Morgunblaðið - 13.01.2018, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. JANÚAR 2018
Hólmfríður Bjarnadóttir, eða Hófý eins
og við flest þekkjum hana, verður á
skrifstofu Bændaferða 15. - 19.
janúar milli kl. 11:00 - 16:00.
Kíktu við í kaffi og fáðu upplýsingar
um ferðir ársins frá einum vinsælasta
fararstjóra Bændaferða.
Hófý, fararstjóri Bændaferða
verður á skrifstofunni 15. - 19. janúar
Bókaðu núna á baendaferdir.is
Sími 570 2790 | bokun@baendaferdir.is | Síðumúla 2, 108 RVK sp
ör
eh
f.
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Borgarráð hefur samþykkt sam-
komulag vegna fyrirhugaðrar upp-
byggingar á lóðinni Hallarmúla 2.
Tölvutek er nú með verslun í húsinu.
Það er sunnan við Hilton Reykjavík
Nordica á Suðurlandsbraut 2.
Fram kemur í samþykkt borgar-
ráðs að fasteignin í Hallarmúla 2
hafi verið byggð 1971. Lóðin sé tæp-
lega 3.100 fermetrar.
Þrír fjárfestar í félaginu
Borgin gerir umrætt samkomulag
við félagið HM2 ehf. Það er til heim-
ilis í Borgartúni 24. Samkvæmt
Creditinfo eiga þrír fjárfestar jafnan
hlut í félaginu. Þeir heita Stefán Már
Stefánsson, Ellert Aðalsteinsson og
Elmar Freyr Jensen.
Fram kemur í samkomulagi sem
er undirritað af þeim þremur að
lóðarhafar eru að láta vinna tillögu
að breyttu deiliskipulagi lóðarinnar
Hallarmúla 2. Stærð lóðar, aukið
byggingarmagn og breytt nýting
húsa sé nánar skilgreint í fyrirliggj-
andi hugmynd að deiliskipulagi. Hún
fylgir ekki með þessari samþykkt.
Húsið verði hækkað
Hins vegar kom fram í umsögn
lóðarhafa í fyrrasumar að tillagan
felist í að hækka húsið á lóð nr. 2 við
Hallarmúla, auka byggingarmagn
og stækka byggingarreit til sam-
ræmis við nærliggjandi byggð.
Bendir það til að byggja eigi há-
hýsi en til samanburðar eru Suður-
landsbraut 2 og 4 átta til níu hæðir.
Hrólfur Jónsson, skrifstofustjóri á
skrifstofu eigna- og atvinnuþróunar
borgarinnar, segir eiga eftir að
vinna deiliskipulagið frekar. Þá komi
endanlegar hæðir og byggingar-
magn fram. Samkomulagið sé með
fyrirvara um endanlegt deiliskipu-
lag. Á þessu stigi hafi ekki verið
lagðar fram opinberar teikningar.
Vilja hótel í Hallarmúla
Fjárfestar gera
samkomulag við
borgaryfirvöld
Morgunblaðið/Kristinn Magnúss
Hallarmúli 2 Hugmyndir eru um að
byggja hærri byggingu á lóðinni.
Sigurður Bogi Sævarsson
Jóhann Ólafsson
Framleiðsla í Hellisheiðarvirkjun
ætti að komast í samt lag í dag en
tvær af sjö vélum Hellisheiðarvirkj-
unar sem framleiða rafmagn og
varmastöð fyrir heitt vatn urðu
óvirkar í eldsvoða í orkuverinu sem
kom upp á ellefta tímanum í gær-
morgun. Eldurinn var í loftræstibún-
aði virkjunarinnar og þaki miðhluta
stöðvarhússins. Tjón á búnaði er
óverulegt og engan sakaði.
Allt tiltækt lið
Mikill viðbúnaður var hafður
vegna eldsvoðans og sendu Bruna-
varnir Árnessýslu og Slökkvilið höf-
uðborgarsvæðisins allt tiltækt lið sitt
á staðinn. Aðgerðum á vettvangi lauk
síðdegis, en nokkir slökkviliðsmenn
áttu til öryggis að hafa varðstöðu á
vettvangi í nótt ef eldur blossaði upp
að nýju
„Við settum allt í gang þegar til-
kynning barst því eldsvoði í virkjun
getur verið erfiður viðfangs; bygg-
ingar risastórar og rýmin þar flókin.
Hér hafa sennilega verið um 80
slökkviliðsmenn þegar mest var og
svo lögregla og aðrir. Það nálgast að
hér hafi verið um 100 manns á vett-
vangi meðan við vorum að ná tökum
á eldinum,“ segir Haukur Grönli,
varaslökkviliðsstjóri Brunavarna Ár-
nessýslu sem var á vettvangi og
stýrði aðgerðum.
Aðgerðirnar í gær segir Haukur
að hafi í alla staði gengið vel, enda
æfi slökkviliðið og tæknimenn í
Hellisheiðarvirkjun viðbrögð við að-
stæðum, líkum þeim sem komu upp í
gær, mjög reglulega. Gildi þeirrar
þjálfunar hafi sannað sig rækilega í
gær.
Fjórðungur af
rafmagnsframleiðslu fór út
Uppsett afl Hellisheiðarvirkjunar
er 280 metavött. Eftir eldsvoðann í
gær fóru ein háþrýstivél af sex og svo
lágþrýstivélin út. Samanlögð fram-
leiðslugeta þeirra er um 71MW eða
um fjórðungur uppsettu afli virkjun-
arinnar sem er um 280 MW.
Í gær var svo mjög horft til þess að
gangsetja mætti sem fyrst varma-
stöð virkjunarinnar, en hún framleið-
ir heitt vatn fyrir hitaveituna á höf-
uðborgarsvæðinu. Þar sem útlit sé
fyrir kólnandi veður á næstu dögum
segir Eiríkur Hjálmarsson, talsmað-
ur Orku náttúrunnar sem á og rekur
Hellisheiðarvirkjun, fulla þörf fyrir
þá framleiðslu. Úr virkjuninni koma
10% af því vatni sem Veitur þurfa
fyrir hitun á höfuðborgarsvæðinu.
Stórbruna í virkjun afstýrt
80 slökkviliðsmenn börðust við eld í Hellisheiðarvirkjun Snör viðbrögð og góð þjálfun höfðu mikið
að segja Tjónið er óverulegt og engan sakaði 25% af rafmagnsframleiðslu og heitt vatn duttu út
Morgunblaðið/Hanna
Slökkvistarf Eldurinn var í loftræstingu í miðrými virkjunarinnar. Viðbúnaður var mikill því eldsvoði í stórri byggingu eins og hér er erfiður vettvangur.
Aðgerðir Vatni var dælt úr kröfubíl á kraumandi eldinn sem var við loftræstiturnana á þaki virkjunarinnar.
Hellisheiðarvirkjun er í eigu og
rekstri Orku náttúrunnar,
dótturfélags OR. Jarðhitasvæði
virkjunarinnar, sem var gang-
sett 2006, er sunnan við Heng-
ilinn. Í stöðinni eru sjö vélar til
rafmagnsframleiðslu og varma-
stöð fyrir heitt vatn.
Uppsett afl virkjunarinnar eru
303 MW í rafmagni og 133 MW í
varmaafli. Stækkunarmögu-
leikar eru fyrir hendi.
Úr borholum svæðisins
streymir jarðhitavatn sem fer í
skiljustöð. Þaðan fara gufa og
vatn í tveimur aðskildum að-
veituæðum í stöðvarhús virkj-
unarinnar þar sem fyrrnefndar
rafvélar og varmavél eru.
Stóra virkjun
má stækka
GANGSETT ÁRIÐ 2006