Morgunblaðið - 06.04.2017, Side 58
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. APRÍL 2017
Marta María
martamaria@mbl.is
Aðspurð hvers vegna hún hafi
ákveðið að segja upp ritstjórastarfi
til að læra innanhússhönnun segir
hún að vinna hennar og áhugamál
hafi þróast í þessa átt.
„Að taka næsta skref og gera
meira með það sem ég hafði til-
einkað mér og lært. Áhugi minn á
heimilinu sem stofnun, útliti og yf-
irbragði þess í því að heimilisfólki
líði vel hefur alltaf blundað í mér.
Mér fannst ég hafa tækifæri til að
vinna á víðari vettvangi og að fjöl-
breyttari verkefnum með því að fara
í nám og því sé ég aldrei eftir,“ segir
hún.
Þegar Halla Bára er spurð að því
hvað hún leitist við að fanga í sinni
hönnun segir hún að heimilið þurfi
að vera eðlilegt – ekki einhver
draumur.
„Að svara spurningunni … hvað
lætur okkur líða vel í umhverfinu
heima sem og á þeim stöðum þar
sem við eyðum tímanum okkar?
Hvernig getur þátturinn „hönnun
tekið þátt í því? Við lendum oft í því
að eltast við hluti sem eru frekar
einhver draumur um sjálf okkur en
raunveruleiki. Það á allt að vera svo
æðislegt frekar en eðlilegt. Það sem
er spennandi í hönnun sem snýr að
nánu umhverfi okkar er hvernig má
uppfæra það sem er eðlilegt, þróa
það og breyta. Það þarf að vera
pláss fyrir fólk og þarfir þess í
hönnuninni,“ segir hún.
Nú halda margir að innanhúss-
hönnuðir vilji bara raða rándýrum
hlutum saman, þú ert ekki alveg
stödd þar eða hvað?
„Já, líklega er það rétt að ein-
hverjir hugsi á þann hátt því alltof
margir líta á innanhússhönnun sem
hobbí frekar en mikilvæga grein í
því að skapa mannlegt umhverfi –
umhverfi sem tekur mið af mann-
inum og þörfum hans. Frá upphafi
verks ætti að huga að hugtökunum
vellíðan, fegurð, hamingja, þægindi
og andrúmsloft þegar kemur að því
að setja saman og hanna umhverfi
fyrir heimili. Þetta snertir fólk and-
lega og líkamlega og er hluti af því
að heimilið sé hlýlegt og afslappað,
vingjarnlegt og umvefjandi.
Ég aðhyllist þá hugsun að vinna
með það sem þú hefur! Þú skapar
ekki persónulegt og hlýlegt um-
hverfi á annan hátt en að nota það
sem skiptir fólk máli og hefur þýð-
ingu í sögu þess og lífi. Þá er ég ekki
að tala um að engu megi breyta og
bæta við, þvert á móti, heldur
blanda og púsla saman. Ég á mjög
erfitt með heimili sem taka ham-
skiptum með reglulegu árabili. Þau
ná mér engan veginn.“
Getur þú lýst þínum stíl?
„Í einu orði: Persónulegur. Það er
hugtakið sem ég vinn með heima hjá
mér og fyrir aðra. Ég og maðurinn
minn, Gunnar Sverrisson ljósmynd-
ari, erum með mjög blandaðan stíl
og mixum óhikað saman. Óvæntir
hlutir sem lenda saman skapa
áhugaverðan pól og gefa leyfi á að
nota allt sem manni þykir fallegt.
Ég er ekki mikið fyrir fastar inn-
réttingar en þær eru nauðsynlegar
upp að ákveðnu marki. Það þarf allt-
af að vera hæfilega mikið af skápa-
og geymsluplássi svo allt virki. Ég
er talsmaður þess. En innréttingar
eiga ekki að vera aðalatriðið og góð-
ur innanhússarkitekt er algjörlega á
því líka, enda leikur hann leikinn
mun lengra í að vinna með fólki og
hugsa næsta skref í hönnuninni. Ef
ekki þá er hlutur innréttinga orðinn
svo dýr í öllu hönnunarferlinu að allt
annað skortir því svo miklu var eytt
í þær.
Hér er ég smá hvassyrt en þetta
er staðreynd. Ég er á þeirri skoðun
að það sé hægt að búa smátt og kósí
ef gott er að koma öllu sínu hag-
anlega fyrir og allt á sér sinn stað.
En þegar innréttingar eru hreinlega
aðalatriðið, skortir margt upp á til
að heimilið virki sem skyldi þegar
kemur að andlega og tilfinningalega
þættinum.
Innanhússhönnun verður bara
eitt atriði á tossalistanum sem beðið
er eftir að geta krotað yfir til að líta
á sem lokið, en slíkt verk klárast
aldrei og á ekki að gera það. Mér
finnst þessi myndlíking mjög góð:
Þetta er eins og að rugla saman hrá-
efnalista í uppskrift og halda að
hann sé máltíðin. Það þarf að blanda
hráefnunum saman svo úr verði
góður matur.“
Hvað er fólk yfirleitt að vesenast
með inni á eigin heimilum?
„Að ná fram góðu yfirbragði og
andrúmslofti því fólki finnst skorta
eitthvert jafnvægi til að allt virki.
Það leitar en áttar sig ekki á því
hvað vantar. Þetta er einfaldlega
næmi fyrir umhverfinu sínu og
áhugi. Svo er þetta mikið aðstoð við
litaval og breytingar á einstaka her-
bergjum eins og eldhúsi og baðher-
bergi.“
Fyrir hverju fellur þú þegar þú
ert að vinna með heimili?
„Alltaf því sama; persónulegri
umgjörð, hvort sem það er minimal
eða maximal – sögunni og að sjá
heimilisfólk í umhverfinu. Heimili
án sálar eru ekki aðlaðandi, sömu-
leiðis of praktísk heimili, hagkvæm,
slétt og felld, engar misfellur. Mis-
fellurnar skipta máli og sýna orku
og ástríðu, það að heimilið verður
aldrei fullkomið, og á ekki að vera
það, þegar kemur að útlitinu. Heim-
ili á aldrei að vera eins og ljósmynd í
meðalgóðum húsgagnabæklingi.“
Hvernig eru verkefnin sem þú
hefur verið að vinna að?
„Heimili, hótel, íbúðahótel, skrif-
stofur, fyrir sjálfa mig og aðra.
Þetta eru fjölbreytt verkefni en ég
vinn þau alltaf út frá sama útgangs-
punktinum – þessari nálgun að finna
út og skoða hvað það er sem hentar
lífi fólks og hvernig því líður í um-
hverfinu. Ég nota mjög sjaldan hug-
takið að hanna í kringum það sem
ég geri, því nánast allt í kringum
okkur er hannað. Orðið hönnun er of
mikið notað að mínu mati í yfir-
borðskenndri merkingu, „þetta er
svona hönnun heyrist oft. Hönnun
er að hanna, það er ferli að skapa og
búa til, ekki hugtak yfir fagur-
fræði“.
Nú ætlar þú fljótlega að vera les-
endum Smartlands innan handar
með innanhússráðgjöf og leyfa þeim
að senda inn spurningar. Getur þú
sagt mér hver hugmyndin er á bak
við það?
„Áhugi og vilji til að allir hafi að-
gang að þeim möguleika að leita sér
smá aðstoðar þegar kemur að útliti
og yfirbragði heimilisins óháð fjár-
hag. Það er oft svo lítið sem þarf til
að aðstoða fólk og breyta miklu.
Bara önnur sýn, reynsla, engin bylt-
ing, hvatning, staðfesting á hug-
myndum annarra. Slíkt er ekki ein-
göngu fyrir þá sem hafa rýmri
fjárráð, heldur alla sem hafa áhuga
á heimilinu sínu.“
Fáránlegt að eyða of miklu í innréttingar
Halla Bára Gestsdóttir rit-
stýrði íslenskum hönn-
unarblöðum eins og Lifun
og Veggfóðri áður en hún
ákvað að læra innanhúss-
hönnun í Mílanó á Ítalíu.
Halla Bára segir að heimili
verði að vera persónuleg.
Ljósmynd/Gunnar Sverrisson
Persónulegt Halla Bára Gestsdóttir er innanhússhönnuður með meistarapróf. Hún segir að fólk þurfi að nota það sem það á.
Starfsmannafatnaðu
fyrir hótel og veitingahú
Höfðabakka 9,
110 Reykjavík
Sími 525 8210
eddaehf@eddaehf.is
www.eddaehf.is
Allt lín fyrir:
Hótelið • Gistiheimilið • Bændagistinguna • Airbnb
Veitingasalinn • Heilsulindina • Þvottahúsið • Sérverslunina
Rúmföt og handklæð
fyrir ferðaþjónustuna
Eigum allt fyrir:
• Þjóninn
• Kokkinn
• Gestamóttökuna
• Þernuna
• Vikapiltinn
• Hótelstjór
r
s
i
nandann 85
ÁRA