Morgunblaðið - 06.04.2017, Qupperneq 74
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
Á björtum sumardegi er fátt sem
jafnast á við að láta fara vel um sig
úti á fallegum sólpalli. Börnin leika
sér í góða veðrinu, makinn stendur
vaktina við grillið og best af öllu ef
má smeygja sér ofan í heitan pott og
finna vöðvahnútana hverfa úr öxl-
unum á meðan hlustað er á fugla-
sönginn.
Fáir eru jafn fróðir um pallasmíði
og Renzo Gústaf Passaro en hann er
verslunarstjóri timbursölu BYKO.
Hann segir að sala á efni til palla-
gerðar hafi minnkað við hrunið, en
hafi tekið að glæðast um leið og hin
svokallaða leiðrétting kom. „Þá virð-
ist fólk hafa fengið ákveðna vissu um
framhaldið og að óhætt væri að setja
pening í að búa til sælureit fyrir fjöl-
skylduna í garðinum.“
Asískur eðalviður
Pallarnir virðast fara stækkandi
eftir því sem hagur þjóðarinnar
vænkast og segir Renzo að þessa
þróun hafi mátt sjá á allra síðustu
árum. Með betri efnahag leyfir fólk
sér líka veglegri palla og dýrari efni.
„Við sjáum hér í timbursölunni að
fleiri velja að fara aðra leið en í
klassíska grænleita furupallinn.
Bæði er fólk að velja breiðari fjalir
til að fá annað útlit, en líka að smíða
sér palla úr dýrara timbri s.s. lerki,
sem er í milliverðflokki, eða bang-
kirai sem getur kostað margfalt á við
furuna.“
Fyrir þá sem ekki þekkja fram-
andi viðartegundir þá vex bangkirai
í Asíu og eru fjalirnar koníaksbrúnar
á lit. „Þetta er endingargóður harð-
viður og er seldur rásaður til að gefa
aukna hálkuvörn. Metrinn af bang-
kirai kostar 1.395 kr. á meðan metri
af furu kostar 325 kr. og er því verð-
munurinn töluverður.“
Ennþá dýrara er síðan að nota
plastefni á pallinn, en plastið hefur
þann kost að vera hér um bil við-
haldsfrítt og mjög slitsterkt. „Plast-
ið verður oft fyrir valinu á þeim stöð-
um þar sem mikill umgangur er á
pallinum, s.s. við hótel og veit-
ingastaði og hægt að velja um þrjá
liti: brúnan, ljósgráan og dökkgrá-
an.“
Plastfjalirnar hafa timburáferð
nota hann, og reiknar líka efn-
iskostnaðinn út gróflega. „Þeir sem
hyggja á pallasmíði ættu líka að
skoða Sumarhandbók BYKO á
heimasíðu okkar en þar er á ferðinni
rit sneisafullt af gagnlegum upplýs-
ingum um pallasmíðina og ýmislegt
fleira tengt garðinum og heimilinu.“
Renzo segir vorið góðan tíma til
að smíða pallinn til að geta haft afnot
af honum allt sumarið. Þeir sem eru
handlagnir og duglegir geta smíðað
eigin pall en Renzo varar við að mis-
tökin geti reynst dýrkeypt og synd
að kosta til vinnu og timbri í pall sem
er byrjaður að síga á hliðina eða
gliðna í sundur næsta sumar. „Sum-
arhandbókin getur hjálpað, og líka
hægt að komast langt á YouTube-
myndböndum. Lykillinn að fallegum
palli, hvort sem maður smíðar hann
sjálfur eða ekki, er að vinna heima-
vinnuna sína.“
Gott viðhald borgar sig
Hluti af heimavinnunni er að vita
hvaða viðhald pallurinn þarf. Segir
Renzo að þumalputtareglan sé að
bera á viðinn á eins til tveggja ára
fresti. „Ef lengri tími er látinn líða á
milli aukast líkurnar á að þurfi að
fara að pússa pallinn upp og hafa
mikið fyrir því að gera hann fallegan
á ný.“
Viðurinn má ekki vera rakur þeg-
ar borið er á og helst þarf að velja
tíma þar sem von er á þurru veðri
næstu dagana á eftir. „Að bera á
pallinn er fljótgert, og ef þessu við-
haldi er sinnt reglulega tekur við-
urinn minna í sig í hvert sinn svo að
enga stund tekur að pensla.“
Plastið hentugt þar sem umgangur er mikill
Bangkirai er skemmtilegur
viður á pallinn en kostar líka
sitt. Pallur úr plastfjölum
hefur stílhreint yfirbragð og
þarf næstum ekkert viðhald.
öðrum megin en eru rásaðar hinum
megin og má því breyta áferð og út-
liti pallsins með því að velja hvor
hliðin snýr upp. „Plastið er líka fest
niður með smellum og því sjást eng-
ar festingar, sem gefur stílhreint yf-
irbragð.“
Friður og skjól
Þegar pallurinn er reistur þarf að
smíða veggi, ýmist til að skapa skjól
frá vindum, skapa næði, eða einfald-
lega til að búa til fallega umgjörð.
Þarf að vanda til verka við hönn-
unina og geta viðskiptavinir BYKO
leitað til landslagsarkitekts sem ger-
ir tillögur að palli með tilliti til
ríkjandi vindátta og birtuskilyrða.
„Ef á t.d. að gera langan skjólvegg
er ágætt að nota trappaða hönnun til
að gefa aukinn stöðugleika. Það ger-
ir vegginn vindstífan svo hann lætur
ekki undan, jafnvel í verstu veðr-
um.“
Renzo segir skjólveggina þurfa að
hleypa að nægilegri sól og ekki
skemma fallegar sjónlínur frá heim-
ilinu. „Það er ekki gaman að hafa
fyrir því að smíða pall og uppgötva
svo að minni sólar nýtur í sælureit-
num.“
Gagnleg reiknivél
Gott fyrsta skref er, að sögn
Renzo, að fara inn á heimasíðu
BYKO og finna þar sólpall-
areiknivél. Reiknivélin hjálpar m.a.
til að áætla hversu stór pallurinn
þarf að vera, miðað við hvernig á að
Flottheit „Metrinn af bangkirai kostar 1.395 kr. á meðan metri af furu kostar 325 kr.,“ segir Renzo Gústaf Passaro.
Gagn Skjólveggir verða að hleypa nægilegri birtu í garðinn og þola rokið.
Tíska Æ fleiri velja að klæða sólpall heimilisins með breiðari fjölum.
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. APRÍL 2017
VORVERKIN
Garðhús eykur
geymsluplássið
Ágætt er að leita ráða og inn-
blásturs víða og kvikna þá oft
hugmyndir að sniðugum
lausnum. Renzo nefnir sem
dæmi að með því að smíða yf-
irbyggt innskot fyrir grillið
megi lengja grilltímabilið og
jafnvel grilla allt árið um
kring án nokkurra vand-
kvæða. Smíðuð geymslubox
geta líka nýst vel sem hirsla
undir sessur og garðleikföng
svo ekki þurfi að fylla bílskúr-
inn og háaloftið. „Garðhúsin
eru valkostur sem fólk ætti að
skoða, sérstaklega ef vantar
aukageymslu. Með garðhúsi
má bæta nokkrum ódýrum
fermetrum við heimilið og
nota til að geyma t.d. reiðhjól
og garðáhöld.“
Sími 555 2992 og 698 7999
• Við hárlosi
• Mýkir liðina
• Betri næringar-
upptaka
Náttúruolía sem hundar elska
Við höfum notað Dog Nikita hundaolíu fyrir hundana
okkar í 3 ár og við erum ekkert á því að hætta.
Feldurinn á þeim er mjúkur, fallegur og hárlosið á
þeim gengur fyrr yfir. Þófarnir eru mjúkir og sléttir
en ekki harðir og grófir eins og þeir verða oft.Við
mælum með Dog Nikita hundaolíu.
Páll Ingi Haraldsson
EldurÍs hundar
Við mælum með Dog NIKITA hundaolíu
NIKITA hundaolía - Selaolía fyrir hunda
• Fyrirbyggir exem
• Betri og sterkari
fætur