Morgunblaðið - 06.04.2017, Síða 93
DÆGRADVÖL 93
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. APRÍL 2017
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þú átt gott samtal við einhvern sem
þér þykir mjög vænt um. Sá hinn sami tjáir
þér aðdáun sína á þér. Vertu ekkert að velta
þér upp úr þessu heldur njóttu þess bara í
einlægni.
20. apríl - 20. maí
Naut Þú býrð yfir munúð og dirfsku,
ástríðum og gáska og samlagar í persónu
þinni án þess að samskeytin sjáist.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Himintunglin draga fram í dags-
ljósið hið vísindalega eðli þitt. Njóttu daðurs
og ástarsambanda í dag, það veit á gott!
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þú hefur góðan byr í seglin og átt að
geta notfært þér hann. Sjónarmiðin þín skila
sér loksins í framkvæmd. Gættu þess að
missa ekki sjónar á þeim þótt verkefnum
ljúki.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Það er margt sem freistar þessa dagana
en þú verður að halda að þér höndum varð-
andi fjárútlátin. Hvort sem hann örvar, róar
eða skemmtir hefur vinur þinn aðdráttarafl.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Gættu þess að leyndarmál þín liggi
ekki á borðum þeirra sem kunna ekki með
þau að fara. Kvöldinu er best varið heima við.
23. sept. - 22. okt.
Vog Það er erfitt að velja sér viðmælendur
þegar um flókin og viðkvæm mál er að ræða.
Samband þitt við samstarfsfólk og við-
skiptavini verður með besta móti.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þú ættir að þiggja gjafir og
greiða af öðrum í dag. Hvernig væri að búa til
og hafa grænmetissúpu í kvöldmatinn, í stað
hinnar hefðbundnu óhollustu?
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Það vantar ekki mikið upp á að
þér takist að klára það verkefni sem þér hef-
ur verið falið. Vandaðu þig, annars fer allt í
handaskolum. Skoðaðu hugsjónir þínar, við-
brögð annarra koma þér að gagni.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Reynstu vini þínum vel þegar hann
leitar til þín með sín trúnaðarmál. Stundum
gerum við okkur ekki grein fyrir ótta okkar
fyrr en hann er horfinn.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Vinir þínir og maki eru þér mikil-
vægari í dag en alla jafna. Ertu viss um að þú
þekkir tilfinningar þínar? Bráðum rennur eitt-
hvað nýtt upp fyrir þér.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Frestaðu öllum stórákvörðunum til
morguns, því í dag er ekki rétti tíminn til
samninga. Mundu að fljótfærni er slæm og
að dramb er falli næst.
Það hafa verið umhleypingarundanfarið svo að ósjálfrátt
teygði ég mig eftir „Veðurfræði
Eyfellings“, bók Þórðar Tóm-
assonar frá Vallnatúni sem kom út
fyrir þrem árum – fróðleg lesning
og skemmtileg. Þar rifjar hann upp
vísu Jónasar:
Veðrið er hvorki vont né gott,
varla kalt og ekki heitt,
það er hvorki þurrt né vott,
það er svo sem ekki neitt.
Þórður segir frá bóndanum í
Efri-Brennu undir Eyjafjöllum. Í
góðu veðri var orðtak hans: „Þetta
er veður sem guð gefur.“ Þegar
veðrið færðist í verri ham kvað við
annan tón: „Þetta er illt veður af
andskotanum útilátið.“
Þórður man gamalt fólk sem tal-
aði um þorra og góu sem lifandi
verur eins og Arnlaug Tómasdóttir
í Vallnatúni gerði. „Nú hristir hún
Góa skinnpilsið sitt,“ sagði hún þeg-
ar góa var illskiptin og hreytti élj-
um yfir byggðina. Svipað fer skáld-
um okkar. Þau persónugera
árstíðirnar eins og Kristján Fjalla-
skáld:
Þögull þorri heyrir
þetta harmakvein,
en gefur grið ei nein,
glíkur hörðum stein,
engri skepnu eirir,
alla fjær og nær
kuldaklónum slær
og kalt við hlær.
Hér er dæmi um „líking hinnar
lifandi veru“ í vísu eftir Erlend
Árnason frá Fitjamýri:
Grátbólgin kemur góa í framan,
geigvænan spennir hvoftinn grá,
mönnum sýnist það síður gaman,
sendir óhæfu jörðu á,
eldingar, skruggur, ofsabyl,
enginn veit, hvað skal gjöra til.
Og Þórður heldur áfram: „Enn
lifir andvarp bóndans, sem missti
konuna sína á einmánuði og óraði
fyrir því í inngöngu þorrans:
Lengi þorri leiðist mér,
líka góan, eftir fer,
einmánuður yngstur er,
hann mun verða þyngstur þér“.
Veðravættir eða goðverur heið-
ins siðar lifðu góðu lífi fram á síð-
ustu öld, – eins og segir í vísu sem
móðir Þórðar kenndi honum
Grímur élja úti er,
okkur selja kornél fer,
þrýtur elja, þykir mér,
þegar hann belja gerir hér.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Grátbólgin góa, glugga-
tættur og gluggadekk
Í klípu
HERBERT SAMÞYKKTI, GEGN RÁÐUM
LÖGFRÆÐINGS SÍNS, AÐ GANGAST
UNDIR GREINDARMÆLINGU.
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„ÉG VEIT EKKI HVORT ÞEIR SÖGÐU ÞÉR
ÞAÐ FYRIR UTAN, EN ÉG RÆÐ ALDREI
NEINN SEM ER HÆRRI EN 160 CM.“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að sannfæra hana
um að uppskriftin
hafi klikkað, ekki
eldamennskan hennar.
Í GÆR SÁ ÉG NOKKRA KETTI
Í NÝJA RUSLAGÁMNUM FYRIR
AFTAN FISKBÚÐ ALLA
BÚÐIN ER Í
AÐALSTRÆTI,
VILTU FARA?
LYKTIN MYNDI GERA
VEIÐIHÁRIN ÞÍN KRULLUÐ
AÐ SJÁLFSÖGÐU!
ÞÚNK!
ÉG ER AÐ SÆKJA
SON MINN SEM
VAR AÐ LEIKA SÉR!
FYRIRGEFÐU!
ÉG VISSI EKKI AÐ
ÞÚ VÆRIR PABBI
AMLÓÐA!
RÓMVERSKUR RIDDARI
RÉÐST INN Í RÓMARBORG,
RÆNDI ÞAR OG RUPLAÐI
RABBARBÖRUM OG RÓFUM.
HVAÐ ERU MÖRG R Í ÞVÍ?
LÖGREGLAN
Víkverji hefur aldrei lent í slags-málum, svo vitað sé. Hann hefur
alltént aldrei fengið „einn á lúð-
urinn“ eða fengið að kynnast „þess-
um og bróður hans“ á eigin skinni,
þrátt fyrir að hafa verið auðvelt skot-
mark í grunnskóla. Víkverji er að
auki með sterkbyggða fótleggi sem
forðuðu honum oftast frá vandræð-
um. Hann hefur því, eins og gefur að
skilja, aldrei nokkurn tímann á æv-
inni fengið glóðarauga – fyrr en nú.
x x x
Það var því ekki Baddi beljaki ígrunnskóla eða Elli eineltir sem
gaf Víkverja hans fyrsta glóðarauga.
Nei, það var Víkverji yngri, eins árs
gamall snáði, sem reyndar er for-
vitnilega sterkur miðað við aldur.
Frumburðurinn hafði sumsé komist
yfir farsíma Frú Víkverja og var að
leika sér með hann. Þegar Víkverji
hugðist grípa inn í ákvað erfinginn
að grýta símanum af öllu afli í ein-
hverja átt. Það að opið auga Víkverja
varð fyrir honum var líklegast bara
mjög vond tilviljun, sem og sú stað-
reynd að einmitt þá stundina var
Víkverji ekki með gleraugun sín á
sér.
x x x
Víkverji gæti staðið hér og sagtykkur, lesendur góðir, að hann
hefði tekið þessu af karlmennsku.
Víkverji væri þá að ljúga að ykkur.
Hann fór að hágráta af sársauka fyr-
ir framan drenginn, sem þagnaði við
herlegheitin og starði forviða á föður
sinn halda um augað. Svo fór sá
stutti bara að skríkja af gleði, líkt og
ekkert hefði í skorist. Það var þó gott
að a.m.k. annar Víkverjafeðga gat
hlegið að þessu furðulega atviki.
x x x
Víkverji hefur nú þegar fyrirgefiðsyni sínum glóðaraugað. Honum
líður að vissu leyti eins og hann hafi
nú loksins gengið í gegnum ákveðna
manndómsvígslu. Miðað við það hvað
augað og næsta nágrenni þess er
aumt ætlar Víkverji þó ekki að flýta
sér að næsta glóðarauga ævi sinnar.
Raunar vonast Víkverji helst eftir
því að aldrei aftur á ævinni verði
grýtt í hann síma. Einu sinni var ær-
ið nóg. vikverji@mbl.is
Víkverji
En Drottinn er hinn sanni Guð, hann
er lifandi Guð og eilífur konungur.
Jörðin skelfur fyrir heift hans og þjóð-
irnar standast ekki reiði hans.
(Jer. 10:10)
LLSBAKARÍ
Háholti 13-15 Mosfellsbæ | Háaleitisbraut 58-60 Reykjavík
s. 566 6145 | mosfellsbakari.is
MOSFE
Ert þú búin að prófa
súrdeigsbrauðin okkar?
Renndu við í Mosfellsbakarí og fáðu þér hollara brauð.