Morgunblaðið - 06.04.2017, Qupperneq 78
78
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. APRÍL 2017
Anna Sigríður Einarsdóttir
annaei@mbl.is
„Það er sniðugt að fara að huga að
trjáplöntum og klippingu á þeim.
Þetta er svo góður tími til að sjá
hvernig runnar eru vaxnir,“ segir Guð-
ríður Helgadóttir, sem landsmenn
kannast væntanlega flestir við sem
Gurrí úr sjónvarpsþáttunum Í garð-
inum heima.
Ekkert sé þó að því að bíða með
klippingu þar til plönturnar eru laufg-
aðar. „En kosturinn við að gera þetta
núna er að þá sér maður svo vel
hvernig greinasetningin er á plönt-
unum.“ Gurrí nefnir sem dæmi að
liggi einhverjar greinar í kross sé um
að gera að fjarlægja þær greinar sem
nuddist saman. „Eins ef það er kal í
runnunum, þá er um að gera að
klippa það í burtu.“ Þessi tími vors-
ins, þegar greinarnar eru enn berar,
er líka að hennar sögn, góður tími til
að móta vaxtalagið plantnanna, til að
mynda til að klippa limgerði í fallega
A-lögun.
Gömlu greinarnar klipptar á
blómstrandi runnum
Ekki á þó að klippa allar trjá-
plöntur með sama hætti. „Sumar
plöntur klippir maður þannig að nýj-
ustu greinarnar eru klipptar utan af,“
segir Gurrí og kveður slíka klippingu
henta limgerðispöntum á borð við víði
og mispil. „Síðan eru það plönturnar
sem blómstra á greinarnar sem uxu
fram í fyrra. Þær klippir maður ekki
með sama hætti.“
Blómstrandi runna á borð við snæ-
kórónu, sírenu og ýmsar kvistplöntur
á borð við Japanskvist og birkikvist
eigi að klippa með því að fara inn í
runnana og grisja elstu greinarnar
frá. „Því það eru yfirleitt 1-3 ára
gamlar greinar sem blómstra mest.
Þess vegna tekur maður gömlu gráu
greinarnar í burtu og opnar runnann
um leið betur. Þá kemst birtan lengra
ofan í plöntuna, sem laufgast betur
og við fáum mjög fína blómgun.“
Sé klippt ofan af slíkum runnum,
sem vissulega þurfi að gera einstöku
sinnum, enda geti þær orðið stórar og
miklar um sig, komi engin blóm á
þann runna fyrr en að ári. Gurrí nefn-
ir hansrósina sem dæmi. „Þær eru
einmitt afskaplega fallegar í blóma
og blómstra á fyrra árs sprota, en
geta orðið afskaplega stórar um sig,
svo ekki sé nú minnst á þyrnana.“
Alltaf hætta á
næturfrosti á Íslandi
Ekki þarf að láta staðar numið eft-
ir runnaklippingu hvað vorverkin
varðar, því það er í góðu lagi að hefj-
ast handa við að þrífa beðin. „Núna
er til dæmis frábær tími til að hreinsa
beð í kringum limgerði og jafnvel að
fara að huga að illgresi,“ segir Gurrí.
Skriðsóley og ýmislegt annað illgresi
hefur enda notað sér hversu milt
veðrið hefur verið til að fara af stað.
Gurrí segir einnig henta vel að
sinna kantskurði núna. „Því maður
sér svo vel hvernig kanturinn liggur.
Það er líka auðvelt að ná torfinu upp
ef maður þarf að taka svolítið af því.“
Sömuleiðis má laufhreinsa beðin.
Hún segir þó ekki borga sig að vera
of duglegur í hreinsunarstarfinu,
heldur leyfa laufinu að liggja lengur í
kringum viðkvæmar plöntur. „Það
þarf alltaf að óttast næturfrost á Ís-
landi, það hefur reynslan kennt
okkur. Þannig að ef við erum með
mjög viðkvæmar uppáhaldstegundir,
eins og til dæmis viðkvæmar austur-
lenskar bóndarósir, borgar sig að
leyfa blöðum að liggja ofan á þeim að-
eins lengur fram eftir vorinu og jafn-
vel alveg fram í maí.“ Það sama gildi
um sígrænar blaðfallegar plöntur,
sem geti verið viðkvæmar fyrir næt-
urfrosti.
Ekki borgi sig heldur að taka strax
hlífar af þeim plöntum sem hafi feng-
ið vetrarskýlingu, t.d. lyngrósum eða
rósum. „Ef fólk getur ekki beðið eftir
að taka hlífina af er ekki úr vegi að
eiga góða kippu af akrýldúk og vera
viðbúinn að stökkva út og breiða yfir
þessar elskur ef það á að kólna veru-
lega eða ef von er á næturfrosti,“ seg-
ir hún.
Spurð hvort hægt sé að verja
töfratré eða kirsuberjatré í blóma
gegn slíku kuldakasti segir Gurrí það
líklega fara eftir stærð trésins. „Ég
myndi þó ekki hika við að henda
akrýldúk yfir uppáhalds kirsuberja-
tréð mitt og reyna að binda hann ut-
an um stofninn ef að ég sæi að það
væri allt í blóma. Það myndi vonandi
virka en ég gæti þó ekki treyst því
100%.“
Garðúðarinn getur verið góð
vörn gegn næturfrosti
Erfiðara er að verja heilan garð
sem kominn er af stað. „Maður veit
nefnilega aldrei í garðyrkjunni. Við
höfum við svo oft upplifað ofsalega
góð vor og svo kemur einhver dagur í
maí þegar skyndilega kemur mikill
kuldi og plönturnar fara illa. Það er
lítið hægt að gerast til að verjast slíku
og stundum þarf maður bara að bíta á
jaxlinn.“
Besta ráðið sé að fylgjast með
veðurfarinu og vera með yf-
irbreiðslur eða fötur til að geta varið
uppáhaldsplönturnar. „Ein málning-
arfata sem er sett yfir uppáhalds-
bóndarósina yfir frostnóttu getur
þannig gert gæfumuninn.
Sá sem vill reyna að verja garðinn í
heild sinni á þó þann möguleika
morguninn eftir næturfrost að
stökkva út áður en sólin kemur upp
og setja garðúðarann af stað og láta
hann ganga þar til sólin er komin upp
og ekki er lengur frost. „Þetta hafa
menn stundum gert í garðyrkjunni ef
það gerir næturfrost. Þá erum við að
láta plönturnar þiðna hægt,“ segir
Gurrí. Myndist hins vegar klaki á
plöntunum þarf að láta úðarann
ganga allt þar til klakinn er alveg
horfinn og má með því móti draga úr
líkum á skemmdum, því annars
springa frumurnar í plöntuvefjunum.
Tími vorlaukanna að koma
Fyrstu garðverkin þurfa ekki öll
að vinnast úti í garði, því nú nálgast
einnig sá tími að hefja megi ýmiss
konar forræktun fyrir garðinn. „Það
er til dæmis gaman að fá sér vor-
lauka sem eru einmitt núna komnir í
margar verslanir,“ segir Gurrí og
nefnir dalíulauka sem dæmi um
plöntur sem gaman er að rækta sjálf-
ur. „Það má fara að setja þessa lauka
í pott fljótlega,“ segir hún og útskýrir
að dagarnir í kringum páska séu
heppilegur tími til að hefja for-
ræktun á vorlaukunum. „Þeir eru
aldir upp inni, helst í gróðurhúsi, en
annars á björtum stað inni þar sem
ekki er of hátt hitastig. Þegar hlýnar
í veðri upp úr miðjum maí er hægt að
fara að herða þessar plöntur ef veður
leyfir með því að setja þær út þegar
hlýtt er og taka þær svo inn yfir nótt-
ina,“ segir Gurrí og útskýrir að þann-
ig séu þær smám saman vandar við
lægra hitastig. „Þetta eru plönturnar
sem verða svo stórar og flottar og
blómstra ótrúlegum blómum yfir
sumarið.“
Sáðbakkræktun á kál- og salatteg-
undum má einnig hefja fljótlega.
„Það er fínt að sá fyrir þeim í apríl og
nota síðan síðustu tvær vikurnar í
apríl og fyrstu vikurnar maí til að ala
plönturnar upp og herða þær,“ segir
hún. „Það er um að gera að skoða
fræúrvalið og fara að koma sér upp
slíku.“
Þeir sem búa hins vegar svo vel að
vera með vermireit í garðinum hjá
sér geta síðan farið að sá fyrir gulrót-
um strax í byrjun maí. Þá geta þeir
sömuleiðis farið að setja matjurtir í
vermireitinn, þar sem hægt er að út-
búa lítið gróðurhús á reitnum með
því að breiða glært plast þar ofan á.
„Það munar alveg helling að græða
þarna fjórar vikur sem plönturnar
eru í birtunni. Fyrir vikið eru þær að
gefa miklu fyrr af sér og maður getur
þá fengið salat um mánaðamótin
maí-júní í stað þess að þurfa að bíða
næstu mánaðamóta.“
Þó að það sé alltaf gaman að
velja skrautlegt safn sum-
arblóma í garðyrkjustöðvum í
byrjun sumars er líka hægt að
nota sáðbakka til að rækta eig-
in sumarblóm. Of seint er að
sá fyrir stjúpum, silfurkambi
eða ljónsmunna þetta árið,
enda þarf að sá fyrir þeim í lok
janúar eða í byrjun febrúar.
Þeir sem vilja sá fyrir eigin
sumarblómum geta hins vegar
vel sáð fyrir morgunfrúm,
flauelsblómum, brúðarauga eða
skrautnál, sem bíða má með
fram í apríl. „Síðan getur verið
gaman að setja skjaldfléttu í
potta,“ segir Gurrí. „Það er
gaman að leyfa krökkum að
taka þátt í þeirri ræktun, því
að fræið er svo stórt og fljótt
að spíra að það er spennandi
fyrir litla krakka að fylgjast
með því þegar blómið kemur
upp.“
Garðeigendur kannast væntanlega margir við það að ekki hafi öll blóm
lagst í vetrardvala í þessu milda veðri. Stjúpur og bellissar hafi jafnvel
haldið áfram að blómstra og sýni sig bara býsna bratta eftir veturinn.
Gurrí segir slíkar plöntur líklegar til að halda sínu striki næsta sumar,
svo framarlega sem ekki komi brunagaddur næstu vikur. „Stjúpur eru
tvíærar,“ segir hún. „Síðan er að öllum líkindum eitthvað af þessu sáð-
plöntur frá því í fyrra sem hafa notið góðs af svona mildum vetri. Stjúp-
ur eru fljótar að blómstra og eru að blómstra allt sumarið, þannig að
þær fara að mynda fræ um leið og fyrstu blómin þroskast.“
Hún segir slíkar sáðplöntur oft verða mjög skemmtilegar útlits.
„Maður veit aldrei hverjir foreldrarnir eru, þannig að það geta komið
mjög skræpóttir og skemmtilegir litir.“ Standi plönturnar hins vegar
mjög þétt þegar sumarið nálgast sé um að gera að vera ófeimin við að
grisja og flytja þær til. „Ef þær verða of margar á litlu plássi verður
bæði plantan pínulítil og svo verða blómin líka lítil. Með því að grisja að-
eins og flytja þær til fær maður hins vegar bústnari plöntur.“
Trjáklippingar efstar á vorverkalistanum
Eftir mildan vetur er gróður
farinn að gægjast upp úr
jörðinni, krókusar og vetrar-
gosar blómstra og brum
sést víða á trjám. Því skyldi
engan undra að garðeig-
endur sé marga farið að
klæja í misgræna fingur að
taka til hendinni í garðinum.
En á hverju á að byrja?
Guðríður Helgadóttir gaf
Önnu Sigríði Einarsdóttur
góð ráð varðandi vorverkin í
garðinum.
Morgunblaðið/Ómar
Tímabært Guðríður Helgadóttir garðyrkjufræðingur segir sniðugt að fara að huga að trjáklippingum þessa dagana.
Form Gljámispill er ein þeirra runnategunda sem klippa má í fallega A-lögun.Prýði Sýrena er ein þeirra tráteg-
unda þar sem fjarlægja á eldri
greinar svo þær yngri fái meiri
birtu og blómstri meira.
Að sá
fyrir eigin
sumar-
blómum
Blómin sem ekki
lögðust í vetrardvala
VÍKURVAGNAR EHF. STYRKUR, ÞJÓNUSTA OG ÁREIÐANLEIKI
HJÓLAFESTINGAR
Víkurvagnar ehf. - Hyrjarhöfði 8. - 110 Reykjavík -
Sími 577-1090 - www.vikurvagnar.is - sala@vikurvagnar.is
1-3 HJÓL Á FESTINGU
VORVERKIN