Morgunblaðið - 13.01.2018, Blaðsíða 21
FRÉTTIR 21Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. JANÚAR 2018
Isavia boðar til morgunfundar þann 16. janúar
næstkomandi kl. 8.30 á Hótel Reykjavík Natura.
Fjallað verður um mikilvægi innanlandsflugs sem
hluta af almenningssamgöngukerfinu. Spurt er hvort
núverandi kerfi sé komið að þolmörkum og rætt um þá
sýn sem hagaðilar hafa á kerfið nú og til framtíðar.
Boðið verður upp á kaffi og létta morgunhressingu.
Dagskrá:
— Elín Árnadóttir, aðstoðarforstjóri Isavia,
setur fundinn
I N N A N L A N D S F L U G – TÆ K I FÆ R I
E Ð A VA N D A M Á L ?
— Jón Karl Ólafsson, framkvæmdastjóri
flugvallasviðs Isavia
MIKILVÆGI INNANLANDSFLUGS FYRIR
BYGGÐIR LANDSINS
— Arnheiður Jóhannsdóttir, framkvæmdastjóri
Markaðsstofu Norðurlands
HAGKVÆMUR KOSTUR
Í KREFJANDI UMHVERFI
— Grímur Gíslason, forstöðumaður sölu- og
markaðssviðs Air Iceland Connect
Fyrirspurnir úr sal
SKRÁNING
ISAVIA . IS/MORGUNFUNDUR
HÓTEL NATURA Í REYK JAVÍK
16 . JANÚAR KL . 8 .30
M O R G U N F U N D U R
U M F R AM T Í Ð
I N N A N L A N D S F L U G S
Á Í S L A N D I
F R AM T Í Ð
I N N A N L A N D S F L U G S
Alls komu rúmlega 40 þúsund Þjóð-
verjar með skemmtiferðaskipum til
Reykjavíkur og Akraness í fyrra-
sumar.
Þetta kemur fram í yfirliti sem
Faxaflóahafnir hafa birt um komur
skemmtiferðaskipa í fyrra. Gestir
frá Þýskalandi voru 32% allra far-
þega skemmtiferðaskipa. Þar á eft-
ir koma Bandaríkin með 24% (30
þúsund) og Bretland (22 þúsund)
með 17%. Frá byrjun þessarar ald-
ar hefur farþegafjöldi frá þessum
þremur löndum ætíð verið mestur.
Árið 2017 voru 135 komur
skemmtiferðaskipa til Faxaflóa-
hafna og með þeim komu 128.275
farþegar. Met var í skipakomum
sem og farþegafjölda þetta árið.
Nýting á farþegarými skemmti-
ferðaskipanna var 99% og telst það
virkilega gott, segir í yfirlitinu. Það
bar til tíðinda á árinu að eitt
skemmtiferðaskip kom til Akra-
ness, í fyrsta sinn í sögu bæjarins.
Árið 2001 komu 27.574 farþegar
með skemmtiferðaskipum til
Reykjavíkur. Aukningin á þessari
öld hefur því verið gríðarleg.
Nú þegar er ljóst að árið 2018
mun verða metár, bæði hvað varðar
skipakomur og farþegafjölda. Bók-
aðar hafa verið nú þegar 143 skipa-
komur og með þeim er áætlað að
komi 146.000 þúsund farþegar.
Stærsta skipið sem kemur næsta
sumar heitir MSC Meraviglia og er
væntanlegt 26. maí. Það er 171.598
brúttótonn og 333 metrar að lengd.
Þetta verður stærsta skip sem
komið hefur til hafnar á Íslandi.
sisi@mbl.is
Þjóðverjar fjölmennastir
Ljósmynd/MSC Cruises
MSC Meraviglia Kemur til Reykjavíkur í sumar með 4.500 farþega.
Í fyrra komu 128.275 farþegar með skemmtiferðaskipum
Fyrirtækinu Loftkastalanum verða
seldar þrjár fasteignir og bygg-
ingarréttur í Gufunesi, með sam-
þykkt borgarráðs í gær. Er þetta
samkvæmt stefnu Reykjavíkur-
borgar um að starfsemi sem tengist
kvikmyndagerð verði í aðal-
hlutverki í Gufunesi.
Loftkastalinn er félag sem vinn-
ur að nýsmíði, leikmyndagerð, ný-
sköpun og hönnun og þróun á bún-
aði fyrir gerð kvikmynda.
Nú þegar hafa tvö fyrirtæki í
kvikmyndaiðnaði keypt eignir á
svæðinu sem þykir mikilvægt fyrir
áframhaldandi þróun þar.
Loftkastalinn greiðir 226 millj-
ónir króna fyrir fasteignirnar og
byggingarrétt með gatnagerð-
argjöldum. Fasteignirnar eru gam-
alt sérhæft verksmiðjuhús sem
hýsti á sínum tíma hluta starfsemi
áburðarverksmiðjunnar og birgða-
skemmur. Hlutar húsnæðisins eru
með mikilli lofthæð sem getur hent-
að vel til leikmyndagerðar. Allar
eignirnar þarfnast talsverðs við-
halds.
Loftkastali
í Gufunesi
Kvikmyndaver
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Gufunes Miklar byggingar sem nú
verður fengið nýtt hlutverk.
Skíðafélag Siglufjarðar og Arctic
Heli Skiing hafa undirritað sam-
starfssamning vegna hins árlega
fjallaskíðamóts, Super Troll Ski
Race, sem haldið verður á Siglu-
firði í fimmta sinn hinn 12. maí nk.
Jökull Bergmann hjá Arctic Heli
Skiing og Kristín Anna Guðmunds-
dóttir, formaður skíðafélagsins,
undirrituðu samninginn í vikunni.
Í tilkynningu segir að mótið, sem
heimamenn kalla Súper Trölla, hafi
fest sig í sessi og sé sótt af bæði Ís-
lendingum og erlendu skíðafólki.
Skíðafélagið telur það mikinn
feng að fá Jökul til liðs við mótið.
Mun Arctic Heli Skiing verða einn
af aðalbakhjörlum mótsins ásamt
Fjallakofanum, Sigló Hótel og Wow
air. Þess má geta að allur ágóði
mótsins rennur til barna- og ung-
lingastarfs skíðafélagsins.
Ljósmynd/Super Troll Ski Race
Fjallaskíðamót Náttúrufegurðin er
mikil á fjöllunum á Tröllskaga.
Fjallaskíða-
mót á Sigló