Morgunblaðið - 13.01.2018, Síða 12
Morgunblaðið/Ernir
Valgerður Þ. Jónsdóttir
vjon@mbl.is
Lægðirnar sem ganga yfirlandið og skammdegis-myrkrið ýta trúlega undirað margir fleygja sér upp
í sófa hvenær sem færi gefst, liggja
þar afvelta og horfa á sjónvarpið
þar til Óli Lokbrá kemur í heim-
sókn. Mjög kósí raunar og ekkert
til að hafa áhyggjur af eða agnúast
út í ef ekki væri fyrir það að þess-
um notalegheitum fylgir gjarnan
sælgæti, nasl og alls konar óholl-
usta, sem sumir eiga erfitt með að
venja sig af eftir hátíðarnar. Og svo
fitnum við óhjákvæmilega ef við
grípum ekki í taumana áður en í
óefni er komið.
Vetrarfitan kann að
helgast af sólarleysi
Samkvæmt nýrri rann-
sókn liggur ástæða þess
að fötin okkar virðast
óvenjulega þröng og
óþægileg þessa dagana
ekki bara í því að við höf-
um sleppt fram af okkur
beislinu í mat og drykk.
Morgunblaðið/ÞÖK
Smá hér og smá þar. Æ, æ! Hvernig gerðist þetta eiginlega?
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. JANÚAR 2018
Alvöru bónstöð þar sem bíllinn er
þrifinn að innan sem utan,
allt eftir þínum þörfum.
Frábær þjónusta – vönduð vinnubrögð.
Bæjarlind 2, 201 Kópavogur | SÍMI 577-4700 | bilalindin.is
Bónstöð opin virka daga frá 8-19,
Alþrif verð frá 14.500,- (lítill fólksbíll)
Bónstöð Pantið tíma í síma577 4700
Ef þú vilt vita allt
um íslensku lopa-
peysuna þá verður
Ásdís Jóelsdóttir
með leiðsögn um
sýninguna Íslenska
lopapeysan – upp-
runi, saga og
hönnun í Hönn-
unarsafni Íslands,
Garðatorgi 1,
Garðabæ, kl. 16 í
dag, laugardaginn
13. janúar. Ásdís er
lektor við Háskóla
Íslands og gaf út
samnefnda bók
rétt fyrir áramót
sem sýningin bygg-
ist á.
Íslenska lopa-
peysan þróaðist
frá því að vera
vinnufatnaður sem
nýttist aðallega við
erfið útistörf í það að verða að
þjóðlegri minjavöru og vinsælli
tískuvöru. Þannig endurspeglar
peysan lífshætti og sögu þjóðar.
Engin ein prjónakona „hannaði“
peysuna heldur hefur útlit hennar
og gerð tengst mörgum áhrifavöld-
um og ekki síst því að hún þurfti
að vera fljótprjónuð. Íslenskar
prjónakonur hafa haft veg og
vanda af þessari þróun. Þjálfun og
reynsla, formskynjun í munst-
urgerð, næmni fyrir litum og lita-
samsetningum ásamt ánægjunni af
því að prjóna hefur verið und-
irstaða í hönnun lopapeysunnar.
Hönnuður sýningarinnar er Auð-
ur Ösp Guðmundsdóttir.
Sýningin er farandsýning og er
samstarfsverkefni Hönnunarsafns
Íslands, Heimilisiðnaðarsafnsins og
Gljúfrasteins.
Hönnunarsafn Íslands er opið kl.
12-17 alla daga nema mánudaga.
Leiðsögn í Hönnunarsafni Íslands
Peysa sem endurspeglar
lífshætti og sögu þjóðarinnar
Tískuflík Íslenska lopapeysan er fyrir löngu orðin
þjóðleg minjavara og vinsæl tískuflík.
Söngur er nánast allra meina bót,
hann bætir, hressir og kætir. Nú er
lag fyrir söngglaða að skella sér á
samkomu á KEX hosteli við Skúla-
götu í henni Reykjavík í kvöld, laugar-
dag 13. janúar, því þar verður svokall-
að Karókí djöflanna. Salur sem
kenndur er við Sæmund í spariföt-
unum ætlar að hýsa viðburðinn og
um undirspilið sjá Guðmundur Óskar
Guðmundsson og Hjörtur Ingvi Jó-
hannsson í Hjaltalín, Þorvaldur Þór
Þorvaldsson trymbill, gítarleikarinn
Örn Eldjárn og Aron Steinn Ásbjarn-
arson spilar á saxófón og fleira.
Sandra Barilli ætlar að stýra sam-
komunni og lofað er að óvæntar
stjörnur stígi á svið. Öllum er hollt að
grípa míkrófón og syngja, og ekki er
síður gaman að vera í hópi þeirra sem
hlusta og njóta. Gaman saman.
Syngið í ykkur gleði á Kexinu í kvöld
Getty Images/iStockphoto
Láta vaða Enga feimni, skella sér!
Skellið ykkur á karókí djöflanna
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.
Klifið er hugsjónafélag sem er ekki
rekið í hagnaðarskyni en þar er boðið
upp á fjölbreytt námskeið fyrir börn
og fullorðna. Námskeiðin eru á ýms-
um sviðum, tækni og vísindi, mynd-
list, tónlist, listdans, leiklist og
sjálfsrækt. Jens Júlíusson verður
með vatnslitanámskeið hjá Klifinu
sem hefst 25. janúar nk. og er það
sagt henta þeim sem vilja ná góðri
færni í að vinna með vatnsliti. Á vef-
síðu Klifsins, klifid.is, kemur fram að
á námskeiðinu verði m.a. farið yfir
helstu grunnatriði sem tengjast
vatnslitum, farið ýtarlega í mismun-
andi efni og það sem þarf til að ná
góðri stjórn á vatnslitamálun, ein-
faldar myndir með fáum og flóknari
myndir. Einnig hvernig hægt er að
gera einfaldar skissur sterkari með
notkun vatnslita.
Vefsíðan www.klifid.is
Ljósmynd/Getty Images
Vatnslitun fyrir fullorðna