyggingum og
verður að einhverju leyti fyrirmynd
þeirra kirkna sem seinna rísa og hafa
annað snið en þessar klassísku.“
Mikið leitað til kirkjunnar
Neskirkja var teiknuð með það í
huga að vera bygging fyrir fólkið og í
dag er lögð áhersla á að kirkjan sé op-
in öllum, enda er starfið í Neskirkju
einstaklega líflegt. „Forverar okkar
voru starfsmenn í opinberri stofnun
sem fengu fólkið til sín en núna hafa
forsendurnar breyst og við þurfum að
gera ýmislegt til að laða fólk til okkar,
við erum komin í svo mikla sam-
keppni,“ segir Skúli.
Fólk leitar eigi að síður mjög mikið
til kirkjunnar að sögn sr. Steinunnar
Arnþrúðar Björnsdóttur, prests í
Neskirkju, sem er nú komin inn í við-
talið. „Þessi kirkja á sinn sess í hverf-
inu en þegar safnaðarheimilið var
tekið í notkun 2004 varð gríðarleg
breyting á öllum möguleikum og það
er mikið um að vera hérna í allskonar
starfi,“ segir Steinunn.
Skúli segir jákvætt fyrir kirkjuna
að vera í meiri samkeppni um fólkið,
það sé hvetjandi að þurfa að hafa fyr-
ir hlutunum. Steinunn segir að það
verði m.a. til þess að ákvörðun fólks
um að nýta sér þjónustu kirkjunnar
verði oft ígrundaðri en verið hafi í
gegnum tíðina.
Spurð hvernig þau sjái fyrir sér
framtíð kirkjunnar svarar Steinunn
að draumurinn sé að efla tengslin
áfram við nærsamfélagið og fá að
vera þátttakandi í samfélaginu sem
ein af þeim samtökum á svæðinu sem
eru opin fyrir fólk. „Við viljum vera
eitt af hjörtunum sem slá í þessu
hverfi,“ segir Skúli.
Eitt af hjörtum hverfisins
Sextíu ára vígsluafmæli Neskirkju á pálmasunnudag Kirkjubyggingin var mjög umdeild á sín-
um tíma Opin kirkja með líflegt starf Kirkjan í meiri samkeppni um fólkið Fjörugt afmælisár
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Við altarið Sr. Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir og Sr. Skúli Sigurður
Ólafsson með glerglugga eftir Gerði Helgadóttur í bakgrunni.
Neskirkja Útlit kirkjunnar var mjög umdeilt á sínum tíma en hún er fyrsta
kirkjan á Íslandi sem teiknuð var út frá hugmyndum módernismans.
Mikið er um að vera á sextíu
ára afmælisárinu en auk þess
er 500 ára afmæli siðbót-
arinnar sem verður líka haldið
upp á. Hátíðarhöld vegna
siðabótarinnar hefjast 30.
apríl með bjórhátíð sem verð-
ur að teljast óvenjulegt fyrir
kirkju en saga siðaskiptanna
fléttast saman við sögu bjórs-
ins. Á bjórkvöldinu verðu farið
yfir þá sögu, sungnir bjór-
sálmar og boðið upp á bjór-
smökkun.
Vegna afmælis Neskirkju
eru myndlistasýningar í safn-
aðarheimilinu en Gretar Reyn-
isson sýnir þar nú, samtal
verður um listamanninn 14.
apríl. Fyrirlestrar um tengsl
matar og trúar eru nú í gangi
og í haust verður farið í sögu-
göngu, margt fleira verður í
boði sem vert er að kynna sér.
Bjórkvöld
í kirkjunni
AFMÆLISHÁTÍÐ
RECAST SVEFNSÓFI
LÆKKAĐ
VERĐ
119.900 kr.
sófi sem breytist í rúm á
augabragði - góð springdýna
svefnflötur 140x200 cm
Skemill kr. 33.200
BÆJARLIND 16 I 201 KÓPAVOGUR I SÍMI 553 7100 I LINAN.IS
OPIÐ MÁN TIL FÖSTUDAGA 11 - 18 I LAUGARDAGA 11 - 16