Morgunblaðið - 06.04.2017, Page 66

Morgunblaðið - 06.04.2017, Page 66
66 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. APRÍL 2017 Fennelsalatið drukknaði reyndar svolítið í bragðmiklum fiskinum og frekar ágengri sósunni, það mætti útfæra það betur, því hugmyndin er góð. Aðalréttir kosta á bilinu 2.950- 5.700 kr., auk humarsins sem kostar 7.200 heilar kr. Humar er vitanlega ekki ódýrt hráefni í innkaupum en þetta er samt frekar bratt fyrir stað sem gefur sig út fyrir að vera af- slappaður, þótt hann sé í betri kant- inum. Það þarf þó ekki að örvænta því margir aðrir réttir eru álitlegir. Bleikja með stökku roði var góð en gróft saltið ofan á fiskinum var of kröftugt, svo fyrir minn smekk var þetta of salt. Ostrusveppakrem var bragðgott en jarðartónarnir þar báru réttinn aðeins ofurliði. Fínt skorið mangóið og sykurbaunirnar fóru fyrir lítið og frískleg jógúrt- sósan var ekki nógu kröftug til að jafna þetta út. Lambið var góður réttur og það er gaman að fá eitthvað annað en fille. Tvenns konar lambakjöt var á disk- inum, innlærisvöðvi eldaður sous- vide auk skanka sem var virkilega góður. Fínlegir jarðskokkarnir áttu að vísu fullt í fangi með að ná í gegn- um svartan, allt að því brenndan bal- samic-gljáann, en hann var svo góð- ur að það skipti engu máli. Eftir aðalréttinn var ég ekki viss um að hafa pláss fyrir eftirrétt en þar sem ég veit fátt betra en góðan eftirrétt lét ég slag standa, sem bet- ur fer! Bragðarefur var syndsamlega góður ís úr brenndu smjöri, með súkkulaði og lakkrísmylsnu, borinn fram í stórri krús, framsetningin ein- föld og flott, við hverju býstu líka þegar þú pantar þér bragðaref? Ég verð þó að viðurkenna að ég fann aldrei bláberin sem er talað um á matseðlinum, en mér var bara alveg sama. Löngu orðinn saddur gat ég samt ekki hætt fyrr en ísinn var bú- inn. Stjarna kvöldsins var hins vegar ástarpungurinn. Nýsteiktur og stökkur að utan, léttur og við- kvæmur að innan og kardimommu- ilmurinn fyllti vitin. Þetta voru raun- ar tveir ástarpungar. Rifnir í tvennt lágu þeir á diskinum og drukku í sig fáránlega góðan jógúrtísinn, sem lá í sárinu og bráðnaði yfir þykka hvít- súkkulaði sósuna neðst á diskinum. Þessi réttur er nóg til að réttlæta til- vist Matwerks og ég vona að hann verði alltaf á matseðlinum. Kokkteilar og skálvænt Matwerk gefur sig líka út fyrir að bjóða upp á gott drykkjaúrval og fara kokkteilar þar fremstir í flokki. 8 kokkteilar eru á seðli, sem allir kosta 2.390 kr. Kokkteilmenning ís- lendinga er lítil, þrátt fyrir nokkrar tilraunir síðastliðin 20 ár til að breyta því. Yfirleitt eru bara einn eða tveir tískudrykkir sem komast að hjá landanum hverju sinni. Nokkrir aðilar hafa þó unnið ötullega í að auka hlut kokkteila undanfarin ár og eru kokkteilarnir á Matwerk liður í því. Þetta eru allt álitlegir kokkteilar, sem notast við frumlegt hráefni á borð við birkisýróp, reykt döðlumauk, te úr íslenskum jurtum, Omnom-súkkulaðibættan vodka og jafnvel rauðkálsfroðu! Aðspurður sagði þjónninn að hægt væri að út- Matseðilinn Matseðlinum er skipt upp í smá- rétti, aðalrétti og eftirrétti, auk þess sem eldhúsið býður upp á þrjá ólíka fjögurra rétta seðla á tilboði, en slík tilboð eru yfirleitt góð kaup og gefa skemmtilega mynd af matreiðslu staðarins. Þá er rétt að nefna hæfi- lega stóran hádegisseðil, en réttir þar kosta á bilinu 1.950-2.450 kr. Smáréttirnir eru nákvæmlega það. Litlir diskar, fallega framsettir. Þeir eru á verðbilinu 1.950-2.450 kr. Nautatartar er virkilega gott með trufflumajónesi og parmesan. Sums staðar hefur maður það á tilfinning- unni að kokkurinn viti ekkert betra á jörðinni en truffluolíu, svo hann not- aði hana alla, bara í réttinn þinn. Ekki á Matwerk. Hér var trufflu- bragðið fínlegt og í góðu jafnvægi við annað sem á disknum var. Létt súrs- aður perlulaukur skar í gegnum fit- una og svartrótin (sem er lítið notað en stórkostlegt hráefni) dansaði vel með kjötinu. Nauta-jerky var skemmtileg hugmynd, en það var of þurrt. Bragðgott var það en þegar kjötið er orðið það stökkt að það brotnar undir tönn veit ég ekki hvort maður getur lengur kallað það jerky. Heitreyktur lax með tartarsósu og gellum var skemmtilegur réttur. Túrmerikgulur og dillkryddaður fiskurinn var mjög góður og djúp- steikt gellan, sem maður sér ekki oft á veitingastöðum, var fyrirtak. búa óáfengar útgáfur af einhverjum þeirra. Þetta er til marks um þá vingjarn- legu og afslöppuðu þjónustu sem Matwerk vill bjóða upp á. Þar eru allir boðnir og búnir að hjálpa, spurningum er svarað eftir bestu getu og meira að segja nýi þjónninn, sem stóð sína fyrstu vakt, komst vel frá sínu. Í það heila upplifir maður að velgengni staðarins skipti starfs- fólkið raunverulegu máli, og lyk- ilatriði í því er að kúnnanum líði vel, það er skemmst frá því að segja að vel tókst upp með það. Boðið er upp á húsvín frá tveimur framleiðendum á 1.390 kr. glasið. Það er annars vegar ítalskur chianti eða pinot grigio, Villa Lucia frá Cast- ellani, hvort tveggja frekar léttir, frísklegir Ítalir og sæmileg húsvín. Hins vegar eru það Pionero-vínin frá Morandé, chardonnay og cabernet sauvignon. Þetta eru vín sem hæfa ágætlega bragðmiklum og ákveðnum mat eins og borinn er fram á Matwerk. Að öðru leyti eru frönsk vín atkvæðamest á vínseðl- inum. Léttvín hafa löngum verið dýr á seðlum íslenskra veitingahúsa. Mat- werk breytir því ekki, þó að vínin þar séu kannski ekkert dýrari en gengur og gerist. Það sem mér finnst skipta meira máli er að miðað við áhuga- verð efnistök í mat og kokkteilum er vínseðillinn merkilega lítið spenn- andi. Ekki misskilja mig, þar er al- veg ágæt vín að finna, eins og nýsjá- lenskan sauvignon blanc frá Spy Valley, en af hverju þarf að hafa tvö sancerre (þó að þau séu bæði fín) á seðli sem telur aðeins átta hvítvín? Þó eru þrjú spennandi, lífræn, frönsk vín á boðstólum og ágætt grand cru frá Saint Emilion auk Bru- nello frá Barone Ricasoli sem er mjög fínt, en það er pláss til framfara á vínseðli Matwerks svo að vínin sem þar eru í boði séu jafn áhugaverð og annað sem þar er boðið upp á. Það er aftur á móti boðið upp á þokkalegt úrval af bjór í flösku. Þar eru bjórarnir frá Borg brugghúsi fyrirferðarmestir. Það er ekki að ósekju því þar á bæ halda menn áfram að gera spennandi hluti og margir bjóra þeirra eru vel til þess fallnir að drekka með mat. Úrval er- lendra flöskubjóra er ekki eins spennandi, þar eru aðeins fimm á lista, þar af bæði Nastro Azzurro og Stella Artois, hvort tveggja ljós og einfaldur lager. Þá eru betri kaup í Víking á krana. Það er vert að minn- ast á léttbjórinn sem í boði er, en það er Franziskaner-hveitibjór. Vel frambærilegur léttbjór sem gengur alveg með mat. Niðurstaðan er ... Eftir góða máltíð finnst mér gott að fá góðan espresso. Það er merki- legt hvað veitingastöðum gengur al- mennt illa að bjóða upp á gott kaffi og það einskorðast ekki við Ísland. Kaffið á Matwerk var reyndar bragðgott, það verður að segjast, en það er hæpið að kalla það sem ég fékk espresso. Ég ætti auðvitað að vita að til að fá alvöru espresso þarf maður að fara á alvöru kaffihús, en ég ætla bara ekki að læra. Í það heila er kvöldstund á Mat- werk er mjög ánægjuleg. Starfsfólki tekst vel að gera stundina þar af- slappaða og skemmtilega og mat- urinn er fallegur og skemmtilegur. Þar er verið að vinna með skemmti- legt hráefni og það er vel gert. Það verður gaman að fylgjast með Stef- áni og félögum þróa sig áfram í fram- tíðinni. matur@mbl.is Greifalegt Svartar flísar og voldug ljósakróna gefa hringborðinu skemmtilegan blæ. Notalegt Viður í stól- um og skreytingum ásamt brúnum leð- ursófa eftir endilöng- um vegg og brúnum gólfflísum gefur staðn- um hlýlegt yfirbragð. Rauðagerði 25 · 108 Reykjavík · Sími 440 1800 · www.kaelitaekni.is Okkar þekking nýtist þér Varmadælur Hagkvæmur kostur til upphitunar Verð frá aðeins kr. 180.000 m.vsk Midea MOB12 Max 4,92 kW 2,19 kW við -7° úti og 20° inni hita (COP 2,44) f. íbúð ca 90m2.. • Kyndir húsið á veturna og kælir á sumrin • Fyrir norðlægar slóðir • Fjarstýring fylgir • Hægt að fá WiFi sendi svo hægt sé að stjórna dælunni úr GSM síma
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.